Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Síða 50
52
VÍSINDALEGAR RANSÓKNIR.
að peim nema með mestu fyrirhöfn. Síðan sbeðaði hann hraunið
í Norðurárdalnum, er komið hefir úr Brókargígum, hveri og
laugar í dölunum sunnan fram, og fór síðan yfir um Uxahryggi
(öxarhryggi?) og yfir um J>ingvöll til Beykjavíkur.
Aðra ferð sína fór hann í byrjun júlímánaðar, og varði pá
afarmiklum tíma, júlímánuði og mest öllum ágústmánuði, til
þess að ransaka nákvæmlega Beykjanesfjallgarð, er nefndur er,
frá Mosfellsheiði að norðan, og Grafningi og ölfusi að ailstan,
alt til sjávar. Hér á þessu svæði er sú geypileg ógegnd af eld-
gígum, hraunum og leifum fornra jarðeldaumbrota, að furðu
gegnir; alt þetta horn landsins er svo rótað og umturnað af
eldsumhrotum, hæði að fornu, og líka eftir landnámstíð, þó
þess. sé eigi getið í annálum, að varla er auðið að finna þann
stað, er eigi sé gagnbrunninn. J>ar hlaðast hraunflóðin hvort
ofan á annað, og mynda heil fjöll, en eftir standa sem menjar
þessarar fornu Yölundarsmiðju ótal gígir, gufuhverir, leirhverir
og brennisteinspyttir. J>að yrði of langt mál, að skýra neitt
nákvæmt frá hinu helzta í þessari ferð, því að það yrði eigi
annað en tóm nafnaþula.
J>riðju ferð sína fór hann í byrjun septemhermánaðar að
J>ingvöllum, og þaðan að Skjaldbreið. Hún er 3400 fet á hæð,
hallar jafnlíðandi til allra hliða, og hefir í toppi geysimikinn
gíg, 900 fet að þvermáli, og er hann fullur af jökli. Frá Skjald-
hreiðartindi markar fyrir dæld í Balljökli, þar sem J>órisdalur
er. Skjaldbreiðarhraun eru afargömul, og hafa streymt niður
að Jnngvallavatni, en J>ingvallahraunin er úr gígum í Hrafns-
tindum. Gígir allmargir og fornir eru á Lyngdalsheiði, alt
niður hjá Klausturhólum, og hraun úr þeim þar um slóðir.
Með þessu var ferðunum lokið þetta sumar.
Vísindalegur árangur ferða þessara var mjög mikil, einkum
að því leyti, að fá ljósa hugmynd um eldsumbrotin á Beykja-
nesskaga. Segir Thoroddsen sjálfur svo frá: «Aður þektu
menn að eins 3 eða 4 eldfjöll um þessar slóðir, en í sumar
skoðaði eg yfir 39 með rúmum 400 eldgígum; hér um hil 10
af þessum eldfjöllum hafa að líkindum gosið síðan land bygð-
st.. . . Eg fekk og aðra skoðun á landafræði skagans en áður;