Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Page 22
24
KIRKJUHREYFINGAR.
skipanir né undirbúningur með, að halda hátíðlegt 400 ára
afmœli Marteins LútJiers 10. nóv., eins og í öðrum lútherstum
löndum. Helgi Hálfdanarson prestaskólakennari tók sig fram
um pað í Eeykjavík, pegar landstjórnin steinpagði, og flutti fyrir-
lestur á gamla pingsalnum í lærða skólanum,um ástand kirkjunnar
á undan Lúther og um æfi hans. Tveim dögum síðar hélt
hann og fyrirlestur í kirkjunni um sama efni. Fyrirlestrar
pessar voru ágætir, og voru vel sóttir, og prentaðir síðan.
A prestastefnu eða synódus fór ekki meira né merkara
fram enn vant var, o: skifting á féstyrk til uppgjafapresta.
Af pessu forna og mikilvæga pingi voru er ekkert eftir nema
nafnið tómt. Lagafrumvarp var horið fyrir pingið um nýtt
kirkjuping, enn náði eigi fram að ganga.
VI. Árferð.
Tíðarfar.—Grasvöxtur.—Heyskapur.—Skepnuliiiltl.
pað er gamalt orðtæki, hyggt á gamalli reynslu, að «jafnan
komi skin eftir skúr» ; má segja, að máltæki petta hafi sannazt
á veðurfarinu og allri árferð petta ár. Undanfarin tvö ár
hafa svo að segja sýnt oss íslendingum í tvo heimana, svo að-
par voru eftir mörg pau mein, er purfti að græða, og hefir
petta árið gert pað, má segja, með öllu móti. Tíðarfarið má
að öllum jafnaði heita hafa verið hið hagstæðasta, og mesta
öndvegistíð víðast hvar á landi, og að sumu leyti til sjávar.
Um nýárið voru jarðbönn mikil í Strandasýslu, pingeyjarsýslu,
svo og í Múlasýslum og Skaftafellssýslu inni eystri; kom
mönnum pað illa, par eð margir voru hörmulega illa undir bún-
ir með heyjaforða handa fénaði sínum undan sumrinu. Enn á
prettánda kvaddi jólahátíðin með ágætri hláku um alt land,
og leysti pá snjóa að mestu, og kom upp góð jörð í snjóasveit-
unum; hélzt nú hin mesta blíðviðratíð til 25. febrúar, pá
gekk í ákafa útsynninga, með byljum og dimmviðrum, og
gekk svo um nær mánaðartíma. Batnaði pá aftur og gerði
hina beztu tíð víðast um land. Gagnstætt útsynningunum