Fréttablaðið - 11.06.2001, Page 6
SPURNING DAGSINS
Af hverju stundar þú björgun-
arsveitarstörf?
í upphafi var það vegna ævintýraþrár. Siðan
má segja að ég hafi ánetjast þessu og þetta
er orðið nokkurs konar lífsstíil. Þetta er líka
gefandi og þakklátt, það er alltaf gaman að
láta gott af sér leiða til samfélagsins.
Árni Birgisson er 31 árs upplýsingafulltrúi Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar. Hann hefur verið f
björgunarsveitarstörfum í 15 ár.
SVEINN MAGNÚSSON HJÁ GEÐHJÁLP
Hann segir slæmt að sitja beggja vegna
borðsins.
Geðhjálp:
Skilar af sér
stuðnings-
þjónustunni
geðhjAlp Félagsþjónustan í Reykjavík
og svæðisskrifstofa um málefni fatl-
aðra í Reykjavík taka við rekstri
stuðningsþjónustu þeirrar sem hing-
að til hefur verið innan starfssviðs
Geðhjálpar í haust. Sveinn Magnús-
son framkvæmdastjóri Geðhjálpar
segir að nú sé unnið að greinargerð
þar sem áhersla sé lögð á að helstu
breytingar verði komnar í ákveðinn
farveg fyrir l.september þegar nýju
rekstraraðilarnir taka við. Þar á hann
til að mynda við endurnýjun á hús-
næði við Vesturgötu, úrbætur í lyfja-
málum og allri faglegri aðkomu. Auk
þess er áætlað að bæta við starfs-
fólki.
Stjórn Geðhjálpar sem kosin var í
Iok apríl tók ákvörðun um það að
óska eftir því við ofangreinda aðila
að samningurinn um stuðningsþjón-
ustuna yrði ekki endurnýjaður.
Sveinn telur það hafa verið mikil-
vægt að breyta um rekstraraðila því
„það er talið illgerlegt að við stönd-
um í rekstri á svona búsetuþjónustu
fyrir okkar skjólstæðinga þar sem
við fáum greitt fyrir að reka svona
þjónustu, en jafnframt að vera hags-
munasamtök sem sjá til þess að þeir-
ra hagsmuna sé gætt. Það er slæmt
að sitja þannig beggja megin við
borðið", segir Sveinn. ■
Forseti
Evrópuráðs-
þingsins á
Islandi
heimsókn Forseti Evrópuráðsþings-
ins, Russel-Johnson lávarður, er nú
hér á landi í opinberri heimsókn í
boði Halldórs Blöndal, forseta Al-
þingis. í dag ræðir hann meðal ann-
ars við forseta Alþingis, forseta ís-
lands og utanríkisráðherra, auk þess
sem hann heimsækir Listasafn ís-
lands. Eftir kl. 15:00 í dag verður
blaðamönnum gefinn kostur á viðtöl-
um við Russel-Johnson. Á morgun
fer hann ásamt föruneyti sínu í skoð-
unarferð um Suðurland og halda þeir
síðan af landi brott miðvikudaginn
13. júní. ■
FRETTABLAÐIÐ
11. júní 2001 MÁNUDAGUR
Bandaríkin:
Lífseigasta
ljósapera í heimi
reuters. Bærinn Livermore í Kali-
forniufylki undirbýr nú afmæli ljósa-
peru einnar sem lýst hefur samfleytt
í 100 ár án þess að hafa nokkru sinni
dáið út. „Þrátt fyrir að ekkert í heimi
þessum vari að eilífu þá hefur þessi
ljósapera virkilega staðist tímans
tönn í gegnum árin,“ sagði Lynn
Owens, fyrrverandi deildarstjóri
slökkviliðs bæjarins og formaður 100
ára ljósaperunefndarinnar. „Hún hef-
ur lifað á tímum jarðskjálftans mikla
í San Francisco, þegar fyrsti maður-
inn gekk á tunglið og þegar fyrsta
bifreiðin kom á markað. Ef að þessi
ljósapera gæti talað, þá hefði hún svo
sannarlega frá miklu að segja,“ bætti
Owens við. Ljósaperan, sem er fjög-
urra watta, var fyrst sett upp í
