Fréttablaðið - 11.06.2001, Qupperneq 2
r
Á að hefja hvalveiðar á ný?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
22%
íslensk Auðlind
L æ k j a r t o r g i
Haínarstræti 20. 2h
101 Revkjavik
Vr/wv/.audlind.is
Öflugur hverfispöbb
Vorum að fá á söluskrá okkar öflugan hverfispöbb með mjög góða
viðskiptavild. Fyrirtækið er rekið í leiguhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík.
Allar nánari uppl. gefnar á skrifstofu
Þekktur grillstaður
A söluskrá er til sölu einn af þekktari matsölustaðum Reykjavíkur
sem rekinn hefur verið með miklum myndarbrag til margra ára. Fín við-
skiptavild, gott húsnæði og vel tækjum búið fyrirtæki.
Innflutningur-Heildsala
Erum með á skrá mjög gott og þekkt fyrirtæki sem þjónað hefur
landanum til margra ára með miklum myndarbrag. Þarna er á ferðinni
innflutningsfyrirtæki með umboð sem tengist íþróttafatnaði skóm og fl.
Athugið
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur allar gerðir af fyrirtækj-
um á skrá.
Fyrirtækjasala I Fasteignasala I Leigumiðlun I Lögfræðiþjónusta
KJÖRKASSINN
FRETTABLAÐIÐ
11. júní 2001 MÁNUDACUR
Heióursviðurkenningar Sjómannadagsráðs:
Sjómenn heiðraðir
sjómannapagur Sjómannadagsráð
veitti fimm sjómönnum heiðurs-
merki í tilefni sjómannadagsins. Þeir
eru: Aðalsteinn Gunnarsson, loft-
skeytamaður sem hóf sjómennsku
1948 og var í áhöfn togarans Júpiters
þegar 26 mönnum var bjargað i ofsa-
veðri í febrúar 1962. Georg Stefáns-
son Scheving, skipstjóri sem hóf sjó-
mennsku 14 ára gamall árið 1951 og
var um áratuga skeið stýrimaður og
skipstjóri farskipa Sambandsins.
Guðbjörn Axelsson, vélstjóri sem
stundaði sjóinn á ýmsum skipum í 45
ár og er enn að á eigin trillu. Harald-
ur Kristinn Jensson, skipstjóri sem á
50 ára sjómannsferil að baki, m.a. á
Fossum Eimskipafélagsins og skip-
um Sementsverksmiðjunnar. Rúdolf
I TILEFNI DACSINS
Þessir sjómenn eiga það sameiginlegt að
hafa lagt af mörkum óeigingjarnt starf á
sjó um áratuga skeið. Sjómannadagsráð
heiðraði þá í tilefni dagsins.
Kristinn Kristinsson, háseti hóf sjó-
mennsku 1958 og var meðal annars á
Þormóði Goða í veðurofsanum mikla
við Nýfundnaland árið 1959.■
Samningur við launa-
nefnd sveitarfélaga:
Þroskaþjálfar
kolfelldu kjara-
samning
kjaramál Þroskaþjáifar á lands-
byggðinni felldu kjarasamning þann
sem félag þeirra gerði við launa-
nefnd sveitarfélaga í síðustu viku.
Um 70% þeirra sem atkvæði greiddu
voru ósáttir við samninginn. Þroska-
þjálfar funduðu með samninganefnd
Reykjavíkurborgar í gær, en þeir síð-
arnefndu höfðu vonast til að geta haft
samninginn við launanefnd sveitarfé-
laga til viðmiðunar þegar samið yrði
um kjör þroskaþjálfa í Reykjavík. Að
sögn Sólveigar Steinsson formanns
þroskaþjálfaféiagsins kom ekkert
nýtt fram á fundinum en næsti fund-
ur verður á þriðjudag þar sem
þroskaþjálfar leggja fram tilboð. ■
—*—
Tékkland:
Kúariðusmit í
Tékklandi
Japan:
Brjálaður maður myrti átta skólabörn
osaka. japan. ap. Átta börn létust og 15
særðust á föstudag þegar maður
vopnaður hnífi réðist að hópi krakka
í barnaskóla í Japan og byrjaði að
stinga alla þá sem á vegi hans urðu.
