Fréttablaðið - 28.05.2001, Page 2
KJÖRKASSINN
2
FRÉTTABLAÐIÐ
28. maí 2001 MÁNUDACUR
PORCRÍMUR
ÞRÁINSSON
Meirihluti netverja fylgir
Þorgrími Þráinssyni,
framkvæmdastjóra
Tóbaksvarnarráðs, að
málum og telur
tóbaksvamarlögin hæfi-
leg ströng.
Ganga tóbaksvarnarlögin
of langt?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Er stundað vændi á nektardansstöðum i
Reykjavík?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þína skoðun I
ÓEIRÐIR f TIZI OUZOU
Lögregla beitti táragasi til að stökkva mót-
mælendum á flótta.
Átök í Alsír:
Sökudólgum
refsað
AiGEiRSBORG. flp. Forseti Alsír, Abdeil-
aziz Bouteflika, sagði í gær að þeim
sem staðið hafa fyrir óeirðum í Alsír
undanfarinn mánuð yrði refsað
harðlega. Ræða Bouteflike um
ástandið er eitt af fáum skiptum sem
hann hefur tjáð sig um átökin sem
brutust út fyrir rúmum mánuði síð-
an þegar framhaldsskólanemi var
skotinn til bana er hann var í varð-
haldi lögreglu. Bouteflika hefur ver-
ið gagnrýndur harðlega fyrir að
forðast að taka á málunum en marg-
ir íbúar landsins gagnrýna nú æ
meir framkomu lögreglunnar við
óeirðunum. Síðast á laugardag skaut
lögreglan ungling til bana. Mótmæl-
endur kveiktu í nokkrum bygging-
um í Tizi Ouzou, höfuðborg Kabyle
héraðsins í Alsír. Óeirðirnar eru
taldar til marks um æ meiri óróleika
í Alsír og óánægju með atvinnuleysi
og fátækt. ■
Svifdrekamaður:
Brotlenti
í fjallshlíð
slys Maður á svifdreka lenti utan í
Reykjafelli, rétt fyrir ofan Kolvið-
arhól, rétt eftir klukkan sjö í gær-
kvöldi. Maður á jörðu niðri til-
kynnti strax um slysið til lögregl-
unnar á Selfossi og fór hún á stað-
inn ásamt sjúkrabifreið. Flugmað-
urinn var fluttur á Landsspítalann
við Hringbraut en rannsókn á
meiðslum hans var ekki að fullu
lokið. Grunur lék á einhverjum bak-
meiðslum.
Beðið var um að TF-LÍF væri í
viðbragðsstöðu en hún fór ekki í
loftið. Að sögn lögreglunnar hafði
flugmaðurinn misreiknað sig eitt-
hvað með þeim afleiðingum að hann
brotlenti í fjallinu. ■
Höfuðborgarsvæðið:
20 þúsund fleiri
fá Fréttablaðið
dagblöð Samkvæmt niðurstöðum
könnunar sem Gallup gerði 15. til 23.
maí berst Fréttablaðið á um 62.300
heimili á höfuðborgarsvæðinu. Þátt-
takendur voru spurðir hvort dagblöð
væru keypt í áskrift á heimili þeirra
og reyndus 41.850 heimili kaupa
Morgunblaðið og 11.400 DV. Frétta-
blaðið fer því á 20.450 fleiri heimili
en Morgunblaðið eða um 49% fieiri.
Könnuninnni lauk um það leyti
sem Fréttablaðið varð mánaðargam-
alt. Síðan þá hefur verið unnið að því
að bæta enn dreifingarkerfi blaðsins
og styttist óðum í það takmark að
blaðið berist án undantekninga á öll
heimili á höfuðborgarsvæðinu. ■
DAGBLÖÐ Á HEIMILUM Á
HÖFUÐBORCARSVÆÐINU
62.300
Fréttablaðið
Samkvæmt könnun Callup
frá 15.-23. maí 2001
um dreifingu Frétta-
bladsins og áskrift að
ödrum dagblöðum.
