Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Qupperneq 23
MANNFJÖLGUN.
23
Afleiðingarnar at' sóttunum og slysförunum hafa
verið næsta hörmulegar. Sóttirnar hafa eigi að eins orðið mörg-
um að bana, heldur og einnig lagt enn fleiri í rúmið, og gjört
þá óverkfœra langa hríð. Enn þá tilfinnanlegri hafa þó ef til
vill slysfarirnar orðið, þar sem flestir þeirra, er þannig fórust,
voru menn á bezta aldri, og höfðu margir þeirra fjölskyldu að
annast, sem lá við vonarvöl, er þeirra missti við. Af þeim 28
mönnum úr Mýrdal og Meðallandi, er drukknuðu við Dyr-
hólaey næstliðinn vetur, voru þannig 18 bœndur og kvæntir
menn; ljetu þeir eptir sig ekkjur og fjölda barna í ómegð; sveitir
þeirra voru mjög fátœkar og gátu lítið liðsinnt þeim, og hefðu
hjer orðið hin mestu vandræði, ef ýmsir drenglyndir og rausn-
arlegir menn í ýmsum áttum hefðu eigi orðið til að veita þeim
liðsinni og skjóta saman handa þeim fjegjöfum; fje það, er þeim
gafst þannig, var alls 800—900 rd.
Þrátt fyrir hinn mikla manndauða á íslandi næstliðið ár
hefur fólkinu þó fjölgað. Eptir skýrslum hafa á árinu dáið
alls 1890 menn (1003 karlkyns en 887 kvennkyns), en fœðzt
2276 menn (1164 karlkyns en 1112 kvennkyns), og eru þá 386
fleiri fœddir en dánir. Þeir, sem hafa flntt sig inn í landið
eða úr landinu, eru bvorirtveggja fáir, og mun tala þeirra
því nær jafna sig upp. Fólkstalan var í árslok 70417.
Hjer virðist eiga við að geta um lát nokknrra
merkismanna, er ljetust á íslandi næstliðið ár. Af em-
bættismönnum landsins Ijetust að eins 4 prestar: Hinn fyrsti
var Þorsteinn Erlendsson Hjálmarsen, prestur í
Hltardal og fyrrum prófastur f Mýrasýslu ; bann dó 18. okt., og
var þá nálega 77 ára að aldri. Annar var Þorsteinn E i n-
arsson, prestur á Kálfafellsstað; hann dó 22. okt., 62 ára að
aldri. Þriðji varJónas Bjarnarson, prestur á Ríp ; hann
drukknaði í Hjeraðsvötnunum 3. des., og var þá að eins 31
árs. Fjórði var Benedikt Gudmundson, prestur í Vatns-
firði; hann dó 5. des., 72 ára. Allir voru prestar þessir merk-
ismenn, en einkum þótti manntjón að sjera Jónasi, er var á
bezta aldri og ágætur maður. Erlendis dó einn íslenzk-
ur prestur: Þorgeir Guðmundsson í Nysted á Lá-
landi, hinn ágælasti maður; hann ljezt 28. jan., 76 ára að
aldri. Kammcrráð Iíristján Skúlason Magnússen,