slökkvistöð bæjarins árið 1901 og þó
svo að slokknað hafi á henni tíma-
bundið þegar hún var flutt á nýja
slökkvistöð árið 1974, þá lét hún það
ekki á sig fá og hefur haldið áfram að
loga allar götur síðan. Að því er kem-
ur fram á fréttavef Reuters, hefur
hún þegar verið skráð í heimsmeta-
bók Guinness sem elsta starfandi
ljósapera í heiminum. ■
Fjármálahneykslið í
Þýskalandi:
Kohl laus
allra mála
berlin. flp. Sækjendur í glæparann-
sókninni á hendur Helmut Kohl,
fyrrverandi kanslara Þýskalands,
hafa formlega lagt mál sitt niður
eftir að Kohl ákvað að borga sekt
vegna hlutdeild sinnar í fjármála-
hneykslinu sem flokkur hans átti
þátt í. Samningur var gerður í
marsmánuði í Bonn, á milli Kohl og
sækjenda málsins, þar sem Kohl
féllst á að greiða 140 þúsund doll-
ara sekt fyrir að hafa tekið við
ólöglegum fjárframlögum til kosn-
ingabaráttu kristna demókrata-
flokksins meðan hann var í emb-
ætti, gegn því að málið yrði síðan
látið niður falla. Ekki hefur því enn
verið sannað hvort Kohl hafi brotið
lög. Lögfræðingur hans hélt því
fram skömmu eftir undirskriftina
að hún þýddi greinilega að hann
væri saklaus af öllum ásökunum
um lögbrot.
Rannsókn málsins hefur staðið
yfir frá því í janúar á síðasta ári,
Búnaðarbanki:
Enn til
rannsóknar
innherjavidskipti Hjá embætti Ríkis-
lögreglustjóra er enn
verið að vinna að rann-
sókn á því hvort nokkrir
starfsmenn og stjórnend-
ur Búnaðarbanka íslands
hafi notfært sér innan-
hússupplýsingar til að
hagnast á hlutabréfavið-
skiptum. Jón H. Snorra-
son, lögfræðingur hjá
Ríkislögreglustjóra sagði
að verið væri að fara í
gegnum gögn sem málinu
tengjast en sagði ekki ljóst hvenær
rannsókn málsins kynni að Ijúka. ■
BUNAÐ-
ARBANK-
INN
Óvist er
hyerlær
rannsókn
lýkur.
Betra að vinna hvalveiðum
fylgi innan ráðs en utan
GETUR ANDAÐ LETTAR
Helmut Kohl, fyrrverandi kanslari Þýskalands, hetur borgað sekt tyrir aðild sína í fjármála-
hneykslinu, sem svo sannarlega hefur skaðað mannorð hans. Réttarhöldunum er loksins
lokið, en eitt og hálft ár er síðan málið fór af stað.
þegar Kohl játaði að hafa tekið við
fjárframlögum án þess að gerð hafi
verið grein fyrir þeim, en hann hef-
ur hins vegar staðfastlega neitað
að tilgreina hverjir það voru sem
létu peningana af hendi rakna. ■
Skuldastaða Reykjavíkur
Beita vísvitandi
blekkingum
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, borgarstjóri, segir að
sjálfstæðismenn beiti vísvitandi
blekkingum í umfjöllun sinni um
fjármál Reykjavíkurborgar til að
gera stöðu borgarinnar tortryggi-
lega. Ólíkt því sem sjálfstæðismenn
haldi fram hafi Reykjavíkurborg
gengið betur að greiða niður skuldir
sínar en ríkissjóði.
„Það er rangt hjá sjálfstæðis-
mönnum að skuldir Reykjavíkur-
borgar hafi aukist“, segir Ingibjörg
Sólrún. „Hvað þá að þær hafi aukist
umfram það sem er hjá öðrum sveit-
arfélögum og ríkinu." Ingibjörg segir
sjálfstæðismenn bera skuldir borgar-
sjóðs og borgarfyrirtækja saman við
skuldir ríkissjóðs án ríkisfyrirtækja
og annarra sveitarfélaga án þeirra
fyrirtækja. „Það er ekki verið að
bera saman sambærilega hluti og
staðan væntanlega önnur ef t.d.