41.850
Morgunblaðið DV
Gísli Hjartarson segir þingmenn ekkert geta og vilja:
Mikill atgervisflótti
smAbátar „A fimmtán árum höfum
verið að missa allt. Það hefði verið
betra að fá eitt gott hnakkaskot en
þetta. Þá hefði verið ástæða til að
byrja á ný alveg frá grunni,“ sagði
Gísli Hjartarson á ísafirði.
„Verði trillurnar kvótasettar þá er
þetta búið. Eitt af vandamálum okkar
er að atgervisflóttinn hefur verið svo
mikill. Það eru engir alvöru forystu-
menn eftir í atvinnulífinu, ekki í
sveitastjórninni og á þinginu eigum
við bara meðaljóna sem ekkert geta
og ekkert vilja. Það er ríkjandi með-
almennska í öllu. í verkfallinu 1998
voru þrettán togarar í ísafjarðarhöfn
og þeirra á meðal flottustu togarar
landsins, eins og til dæmis Guðbjörg-
in. { verkfallinu í vor voru þeir hins
GÍSLI HJARTARSON
„Það hefði verið betra að fá eitt gott
hnakkaskot en þetta"
vegar aðeins fimm. Þetta er allt far-
ið,“ sagði Gísli Hjartarson.
Einnig bls. 11
Mestu óeirðir um árabil
500 manns í blóðugum átökum við lögreglu í Oldham á Bretlandi. Spenna milli kynþátta orsökin.
Hague segir fráleitt að tengja sig óeirðum.
london. ap. Brotnir múrsteinar, gler-
brot og brunnin bílhræ var það sem
blasti við íbúum Oldham, nágranna-
bæjar Manchester í gær. Miklar
óeirðir brutust út þar á laugardags-
kvöld milli ungmenna af asísku bergi
brotnu og lögreglunnar. Stöku bardag-
ar brutust út í gær en lögreglan hafði
mikinn viðbúnað til að koma í veg fyr-
ir að fjöldaóeirðir brytust út á ný.
Kveikja óeirðanna á laugardagskvöld
virðist hafa verið þegar hvít ung-
menni réðust til atlögu á heimili í
hverfi þar sem fiestir íbúanna eru frá
Pakistan, Bangladesh eða Indlandi.
Mikil spenna hefur verið í Oldham
undanfarið á milli kynþátta.
íbúar Oldham
voru felmtri slegnir
vegna óeirðanna,
sem stóðu í sjö tíma
og tóku 500 manns
þátt í þeim þegar
mest var. Múrstein-
um og eldsprengjum
var varpað að lög-
reglumönnum. 20
manns særðust í
átökunum, þar af 15 lögreglumenn og
voru 17 ungmenni handtekin.
Leiðtogar samtaka asískra ung-
menna hvöttu til þess að láta ekki við-
líka atvik gerast á ný. „Við verðum að
vera gulltryggja að þetta gerist ekki
aftur, gærdagurinn var undantekning
og við verðum að hverfa aftur til eðli-
legs lífs,“ sagði Ashid Ali, formaður
samtaka ungmenna frá Bangladesh, í
samtali við BBC í gær. Hann sagði
mikilvægt að hafa í huga að hvítir
öfgamenn hefðu reynt að espa upp
Asíubúa undanfarnar vikur.
Asíubúar hafa undanfarið sakað
lögregluna í Oldham fyrir að hafa ekki
brugðist sem skyldi við árásum hvítra
kynþáttahatara. Þessu vísaði yfirmað-
ur lögreglunnar, Erik Hewett, á bug í
samtali við BBC. Vegna þeirrar spen-
nu sem ríkt hefur í bænum undanfarið
voru pólitískar samkundur bannaður
fyrr í mánuðinum en hvítir öfgamenn
hafa hunsað það bann.
Simon Hughes, talsmaður Frjáls-
lyndra demókrata, sagði að verið gæti
að óeirðirnar tengdust kosningabar-
áttunni í Bretlandi en íhaldsmenn
hafa sætt nokkrum ámæli fyrir að
gera málefni flóttamanna að kosn-
ingamáli nú í kosningabaráttunni.
