Fréttir frá Íslandi - 01.01.1871, Page 38
38
MENNTUN.
í*að er hvorttveggja að skólamenntun á íslandi er eigi
mikil, enda er einnig eigi mikið af henni að segja. Barna-
skólar eru þar því nær engir, og flestum börnum er þar eigi
annað kennt en það eitt í kristindómi, sem boðið er með lög-
um. Nú er í ráði að stofna barnaskóla í ýmsum sjávarsveitum.
Af barnaskólum þeim, er haldnir voru næstliðið ár, var barna-
skólinn i Reykjavík helztur, og sóttu hann hjer um bii 70 börn.
Alþýðuskólar eru engir á íslandi; alþýðuskóli sá, er
verið var að stofna á Borðeyri, hefur eigi orðið notaður sökum
fjeleysis. Flestir alþýðumenn fara þannig á mis við alla mennt-
un, þar sem þá bæði vantar bœkur og kennara, og verða að
eins að hlíta því, er þeir muna af hinu litla, sem þeir hafa num-
ið í œsku. Þess má geta hjer, að nokkrir menntamenn í Reykja-
vík (Helgi Hálfdánarson, prestaskólakennari, Jón Þorkelsson,
Halldór Guðmundsson og Páll Melsteð, latínuskólakennarar, og
Helgi Helgesen, yfirkennari við barnaskólann) hjeldu fyrirlestra
um ýmislegt í sögu og náttúrufrœði fyrir nokkrum alþýðumönn-
um í Reykjavík; var það fagurt fyrirtœki, og þóttu þeir leysa
það vel af hendi.
í latínuskólanum í Reykjavík fækkaði lærisveinun-
um næstliðið ár; í byrjun skólaársins 1870—71 voru læri-
sveinar 70 að tölu; 2 þeirra dóu, 9 tóku burtfararpróf og 8
fóru úr skóla á annan hátt; aptur komu 14 í skólann á sama
tímabili, svo að við árslok 1871 voru lærisveinar að eins 65.
Við burtfararprófið fengu 2 fyrstu einkunn, 6 aðra einkunn og
1 þriðju einkunn.
Stúdentar þeir, sem lærðu læknisfrœði í Reykjavík,
voru í byrjun næstliðins árs 4; af þeim hætti 1, en 2 bœttust
við, svo að í árslokin voru þeir 5; enginn útskrifaðist þaðan á
þessu tímabili.
Á prestaskólanum hafa stúdentar fjölgað næstliðið
ár; velurinn 1870—71 voru þeir 11; af þeim tóku 7 próf í
heimspeki um vorið, og fengu 5 þeirra fyrstu einkunn, en 2
aðra einkunn; 5 tóku embættispróf um sumarið, og fengu 3
þeirra fyrstu einkunn, en 2 aðra einkunn. 9 bcettust um haust-
ið við þá 6, er eptir urðu, og í lok ársins voru þar 15 stú-
dentar.
Nokkrir íslenzkir stúdentar hafa enn sem fyrri notið kennslu