Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Qupperneq 36

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Qupperneq 36
36 MENNTUN. 4 komið út næstliðið ár: 1. Heilbrigðistíðindi, mánaðarrit, (1. árgangur), samin og gefin út af doktor Jóni Hjaltalín; í riti þessu eru ýmsar fróðlegar ritgjörðir, er lúta að heilbrigðisfrœði, og sömuleiðis varúðarreglur handa heilum og ráð handa vanheil- úm. 2, Tí marit, ársrit, (1. árgangur), gefið út af yfirdómara Jóni Pjeturssyni; rit þetta skýrir frá ýmsu í fornum frœðum, forn- skjölum, ættartölum, lögum o. s. frv. 3. Ný fjelagsrit, árs- rit, (28. árgangur), gefin útaf nokkrum Íslendingurn í Kaupmanna- höfn; í ritum þessum er ritgjörð um stjórnarstöðulögin 2. jan. eptir Jón Signrðsson; leiðir hann þar mörg sögnleg og lagaleg rök að því, að lög þessi geti eigi verið gild á íslandi, og bendir enn fremur á þá agnúa á þeim, er gjöri þau óhafandi; þar er og enn fremur vel samin ritgjörð um prestakosningar, og nokk- ur kvæði, flest eptir hið þýzka þjóðskáld Schiller, þýdd af skáld- inu SteingrímiThorsteinson. 4, Gefn, ársrit (2. árgangur), samin og gefin út af skáldinu Benedikt Gröndal; þar er meðal annars fróðleg ritgjörð um norðurfarir og ýms kvæði. Af öðrum bókum, sem út komu á íslenzku næstliðið ár, má helzt telja þessar: 1, Sálmabók til að’nafa við guðsþjónustu í kirkjum og heimahúsum (Reykjavík); þessarar bókar er fyr getið. — 2, Hugvekjur til kveldlestra frá páskum til hvítasunnu eptir doktor Pjetur Pjetursson (Kaupmannahöfn); þessar hugvekjur hafa þegar náð allmikilli útbreiðslu eins og hinar fyrri bœkur sama höfundar.— 3, Kennslubók handa yfirsetukon- um eptir Levy og Stadfeldt, íslenzkuð af lækni Jónasi Jónassen (Reykjavík); þeirrar bókar er fyr minnzt. — 4. Latnesk lestrarbók handa byrjöndum, eptir skólakennarana Jón J>or- kelsson og Gísla Magnússon (Reykjavík); efni hennar þykir vel valið, og vandað orðasafn fylgir henni.— 5, Brjef frá Áme- r í k u, þýdd úr norsku af kandídat Skúla Magnússyni (Reykja- vík); brjef þessi eru einkar fróðleg fyrir hvern þann, er vill kynna sjer kosti nýlendumanna í Ameríku. — 6, Um fram- farir íslands eptir bónda Einar Ásmundsson í Nesi (Iíaup- mannahöfn); rit þetta er gefið út og sœmt verðlaunum af hinu islenzka bókmenntafjelagi; þykir það og betur samið en flest annað, er hingað til hefur verið ritað um það efni.— 7,I£væði eptir sýslumann Jón Thoroddsen, gefin út af hinu íslenzkabók- menntafjelagi (Kaupmannahöfn); kvæði þessi eru víða orðin þjóð-

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.