Fréttablaðið - 11.06.2001, Page 11
MÁNUPAGUR 11. júní 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Raforkubændur á Vestfjörðum:
Hafa gert árssamning við Orkubúið
RAFBÆNDUR
Ný búgrein hefur rutt sér til rúms, en tjændur á Vestfjörðum
eru að undirbúa litlar virkjanir þar sem þeir ætla að framleiða
rafmang til sölu.
Ný bandarísk rannsókn:
Offita
hættulegri
en reykingar
los angeles. ap. Fullorðið fólk sem þjá-
ist af offitu á við fleiri ólæknandi
sjúkdóma að stríða en reykinga-
menn, ofdrykkjumenn og fátækt
fólk. í könnuninni kemur fram að
fólk sem á við offituvandamál að
stríða á við næstum helmingi fleiri
ólæknandi sjúkdóma að stríða en fólk
sem er í kjörþyngd. „Við áttum ekki
von á svona miklum mun,“ sagði Rol-
and Sturm, sem sá um könnunina
fyrir hönd RAND stofnunina og var
nýlega birt í breska blaðinu Public
RANNSAKAR OFFITU
Samkvæmt rannsókninni er fólk sem þjáist
af offitu í stærri áhættuhópi hvað varðar
ólæknandi sjúkdóma, en t.d. reykinga-
menn.
Health. Könnuninn sýndi einnig fram
á að reykingar skaða konur meira en
karla. Kvenkyns reykingamenn þjáð-
ust í 40% fleiri tilvikum af ólæknandi
sjúkdómum en þeir sem ekki reykja,
en talan var hins vegar 30% fyrir
karlkyns reykingamenn. ■
raporka Orkubú Vestfjarða hef-
ur nú gert raforkusamning við
Birki Friðbertsson á Botni í
Súgandafirði sem ráðgerir að
virkja orku úr Langá (Botnsá).
„Orkubúið lítur til þess að stað-
setning er góð, við endastöð á
raflínu svo lítið spennufall
verður og orkan nýtist því vel“,
segir Birkir. Ekkert uppistöðu-
lón er á staðnum svo hér verður
um rennslisvirkjun að ræða.
Birkir telur að hægt verði að
virkja um 230 kílóvött á klst. og
upp í 500 þegar rennsli verður
mikið. Framkvæmd þessari fylgja
fjárfestingar upp á um 40 milljónir í
búnaði á borð við rafal og vatnsvél
(túrbínu). Mikið vatn mun þó renna til
sjávar áður en Birki tekst að virkja
það, því fyrsta skrefið er að ljúka und-
irbúningi þeim sem felst í
byggingu stöðvarhúss, niður-
setningu röra og ganga frá inn-
taksþró. Að því loknu er fyrst
hægt að koma fyrir véiunum
sem Birkir á enn eftir að panta,
en þær hafa að hans sögn 6-7
mánaða afgreiðslutíma. Mark-
mið Birkis er að hefja virkjun
um næstu áramót, en samning-
ur hans við Orkubúið er til eins
árs, uppsegjanlegur af beggja
hálfu. En Birkir er ekki einn
um áætlanir af þessu tagi því
Sigurður Magnússon á Fremri
Tungu er með raforkuáætlanir líka og
staðan í undirbúningi hjá honum er að
sögn svipuð. ■
Skipulags og byggingarnefnd veitir verðlaun:
Samkeppni um
bestu hönnunina
HÚSBYGGINGAR HÚS ís-
lenskrar erfðagrein-
ingar sem nú er að
rísa í Vatnsmýrinni,
er ein af fimm bygg-
ingum sem hlýtur
viðurkenningu skipu-
lags- og byggingar-
nefndar Reykjavíkur
fyrir framúrskarandi
hönnun. Hinar bygg-
ingarnar sem til
greina koma koma
sem besta verkefni
síðasta árs eru: Borg-
artún 19, hönnuðir
Ásgeir Ásgeirsson og
Ivon Stefán Cilia,
Kristnibraut 1-9,
hönnuðir Sigríður
Magnúsdóttir og
Hans-Olav Andersen,
samstarfsarkitektar eru Laufey Agn-
arsdóttir og Sveinn Bragason, Ólafs-
geisli 103, hönnuður Sigurður Hall-
grímsson og Skildinganes 11, þar sem
hönnuðir eru Davíð Kristján Pitt og
Kristján Garðarsson. Viðurkenningar
verða veittar í Ráðhúsi Reykjavíkur
19. júní og þá verður
tilkynnt hvaða bygg-
ing var valin best á
síðastliðnu ári.
