Fréttir frá Íslandi - 01.01.1883, Blaðsíða 58
60
BÓKMENTIR.
útgefna af Kaalund; hún hefiraldrei verið prentuð áður; ogKroha-
rejssögu og Krókarefsrímur, gefnar út af Pálma Pálssyni;
J>að eru hinar elztu rímur. sem menn vita aldur á, næst Ólafs-
rímu. Allar eru útgáfur pessar vandaðar.
í Noregi var byrjað að prenta hina nýju og endurhættu
útgáfu af orðabók Fritzners yfir hið forna íslenzka mál.
Björn ólsen, kennari við lærða skólann, samdi og gaf út í
Höfn rit um „Kunerne í den oldislandske Literatur* (um
rúnir í fornritum íslendinga). Síðan ávann hann sér doktors-
nafnbót fyrir rit þetta við háskólann; andmæltu honum par,
af kennanda hálfu Konráð Gíslason, og af heyranda hálfu
Guðmundur þorláksson.
Sagan af Sigurði þögla, ein af hinum gömlu riddarasög-
um, var prentuð í Keykjavík. Ekki var pað vísindaleg útgáfa.
J>ess má hér gæta, að Piltur og stúlka kom út 1 pýzkri
pýðingu (Knabe und Madchen) um sumarið; sá er þýddi heitir
J. C. Poestion, og á heima í Yínarborg. J>ýðingin er heldur
góð. J>ýðandinn hefur nú um alllangan tíma stundað nýja ís-
lenzku, og lesið mikið hin nýrri skáld vor. Nokkur önnur
rit komu út á öðrum málum, er snertu ísland og íslenzkar
bókmentir, og viljum vér par til nefna norska pýðingu á Lýsingu
íslands eftir J>orvald Thoroddsen.
Margir útlendir ferðamenn komu hingað petfa sumar, enn
af peim viljum vér að eins minnast á Dr. Philipp Schweitzer
frá Jena; hann ferðaðist hingað til pess að kynnast íslenzkri
pjóð, lífi og bókmentum; dvaldist hann hér lengi sumars, og
safnaði nokkru af íslenzkum bókum; hefir hann í huga að
leggja alúð á bókmentasögu íslands. Mjög lá honum vel
hugur til íslendinga.
-----J>ess er vert að geta, að á gamlárskvöld var haldinn
samsöngur með organslætti og soío-söngvum í dómkirkjunni í
Keykjavík. Eormenn voru peir Steingrímur söngkennari John-
sen og Björn Kristjánsson organleikari. Með peim sungu um
30 yngri karlar og konur í bænum. J>ótti petta hin bezta