Þeir sem urðu fyrir árásinni voru að
mestu sjö og átta ára gömul börn, en
skólinn er staðsettur í Ikeda í vestur-
hluta Japan. Sjö börn af þeim átta
sem létust voru stúlkur. Árásamaður-
inn, hinn 37 ára gamli Mamoru
Takuma, á við andlega vanheilsu að
stríða og er fyrrum húsvörður við
nærliggjandi skóla. Hann hefur
aldrei lent á sakaskrá. Tvö barnanna
létust á staðnum, en hin sex létust á
sjúkrahúsi af sárum sínum. Af þeim
15 sem særðust eru 13 börn og tveir
kennarar.
Að sögn lögreglunnar klifraði
Takuma upp á verönd til að komast
inn í kennslustofu sem var á fyrstu
hæð skólans. Þar hóf hann þegar í
stað að leggja með stórum hnífi til
barnanna sem staðsett voru aftast í
stofunni. Þvínæst fór hann út úr stof-
unni, særði nokkur börn á leiðinni
fram á gang og hélt síðan inn í þá
næstu. Þar var hann loks yfirbugaður
af tveimur kennurum og skömmu
síðar handtekinn. Var Takuma sjálfur
slasaður að því er virðist eftir að
hafa áður reynt að fremja sjálfs-
morð.
Takuma var handtekinn í mars
árið 1999 eftir að hafa verið sakaður
um að setja róandi lyf í te fjögurra
kennara í skólanum sem hann vann,
SORG
Japönsk skólabörn standa sorgbitin fyrir
utan skólabygginguna eftir að hafa verið
látin rýma húsið vegna brjálaðs morðingja.
en var ekki dæmdur sekur vegna
geðrænna vándamála. ■
Harmleikurinn í Nepal:
Nýi konungurinn
mætir andstöðu
katmanpu. ap Rannsóknarnefnd sem á
að gera Nepalbúum grein fyrir því
hvað gerðist þegar konungsfjöl-
skyldan var myrt bað í gær um fjög-
urra daga frest til þess að skila
skýrslu um málið. Nefndin hefur
m.a. kallað til dómara, réttarlækna,
herforingja og vopnasérfræðinga en
nýi konungurinn hefur fallist á frest-
inn.
Margir eiga erfitt með að trúa
frásögnum sjónarvotta af harm-
leiknum í konungshöllinni þann 1.
júní síðastiðinn þegar Dipendra
krónprins er sagður hafa skotið tii
bana nánast alla konungsfjölskyld-
una og að lokum fyrirfarið sjálfum
sér.
Samsæriskenningar heyrast um
að Gyanendra, hinn óvinsæli nýi
konungur, hafi átt hlut að máli sem
og Paras, sonur Gyanendras.
Uppreisnarhópar maóista, sem
ekki hafa notið mikils stuðnings al-
mennings, virðast ætla að notfæra
sér óstöðugleikann sem fylgt hefur
harmleiknum og konungsskiptunum.
Meira en 1600 manns hafa látið
lífið í átökum við maóista frá því
1996. ■
prag. tékklanpi. ap. Seinna próf hefur
staðfest að kúariða hafi greinst í kú
sem slátrað var í Tékklandi á dögun-
um. Að sögn þarlendra heilbrigðisyf-
irvalda á þó enn eftir að framkvæma
ýmis önnur próf í tengslum við málið.
