Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Qupperneq 14
14
LANDSTJÓRN.
um að stofna sem fyrst lagaskóla á íslandi, en á meðan það eigi
gæti komizt á, þá að skylda yfirdómendurna i yfirdómi landsins
til að halda fyrirlestra fyrir lögfrceðingaefnum i landslögunum,
og prófa þá í þeim, er þess œskja. Þingið fjellst á þetta, og
fór þess á leit i bœnarskrá sinni til konungs um málið.
20. L æ k n a s k ó 1 a m á I i ð. j>ingmaður Barðstrendinga
bar fyrir þingið bœnarskrá um stofnun læknaskóla. Nefnd var
sett í málið, og Ijet hún í Ijós það álit sitt, að brýnasta nauðsyn
bæri til að koma læknaskipuninni i betra horf og fjölga læknum.
Til þess að bœta úr þessu rjeð hún þinginu að biðja konung
um að stofna sem fyrst læknaskóla í Reykjavík með B kennur-
um. fetta mál varð aldrei rœtt til fullnustu á þinginu.
21. Thorchilliisjóðsmálið. Til þingsins kom bœn-
arskrá úr Gullbringusýslu þess efnis, að biðja um að verja nokkru
af hinum svokallaða Thorchilliisjóði (gjöf skólastjóra Jóns Þorkels-
sonar, er dó 1759, fátoekum börnum í Kjalarnesþingi til menningar)
til að styrkja fyrirhugaðan barnaskóla á Hvaleyri. Nefnd sú, er
fjekk málið til meðferðar, rjeð þinginu að biðja um, að af vöxtum
sjóðsins verði varið til skóla þessa fje því, sem að rjettri tiltölu
ber þeim hreppum, er nota skólann. Þetta mál var alroett á
á þinginu, en síðan var því vísað forsetaveginn til stiptsyfir-
valdanna.
22. Forngripasafnsmálið. Umsjónarmenn hins
Islenzka forngripasafns rituðu bœnarskrá til þingsins um að út-
vega safninu 300 rd. styrk af fje því, er ætlað er til óvissra út-
gjalda íslands á yfirstandandi fjárhagsári. Nefndin, er málið var
fengið til álita, rjeð þinginu að biðja konung um að leyfa, að
fyrir 2 næstu fjárhagsár mætti af fjenu til óvissra útgjalda verja
200 rd. um hvort árið fyrir sig. Þingið fjellst á þetta, og ritaði
um það bœnarskrá til konungs.
23. þjóðhátíðarmálið. Þjóðhátíðarnefndin sendi
forseta þingsins brjef og skýrslu um árangurinn af starfa sínum
síðan á siðasta þingi; gjörði hún grein fyrir því, að hún hefði
skorað á alla hina þjóðkjörnu þingmenn að safna samskotum
og senda sjer síðan skýrslu um, hvað þeim hefði orðið ágengt,
en að hún ekkert svar hefði fengið frá sumum þingmönnum, og
örlitlar gjafir; þar sem nú mál þetta var þannig vaxið, þá þótti
nefndinni svo mikið áhugaleysi hafa lýst sjcr hjá landsmðnnum