Mannvirkið í
Vatnsmýrinni er það
stærsta og ganga
byggingarfram-
kvæmdir þar nú
afar hratt. Hönnuðir
eru arkitektarnir
Ingimundur Sveins-
son, Jóhann Einars-
son og Ólafur Axels-
son. Húsið, sem er
sérhæft atvinnuhús-
næði, skiptist í aðal-
atriðum í rannsókn-
arbyggingu í tveim-
ur álmum, skrif-
stofubyggingu og al-
mennt rými með
fyrirlestrarsal, búningsherbergjum
og kaffistofu. Bílastæðum er að
mestu komið fyrir í tveimur bíla-
geymsluhúsum. Heildarstærð er tæp-
ir 16.000 fermetrar auk bílageymslu-
húsa. Verktaki er byggingarfyrirtæk-
ið Eykt. ■
HÚS ÍSLENSKRAR ERFÐAGREIN-
INGAR f VATNSMÝRI.
Hönnuðurnir Ingimundur Sveinsson,
Jóhann Einarsson og Ólafur Axelsson
fá viðurkenningu fyrir framúrskarandi
hönnun.
SYRGJENDUR I FLÓTTAMANNABÚÐUNUM
Bedúínakonur í Palestínu söfnuðust saman i Nuseirat flóttamannabúðunum í gær þar
sem jarðarför kvennanna þriggja fór fram.
ísrael:
Þrjár konur myrtar
jerúsalem. ap Skot frá ísraelskum skrið-
drekum urðu í fyrrinótt þremur
palestínskum konum að bana, en
dauðsföll höfðu þá ekki orðið í átökum
ísraelsmanna og Palestínumanna um
viku skeið. Palestínumenn fordæmdu
ísraelsk stjórnvöld vegna þessara at-
burða og greinilegt að engin alvara
væri af Israels háifu með vopnahléð.
Konurnar þrjár, sem voru 65, 46 og
17 ára gamlar, bjuggu í bedúínskum
flóttamannabúðum nálægt landnema-
byggð Gyðinga. ísraelsher segir að
skotið hafi verið þrisvar á flótta-
mannabúðirnar í hefndarskyni vegna
þess að tveir Palestínumenn skutu á
landnemabyggðirnar.
Um það bil þúsund manns tóku
þátt í jarðarför þeirra í gær og hróp-
uðu þátttakendurnir vígorð gegn fsra-
el.
Palestínskir og ísraelskir yfir-
menn öryggismála hittu í gær George
Tenet, yfirmann bandarísku leyni-
þjónustunnar CIA, en hann hvatti þá
til þess að tryggja vopnahléð til þess
að undirbúa jarðveginn fyrir friðar-
viðræður. ■
Skotárás í Osló:
Sex manns særðust
osló. ap Sex manns særðust, þar af
þrennt alvarlega þegar maður tók
skyndilega að skjóta úr byssu inni á
fjölmennum skemmtistað í miðborg
Osló snemma í gærmorgun.
Maðurinn flúði af vettvangi, en
norska lögreglan sagðist síðdegis í
gær hafa komist að því hver hafi ver-
ið að verki og bjóst við því að hand-
taka hann fljótlega.
Árásarmaðurinn kom inn á
skemmtistaðinn Baronen og Baro-
nessen í Storgata í Osló um þrjúleyt-
ið í fyrrinótt og skaut sjö eða átta
skotum. Ekkert var vitað um tilefni
árásarinnar í gær. ■
Ógnar stöðugleika
kvótakerfisins
Erfitt að réttlæta lán til kvótakaupa. Sjávarútvegsráð-
herra getur hent einni tegund út úr kvótakerfinu eftir
eigin geðþótta. Þeir sem keyptu steinbít fyrir stuttu eru
með verðlausan kvóta í höndunum.
sjávarútvegur „Ég held að lánastofnan-
ir hafi almennt ekki gert sér grein
fyrir hversu mikil völd sjávarútvegs-
ráðherra hefur í þessum efnum. Þetta
mun hafa veruleg áhrif í framtíðinni
ef sjávarútvegsráðherra getur hent
heilu tegundunum út eftir eigin geð-
þótta. Þá verður mjög erfitt fyrir
lánastofnanir að réttlæta lán til að
kaupa á kvóta fyrir þessar tegundir.