Tíðindin eru talin mikið áfall fyrir
tékkneska bændur sem hingað til
hafa talið landið vera algerlega laust
við kúariðu. ■
—«—
Noregur:
Níræður
útkastari
osló. ap Lögreglan í Stavangri á Nor-
egi hefur gert öllum krám í bænum
skylt að ráða sér útkastara. Odd Nor-
eger, eigandi krárinnar Skjen-
kestuen, brást skjótt við og réð elsta
fastagestinn sinn sem útkastara. Nýi
útkastarinn er 91 árs gömul kona,
Marta Aurenes að nafni. Og hún er
sögð vera ekkert lamb að leika við.
„Ég get verið býsna ströng ef ég þarf
þess,“ segir hún. „Satt að segja er ég
góð að tala fólk til, miklu betri en að
nota hnefana." ■
Spurning dagsins í dag:
Canga tóbaksvarnarlögin of langt?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þfna skoðun I
STÓRBRUNI HJÁ STRÝTU
Slökkviliðið gekk vasklega fram ( baráttunni við eldinn hjá Strýtu á Akureyri, en fullur tankur af bensíni var i 30 metra fjarlægð. Tugmilljóna tjón varð í brunanum.
Svartur reykur um alla Eyri
Fullur tankur af bensíni í þrjátíu metra fjarlægð frá logandi fiskikössum Strýtu á Akureyri.
Margbúið að vara menn við að hafa kassana svo nálægt húsum.
bruni Litlu munaði að stórslys yrði
þegar kviknaði í hjá Strýtu á Akur-
eyri sem er dótturfyrirtæki Sam-
herja. Þegar slökkvilið kom á stað-
inn logaði þegar mikill eldur og
bensíntankur frá Esso var í um 30
metra fjarlægð frá eldhafinu. Lík-
legast er talið að um íkveikju sé að
ræða, en engin önnur skýring virðist
haldbær önnur en sú að eldsvoðinn
hafi verið af mannavöldum. Vitni
sáu krakka á hlaupum þaðan sem
eldurinn kviknaði, en ekkert hefur
fengist staðfest um að hverjum
grunur beinist Málið er í rannsókn
hjá rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri.
Það tók Slökkvilið Akureyrar
ekki nema þrjár mínútur að koma á
vettvang, en Jón G. Knútsen varð-
stjóri sagði það hafa komið mönnum
á óvart hversu seint var kallað í
slökkviliðið. „Það er í raun furðulegt
miðað við eldinn og reykinn að eng-
inn skyldi verða eldsins var fyrr.
Það var sótsvartur reykur um alla
Eyri.“ Hann segir að strax hafi ver-
ið gerðar ráðstafanir til að verja
nærliggjandi hús og bensíntankinn.
„Við snérum okkur strax að því að
verja nærliggjandi byggingar þar
sem ekkert var við eldinn ráðið,“
segir Jón.
Jón segir að fiskikassar séu al-
gjör plága, því þeir fuðri upp á svip-
stundu. „Það er margbúið að brýna
það fyrir mönnum að stafla ekki
fiskikössum upp við hús.“ Hann seg-
ir aðstæður svipaðar þegar íshúsfé-
lag Vestmannaeyja brann. „Hafgol-
an og hversu snemma við komum á
vettvang kom í veg fyrir að ekki
færi verr.“
Aðalsteinn Helgason fram-
kvæmdastjóri landvinnslu Samherja
segir að um 300 tonn af óunninni
rækju hafi eyðilagst í eldinum. Ljóst
sé að tjón skipti tugum milljóna, en
það verði metið á næstu dögum
Hann minnist hins vegar ekki
ábendinga um að hafa ekki fiski-
kassa upp við húsin og segist ekki
vilja skiptast á gagnrýni við slökkvi-
liðið. „Við höldum vinnslunni áfram
þrátt fyrir þetta, þó hún verði eitt-
hvað hægari næstu daga.“ ■
ENCIN MISKUNN
Góður meirihluti þeirra
sem greiddu atkvæði
á Visi vilja að islend-
ingar taki aftur upp
hvalveiðar, hvalskurð -
og át og útflunting á
hvalaafurðum.