William Hague, leiðtogi íhalds-
manna, sagði ásökunina vera út í hött,
málefni flóttamanna væru allt annað
mál en kynþáttafordómar. Jack Straw,
innanríkisráðherra Bretlands, snerist
Hague til varnar í gær og sagði fráleitt
að tengja Hague við óeirðimar. Pat-
BARIST AÐ NÆTURÞELI
Óeirðalögreglan stóð í ströngu I Oldham
aðfaranótt sunnudags.
ricia Hewitt, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, sagði hins vegar að málefni
flóttamanna væru oft notuð sem aðferð
til að æsa upp kynþáttafordóma. ■
—♦—
20 manns
særðust í
átökunum,
þar af 15
lögreglumenn
og voru 17
ungmenni
handtekin.
—4---
Mið-Austurlönd:
Hvatt til
vopnahlés
jerúsalem. ap. William Burns, nýskip-
aður erindreki Bandaríkjamanna í
ísrael, átti fund með Yasser Arafat,
leiðtoga Palestínumanna og Ariel
Sharon, forsætisráðherra Israel í
gærdag. Burns hvatti leiðtogana til
þess að fyrirskipa vopnahlé og fara
að niðurstöðum Mitchell-nefndar-
innar, alþjóðlegrar nefndar sem skil-
að hefur tillögum að úrlausn mála í
Mið-Austurlöndum. Aðeins fáeinum
klukkustundum áður en Burns hitti
Arafat sprungu tveir bílar upp í mið-
borg Jerúsalem. Engan sakaði í
sprengjunum sem íslamskir öfga-
menn stóðu fyrir.
Ferð Burns til ísrael er fyrsta til-
raún Georgs W. Bush, Bandaríkja-
forseta, til að hafa afskipti af átök-
SPRENGT í JERÚSALEM
Slasaðri konu komið af slysstað í kjölfar
sprengingarinnar i Jerúsalem í gær
unum í Mið-Austurlöndum sem for-
veri hans í embætti, Bill Clinton,
hafði mikil afskipti af. Eftir fundina
samþykktu ísraelar og Palestínu-
menn að hefja viðræður öryggisfull-
trúa þeirra að þyí er ísraelskt sjón-
varp greindi.frá. Þær viðræður hafa
legið niðri í niánuð. ■
Margir á faraldsfæti:
Sumartraffíkin hafin
umferð Gífurlega mikil umferð var
um Borgarfjörð og Selfoss um helg-
ina. Að sögn lögreglunnar á þessum
stöðum er engum blöðum um það að
fletta að sumartraffíkin er hafin.
„Það var gríðarlega mikil umferð síð-
degis,“ sagði lögreglan á Selfossi í
samtali við Fréttablaðið. Flestir voru
að koma úr bústöðum í Árnessýslu en
einnig austan úr Rangárvallasýslu og
lengra að.
Lögreglan í Borgarnesi tekur und-
ir það að sumarumferðin sé komin af
stað, hún hafi raunar hafist snemma í
maí í ár enda tíð verið góð. „Þetta var
reyndar óvenjuleg helgi því hún
hófst á miðvikudag, greinilegt að
margir höfðu tekið sér frí á fimmtu-
deginum." Lögreglan á báðum stöð-
um bar ökumönnum ágætlega sög-
una, sagði langflesta aka innan
hraðamarka. Starfsfólk í söluskálum
fer heldur ekki varhluta af því að
FYRSTA FRÍHELGIN
Ökumaður á hraðferð í fríið var tekinn á
140 km hraða í Borgarfirðinum.
sumarið er byrjað. Að sögn Ingi-
bjargar Gestsdóttur, starfsmanns
Hyrnunnar í Borgarnesi, var mjög
mikið að gera um helgina og greini-
legt að margir voru á leið úr og í suin-
arbústaöi. Næstu helgi megi hins
vegar búast við jafnyel enn meiri
umfei'ðV dnda hvíjasunna. ■