Alla vega á það við um aukategundirn-
ar,“ segir Árni S. Guðmundsson hjá
Kvóta- og skipasölunni ehf. en hann
telur ákvörðun sjávarútvegsráðherra
um að afnema kvóta á steinbít grunn-
hyggna og að hún geti haft veruleg
áhrif í framtíðinni. Með henni hafi
stöðugleiki kerfisins minnkað og
mönnum sé Ijóst að ákvörðun eins
manns geti gert kvóta verðlausan.
Ákvörðun um að taka steinbít út úr
kvótakerfinu kom flatt upp á menn.
Árni segir að ráðherra hefði átt að til-
kynna þessa fyrirætlan með a.m.k.
árs fyrirvara svo menn gætu undirbú-
ið breytingarnar. Margir voru nýbún-
ir að kaupa steinbítskvóta sem nú er
orðinn verðlaus. Fyrirtæki og einstak-
lingar hafi jafnvel veðsett kvótann
eins og annað auk þess að leggja veru-
legt fjármagn til kaupanna sjálfra.
Árni segist ekki vita hvaða við-
VEÐSETNING KVÓTA
„Ég held að lánastofnanir hafi almennt
ekki gert sér grein fyrir hversu mikil völd
sjávarútvegsráðherra hefur í þessum efn-
um", segir Árni S. Guðmundsson
brögð þetta veki hjá þeim sem gera
út á veiðar á flatfiski - en þeir geta
jafnvel óttast að flatfiskur verði tek-
inn úr kvóta næst - rétt eins og stein-
bítur nú. Óttast er að sókn í steinbít
verði mjög mikil og að stofninn kunni
að skaðast af mikill sókn og eins er
uggur í mörgum um hvort þetta muni
auka brottkast - þar sem nánast von-
laust er að bátar fiski einungis stein-
bít. ■
Quelle
Snyrtitaska.
Fullkomin geymsla fyrir snyrti og
förðunarvörurnar. Fjöldin allur af
þægilegum hótfum og hirslum.
Verð aóeins kr. 2290
Feróatöskusett ~ ▼
6 hluta sett - þú hefur réttu töskuna fyrir
öll feróalög. Vandað sett á einstöku verði
Veró aóeins kr. 6790
Stakar töskur á hjóium
Einstaktega fallegar og vandaóar töskur.
Mörg aukahólf, styrktar á hornunum.
Verð aðeins kr. 1690 - 2390 - 4490
Bakpokí -
Microfaser w
Gott efni, ótal Feróataska á hjótum
hólf, stór og smá Hún stó i gegn!
m.a. fyrir síma. Fatleg, vönduó og notadrjúg,
Töskur - töskur
í bæinn, í sundið, í leikfimina.
Passa alls staóar, 3 litir. Útsala kr. 599
Shopperr
- ekta sumartaska
Útsala kr, 495
Hnífasett ^
14 hluta hnifasett úr
ryðfriu eðalstáli i *
tréstandi. Vandað sett
á frábæru verði.
Útsala kr. 2490
Borðbúnaóur
24 hluta borðbúnaóur fyrir 6.
Vandað sett úr eðalstáli.
Útsala kr. 1190
Pottasett 4 hluta
Tveir pottar, skaftpottur og panna.Ryófrítt eðalstál,
hitaeinangrandi handföng, orkusparandi botn.
Glæsilegt útlit - Útsala kr. 2990
S Hlutíf*
1 Verá
Matar- og kaffistell
30 hluta Blaue - Rose postulinsstell fyrir 5.
Afar fallegt stell á frábæru verði.
Útsala kr. 5990
4 pottar með loki og skaftpottur. Eðalstál, hert
glerlok með gufurás, tvöfaldur botn, fyrir allar
tegundir eldavéla. Einfatdlega frábært verð.
Útsala kr. 6890
Pottasett 8 hluta.
3 pottar með loki, 2 skaftpottar og 3 stálskálar.
Ryðfrítt eðalstál, hitaeinangrandi handföng, orkusparandi botn.
Frábært sett á ótrúlegu verði. Útsala kr. 4990
Verslun Dalvegi 2 Kópavogi - Sími 564 2000