Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Blaðsíða 37
MENNTUN.
37
kuDQ á íslandi, og þykja þau einkum hafa til síns ágætis, að
þau eru þjóðleg, lipur og hnittileg. Auk þessara bóka, sem
hjer eru taldar, hafa og verið gefin út á binu næstliðna ári:
alþingistíðindin, hin árlegu tíðindi og skýrslur bókmenntafjelags-
ins og ýmsar aðrar smáskýrslur og smáritlingar, er minna kveð-
ur að. Þegar litið er á bœkur þessar og þess gætt, að megin
þeirra er nauðsynlegar guðsorðabœkur og kennslubœkur, þá má
furðu gegna, hve lílið bókmenntum íslendinga miðar áfram. Að
vísu bagar margt, svo sem fólksfæðin og fjeleysi landsmanna,
og í annan stað örðugar samgöngur og ógreið bókasala, en aðal-
skerið, sem á strandar, er ef til viil sú ímyndun, sem allvíða
ríkir, einkum hjá hinum ómenntuðustu, að þeir sjeu fullnuma
og þurfi sízt meiri menntunar við.
íhinu íslenzka bókmenntafjelagi voru alls ná-
lega 700 manna næstliðið ár; fjelagið átti þá nálægt 9650 rd. í
vaxtasjóði sínum, og allt að 30000 rd. virði í bókum og uppdrátt-
um og handritasafn að auki.
Af lestrarfjelögunum er lítið að segja; um flest af
þeim vantar skýrslu, en svo mikið er víst, að þau fara óðum
fækkandi og hnignandi; hafa þau víða verið lögð niður næstliðið
ár, og bœkur þeirra seldar fyrir lítið verð.
Um bókasöfn vantar einnig allar skýrslur, en að því er
kunnugt er, hafa þau þó fremur farið vaxandi en minnkandi
næstliðið ár.
Forngripasafnið hefur einnig aukizt um nokkra muni
næstliðið ár; safn þetta hefur tekið undrunarverðum framförum
á sluttum tíma, einkum fyrir kappsmuni og ötulleik Sigurðar
málara Guðmundssonar. Nú á safnið 869 forngripi og marga
merkilega; af þeim bœttust 44 við árið sem leið. Litla rœkt
hafa landsbúar sýnt safninu, því að sumpart hefur þeim eigi
skilizt, að fornmenjar væru nokkurs verðar, og glatað þeim vís-
vitandi, en sumpart hafa þeir selt þær útlendingum; þannig fundust
2 sverð frá fornöld næstliðið ár, annað á Botnsheiði í Borgarfirði,
en hitt á Hestfjarðarheiði á Vestfjörðum; úr öðru þeirra voru
smíðaðir Ijáir, en hitt var selt útiendingum. Mjög er safninu
fjevant, en fáir styrkja það með fjegjöfum; næstliðið ár gaf Eng-
lendingur einn, að nafni Milican, safninu hálft pund (4—5 rd.),
en íslendingar ekkert.