Landsvirkjun og íbúðalánasjóður
væri tekinn með í myndina."
Ingibjörg segir ennfremur að með
því að bera saman borgarsjóð, ríkis-
sjóð og sjóði annarra sveitarfélaga
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR,
BORGARSTJÓRI
„Það er rangt hjá sjálfstæðismönnum að
skuldir Reykjavíkurborgar hafi aukist"
komi í ljós að Reykjávíkurborg hafi
gengið lengst í því að greiða niður
skuldir sínar. Skuldir borgarsjóðs
hafi lækkað um nær helming meðan
skuldir ríkissjóðs hafi lækkað um
fimmtung. ■
Níu ára veru íslands utan Alþjóðahvalveiðiráðsins lokið. Aðild að ráðinu sögð forsenda fyrir því að íslendingar
geti hafið hvalveiðar á nýjan leik. Fyrirvari gerður við núll-kvótann sem bannar hvalveiðar.
hvalveiðar Þróun undanfarinna ára
hefur gert það að verkum að íslensk
stjórnvöld telja nú að hagsmunum ís-
lendinga sé betur borgið innan Al-
þjóðahvalveiðiráðsins en utan þess
sagði Árni Matthiesen sjávarútvegs-
ráðherra þegar hann kynnti þá
ákvörðun íslenskra stjórnvalda að ls-
land verði aftur aðili að ráðinu.
Þrátt fyrir að gengið hafi verið í
Alþjóðahvalveiðiráðið á ný segir Árni
að engin ákvörðun hafi verið tekin
um að taka upp hvalveiðar. Tvær
ástæður kæmu í veg fyrir að hval-
veiðar yrðu hafnar á nýjan leik. í
fyrsta lagi geti menn ekki fullyrt að
hægt væri að selja hvalaafurðir til út-
landa og í öðru lagi væri um að ræða
almenna afstöðu annarra ríkja við af-
stöðu íslendinga. Þó óljóst sé með
hvort hvalveiðar verði hafnar á nýjan
leik segir Árni það lykilatriði að vera
í Alþjóðahvalveiðiráðinu ef íslend-
ingar hyggjast hefja hvalveiðar á
nýjan leik. „Ég tel mig geta fullyrt að
Japanir muni ekki kaupa hvalaafurð-
ir frá nokkru því landi sem stendur
utan Alþjóðahvalveiðiráðsins."
Árni sagði að það væru engin stór-
tíðindi sem hefðu ráðið því að nú
væri tekin ákvörðun um að ganga í
Hvalveiðiráðið á nýjan leik. Menn
hefðu hins vegar metið stöðuna þan-
nig að mál hefðu þróast í þá átt að
vera í Alþjóðahvalveiðiráðinu væri
fýsilegur kostur á nýjan leik og for-
senda þess að hægt væri að hefja
hvalveiðar á nýjan leik með það fyrir
augum að selja afurðir til útlanda.
Eins og staðan væri í dag teldu ís-
lensk stjórnvöld heppilegra að ganga
INNGANGA í ALÞJÓÐAHVALVEIÐIRÁÐIÐ KYNNT
„Alltaf betra að sitja við borðið en bíða úti á gangi" sagði Eiður Guðnason, sendiherra, og skýrði þannig breytta afstöðu stjómvalda til að-
ildarinnar að ráðinu.
aftur í Alþjóðahvalveiðiráðið og
vinna stefnunni um sjálfbærar hval-
veiðar fylgi á þeim vettvangi en að
standa áfram utan ráðsins.
Aðspurður neitaði Árni því að með
þessu væri verið að viðurkenna að
úrsögnin úr ráðinu á sínum tíma
hefði verið mistök. Á þeim tíma hefði
verið álitið að vinna mætti að fram-
gangi málstaðs fslendinga með öðr-
um hætti. Þrátt fyrir að það hefði
ekki gengið upp væri staða íslands
sterkari með því að gerður væri fyr-
irvari við núll-kvótann sem bannar
hvalveiðar. ■