Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Blaðsíða 39
MANNALÁT OG FLEIRA.
41
gekk síðan háskólaveginn, og tók próf í lögfræði 5’ /2 ári síðar,
með bezta vitnishurði. Jafnframt lögfræðisnámi sínu stundaði
hann íslenztu af svo miklu kappi af íslenzkum stúdentum, að
hann mælti á pá tungu eigi síður enn danska. Síðan varhann
fyrst umboðsmaður föður síns, kom til Islands og var hér
um tíma, og pá um stund settur sýslumaður 1 Arnessýslu.
J>egar landritaraembœttið var stofnað 1872 fekk hann veitingu
fyrir pví, og gegndi hann pví til dauðadags. 1875 var hann
skipaður lögreglustjóri í fjárkláðamálinu, til pess að útrýma
með oddi og eggju öllum fjárkláða, hvar sem hans yrði vart,
og gekk hann svo röggsamlega fram í pví, að hann eyddi peim
vogesti á skömmum tíma, og sýndi pingið honum viðurkenningu
fyrir pað með pví, að veita honum 1000 kr. póknun 1879. Hann
sat á alpingi, fyrir Skagafjarðarsýslu, 1879 og 1881; ýmis önn-
ur störf hafði hann á hendi, og einkum pau störf, er aðrir
voru orðnir uppgefnir við, svo sem fjárkláðinn, Elliðaármálin
0. fl. Alla æíi var hann heilsutæpur, enn par var sterk og
starfsöm sál í veikum og vanburða líkama. Hann andaðist af
heilablóðfalli eftir tæpa sólarhringslegu. Útför hans var gerð
12. dag sama mánaðar með mikilli viðhöfn. Hann var ákafa-
maður mikill í skapi, og unni tvennu heitast: frelsinu og ætt-
jörðu sinni. Hann átti marga mótstöðumenn, pví skoðanir hans
voru oft andvígar annara. Bezt af öllu einkenna hann vísur
pessar, er stóðu í grafskrift hans:
Rór var hann ekki,
enn ríkur í skapi.
bermáll, enn illmáll aldrei;
andvígismönnum
pótti’ hann ei aldæla,
en óvild til einskis manns bar hann.
Að elju’ og starfsemi.
árvekni’ og dugnaði
átti’ hann hér engan sinn líka.
Miklar voru gáfurnar,
gott var hjartað,
í engu var hann meðal-maður.
Prestar peir, er látizt hafa á pessu ári, eru peir, er nú
skal greina: Ólajur Ólafsson, venjulegast nefndur síra Ólafur
stúdent. Hann var fæddur í Miklabæjarsókn í Skagafirði 22.
dag aprílmánaðar 1807 og var kominn af bændafólki. Hann
nam skólanám hjá Benidikt prófasti Vigfússyni á Hólum 1
Hjaltadal, og tók stúdentspróf hjá Arna stiptisprófasti Helgasyni