Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Page 44
46
MANNALÍT OG FLEIRA.
frá blautu barnsbeini í fóstri bjá J>órði báyíirdómara Jónassen
í Keykjavík. Hann útskrifaðist úr Reykjavíkurskóla 1848, og
fór pá utan, og las fyrst lög, en hætti við, og fór þá einungis
að gefa sig við fornleifasöfnum, einkum frá miðaldatímunum,
í Höfn, og svo ritstörfum. 1858 varð bann undirmaður við
umsjón sögufræðissafnsins (historisk museum) á Rosenborg, og
síðan yíirmaður pess, til dauðadags. Hann ferðaðist víða, og
fekk skáldastyrk til Ítalíu 1863. Hann lézt eftir langa og
punga legu 1. dag septembermánaðar. Rit bans eru mjög mörg,
bæði skáldrit og menningarsögurit. öll eru pau ritin á danska
tungu, en eru sum mjög fögur. Hann unni og heitt Islandi,
móðurmoldu sinni, og eru margar sögur hans og kvæði íslenzk
að efni. Smásögur hans frá íslandi eru í sögusafni pví, er
hann nefndi «Genrebilleder» (sögur úr hversdagslífinu1), og svo
fer hin stærsta skáldsaga hans: «Over skjær og brænding» (yfir
brimrót og boða, 1882) fram á Islandi. pjóðsögum vorum
hefir hann og snúið á dansku tungu. Öll eru rit hans lipur-
lega samin og fögur.
— TJtflutningar til Vesturheims hafa verið með langmesta
móti petta ár. Flestir fóru úr Borgaríirði og nokkrum fleirum
suðursveitum, og svo úr Skagafirði, Eyjafirði og vesturhluta
Húnavatnssýslu; margir fóru og víðar að. Eigi höfum vér
fengið nákvæmar skýrslur um tölu landflóttamanna, en peir
voru eitthvað á prettánda hundrað; voru pó margir, er aftur
urðu að setjast að sinni, pví að peir gátu eigi fengið seldar
eignir sínar. Um helmingur peirra fór til AVinnipeg, en hinir
til Pembina, og nokkurir til Minnesota. Auk pessara útflytj-
enda fóru og nokkurir (um 30?) sáluhjálparveginn til Utah,
sem Eiríkur trúarboði frá Brúnum hafði með sér.
XI. Skólar.
Embættispróf við háskólann tóku sex íslenzkir stúdentar
pettaár: |>órhallur Bjarnarson í guðfræði með 1. einkunn, Einn-
ur Jónsson og Geir Zoega, báðir í málfræði með 2. einkunn,
og Björn Bjarnarson, Jóhannes Ólafsson og Páll Briem, allir í