Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Side 27

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Side 27
ATVINNUVEGIR. 27 gekk heyþurrkur aptur vel á norðurlandi og austurlandi, en illa á suðurlandi og veslurlandi; varð sláttur þar mjög endasleppur í mýrarsveitum, því að gras fór allt í kaf sökum rigninganna, og kom eigi aptur upp að mun, er upp þorrnaði 5 í hinum þurrlendari sveitum varð heynýting aptur góð áður en slætti lauk. Hey- birgðir voru hvervetna miklar, og þegar á allt er litið, víðast allgóðar; reyndar höfðu töður nokkuð hrakizt á norður- ogaust- urlandi, og úlhey á suður- og vesturlandi, en flestir voru þó að mestu ánœgðir með heyafla sinn. Kál, rófur og kartöflur spruttu einnig víðast í betra lagi og voru snemma fullþroska, en eigi varð arður af þeim að þvf skapi meiri en að vanda, sem heyaflinn var meiri. þar sem sáð hafði verið höfrum og byggi, varð uppskera einnig íbetra lagi; en slíkt er svo óvíða, að þess er naumlega getandi. Melurinn eða villikornið í Skaptfellssýslu spratt einnig í bezta lagi. f>á er að minnast á f járrœktina; hún er í rauninni hinn helzti atvinnuvegur landsbúa, en af henni er þó œrið lítið að segja. Að því er snertir sauðfjárrœktina, má geta þess, að skepnuhöld á sauðfjenaði voru víða allgóð næstliðið ár; raunar horfðist eigi vel á með fjenaðarhöld á útmánuðunum, meðan hörkurnar voru sem mestar, en vorið bœtti úr, svo að sauðfje varð alstaðar í allgóðum holdum. Sauðburður gekk í bezta lagi. Fje fór vel úr ult um vorið. Málnyta varð góð um sumarið, þar eð hagar voru vel sprottnir og veður jafnan hlý. Fjárheimtur urðu í lakara lagi, og var þó veð- ur bjart og blítt um göngutímann; fer svo opt, þá er vel gefur, að gangnamenn vanda þá eigi eins leitirnar. Sláturfje reynd- ist einnig í lakara lagi bæði að holdum og mör, þrátt fyrir það þótt beitarland væri í bezta lagi og veðurlag sömuleiðis; má vera að því hafi valdið þurrkar á afrjettum, því að þegar þurrka- samt er og og fje hefst við á örœfum eða þar, sem eigi næst til vatns, er það á sífelldum hlaupum og nær eigi að fitna. j»ó að sauðfjenaðarhöld mættu kallast góð, þegar á allt er litið, þá hafa þó ýmsar tálmanir orðið á sauðfjárrœktinni sem vandi er til. Sumstaðar var fje b i t i ð af t ó u, en þó voru eigi mikil brögð að því, enda hefur sumstaðar verið gjörð gangskör að því að eyða bítnum, bæði með því að skjóta einstakar tóur og vinna

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.