Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Side 35
ATVINNUVEGIR.
35
Kaupraannahöfn til að ráðgast ura, hvernig ferðum þessum
mætti verða komið á og hvernig þeim skyldi hagað, en eigi er
enn kunnugt um aðgjörðir nefndar þeirrar.
iðnaðnr er svo lítill á íslandi, að hann getur naumlega
talizt sem sjerstök atvinnugrein fyrir landið í heild sinni; hon-
um hefur og mjög lítið miðað áfram næstliðið ár. Tóvinna
hefur farið þverrandi. Hannyrðir hafa þar á mót farið í vöxt;
það má telja framför í þeirri grein, að margar saumavjelar voru
fengnar til landsins, og var farið að nota þær, en slíkt hefur
varla verið teljandi áður. Smíðar, húsagjörðog skipa-
gjörð hafa einnig tekið nokkrum framförum, þó að litlar sjeu.
tað, sem einkum hnekkir iðnaði landsins, eru ónýt áhöld og verk-
fœri, en þau fara nú einnig smátt og smátt batnandi.
M e n n t u n.
Frá menntun íslendinga er fátt að segja; verkleg
menntun er þar harðla lltil, og bókleg menntun stendur að
minnsta kosti mjög til bóta. fó að þjóðin sje námfús, þá kaupir
hún að tiltölu færri blöð og bœkur en flestar aðrar menntaðar
þjóðir. í flestum frœðigreinum vantar enn hentugar og nýtilegar
bœkur á íslenzkri lungu, og erlendar tungur skilja að tiltölu fáir.
Tilraunir þær, er gjörðar hafa verið til að auka og bœta mennt-
un íslendinga, hafa þó nokkru áorkað, og þótt menntun þeirra
enn megi kallast lítil, fer hún þó vaxandi.
Næstliðið ár komu út á íslandi 4 smáblöð; af þeim voru
2 hálfsmánaðarblöð (Þjóðólfur og Norðanfari) en 2 mánaðarblöð
(Gangleri og Tíminn). Nokkrir menntamenn í Reykjavík ætluðu
að stofna vikublað, ef þeir fengju nóga kaupendur, en landsmönnum
þótti fyrirtœkið of stórkostlegt, og þorðu þeir eigi að ráðast I að
kaupa það. íblöðum þeim, er út komu næstliðið ár, voru nokkrar
góðar ritgjörðir um ýmisleg efni, en að öllu samtöldu voru þau
miður vönduð að efni, því að auk auglýsinga, skýrslna og skyndi-
frjettavoru þau mestmegnis kritur og langorðar blaðadeilur milli
einstakra manna.
Af t í m a r i t u m þeim, sem eigi eru í dagblaðasniði, hafa einnig