Fréttablaðið - 11.06.2001, Page 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
11. júr.í 2001 MÁNUDACUR
HVAÐ ERTU AÐ LESA?
Birgir Björgvinsson
sjómaður
Ætli það sé ekki bara Fréttablaðið. Mér
líst svo vel á það og tek það yfirleitt
með mér upp í rúm. ■
1 METSÖLUBÆKURNAR |
TOPP 10 A AMAZON.COM
Q Hampton Sides
GHOST SOLDIER5
David McCullough
10HNADAMS
Michael Pollan
THE BOTANY OF DESIRE
Q James Bamford
BODY OF SECRETS
Q Sue Crafton
P IS FOR PERIL
Q Maria Bartiromo
USE THE NEWS
Nora Roberts
DANCE UPON THE AIR
Bruce H. Wilkinson
THE PRAYER OF JABEZ
Q Yogi Berra, Dave Kaplan
FORK IN THE ROAD
Peter Greenberg
THE TRAVEL DETECTIVE
Fjölbreytt efni:
Maðurinn
og kartöflur
bækur Á metsölulista Amazon.com
þessa vikuna er einungis að finna
tvær skáldsögur P is for Peril eftir
spennusöguhöfundinn Sue Grafton
og vermir sú bók 5. sætið og Dance
upon the Air eftir Nora Roberts í 7.
sæti. Hinar eru allt frá sögum um
björgunarleiðangur í seinni heims-
styrjöldinni sem vermir 1. sætið til
ferðahandbókar sem leiðbeinir um
hvernig og hvar hægt sé að fá sem
bestu þjónustu og hagstæðasta verð á
ferðalögum og er sú í 10. sæti. í öðru
sæti er ævisaga John Adams sem
kosinn var annar forseti Bandaríkj-
anna, í 3. sætinu er bók eftir Michael
Pollan þar sem hann rekur sögu epla,
kartaflna, kanabis og túlípana, og
tengir þær flóknu sambandi manns-
ins við náttúruna! ■
nm * Mflrim ■ m * um *
m NYIT 'M-m
líYTf
Ný öflug heilsuvara!
Ég missti 11 kg
á 9 vikum!
Takmarkað magn,
iTT MYTT* NYT!
NÝTT * NÝTT - NÝTT - NÝTT« m
ff| Alma s: 694
Sever rafmótorar
Sérpöntum eftlrfarandi:
Bremsumótora
* 2ja hraða mótora
* ein- og 3ja fasa rafala
Sever notar eingöngu
SKF eóa FAG legurl
Eigum til ó lager margar slæröir og geröir af ein- og
3ja fasa rafmótorum á mjög hagstæöu veröl.
Dæmi um verð á einfasa rafmótor með fót:
0,25 kW 1500 sn/min IP-55 kr. 6657 + vsk
Vökvatæki ehf
Bygggörðum 5,170 Seltjamarnesi
Simi 561-2209 Fax 561-2226
Veffang www.volo/ataeki.ís
Netfang vt@vokvataeki.is
Æft fyrir kvennahlaupið:
Enginn keppnisandi
íþróttir Hið árvissa Kvennahlaup
nálgast nú óðum. Á laugardaginn er
haldið af stað og hlaupið, skokkað eða
gengið nokkurra kílómetra vega-
lengd á yfiri 80 stöðum á landinu.
Konur eru að sjálfsögðu farnar að
æfa sig og hafa nokkrir hópar kvenna
hist reglulega undanfarnar vikur til
að hlaupa.
„Þarna koma konur sem annars
myndu ekki leggja í að fara að hlau-
pa, því þær eru margar sem hræðast
svolítið að fara í venjulega hlaupa-
hópa,“ segir Gígja Gunnarsdóttir
GENCIÐ, SKOKKAÐ OG HLAUPIÐ
Þessar hressu konur hafa hist reglulega
í nokkrar vikur til að búa sig undir kvenna-
hlaupið á laugardaginn.
sem unnið að undirbúningi Kvenna-
hlaupsins. „En nú eru þær komnar á
bragðið og þá má kannski búast við
því að sumar haldi áfram. Með þessu
erum við að ná til kvenna í hlaupinu
til þeirra sem eru annars ekki að spá
mikið í íþróttum."
Gígja segir mikla stemmningu í
hlaupahópunum. „Þetta er allt annað
heldur en þegar karlarnir koma. Það
er enginn keppnisandi í þessu heldur
er aðalatriðið að hafa gaman af
þessu. Þær eru ýmist að ganga eða
hlaupa og þar fer bara hver eftir sínu
nefi. Oft eru þetta tvær eða þrjár vin-
konur sem koma saman eða konur af
sama vinnustað sem skjótast þetta í
hádeginu eða eftir vinnu.“ ■
Kynningarstjóri Þjóðleikhússins rær á önnur mið:
Með sex hendur
og tvö höfuð
í ÞJÓÐLEIKHÚSINU
Guðrún J. Bachmann á gamla vinnustaðnum.
MÁNUDAGURINN
II. JÚNÍ
TÓNLIST______________________________
Hljómsveitin Nova leikur á Gauki
á Stöng.
SÝNINCAR
Önnur af sumarsýningum Listasafns
Reykjavíkur - Kjan/alsstaða ber nafnið
Flogið yfir Heklu. Sýningarstjóri er Einar
Garibaldi Eiríksson myndlistarmaður og
prófessor við Listaháskóla íslands. Á sýn-
ingunni getur að líta mismunandi myndir
Heklu sem sýndar verða hlið við hlið.
Sýningin stendur til 2. september.
Hin sýningin sem verður sett upp í mið-
rými Kjarvalsstaða og ber hún yfirskrift-
ina 1461 dagur. Þar sýnir Gretar Reynis-
son verkefni sem hann hefur unnið að
frá 1. janúar 1997 og sér ekki fyrir end-
ann á enn. Þetta er vaxtarverkefni af þeirri
tegund sem á ensku væri kallað „work in
progress. Sýningin stendur til 19. ágúst.
i Stöðlakoti við Bókhlöðustíg 6 stendur
yfir sýning á útsaumsverkum Kristfnar
Schmidhauser. Sýningin er opin daglega
kl. 14-18 og lýkur 24. júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur opnað
sýninguna Henri Cartier-Bresson í Gróf-
arsal, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Sýnd
eru verk þessa franska Ijósmyndara sem
nú er á tíræðisaldri og hefur oftast verið
kenndur við stílinn „hið afgerandi augna-
blik". Sýningin er opin virka daga frá kl.
12-17 og um helgar kl. 13-17 og stendur
til 29. júlí.
Sænski Ijósmyndarinn Lars Erik Björk
sýnir Ijósmyndir frá Færeyjum í anddyri
sænska sendiráðsins í Lágmúla 7 sem
hann nefnir Leiftur frá Færeyjum. Sýning-
in verður opin virka daga kl. 9-16 til 22.
júní.
Freysteinn G. Jónsson sýnir Ijósmyndir í
versluninni Míru, Bæjarlind 6. Sýningin
nefnist Mannlíf á Indlandi og sam-
anstendur af Ijósmyndum frá Indlandi,
bæði svarthvítum og f lit. Sýningin er opin
á opnunartíma Míru og stendur til 20.
júní.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic í
Austurstræti og er þetta er fyrsta einka-
sýning Ara. Þema sýningarinnar á Atlantic
er íslenski fáninn. Gengið er inn frá Aust-
urvelli.
MENNINGARHEIMURINN „í SVOna Starfi
þarf maður að hafa sex hendur, tvö
höfuð, hamslausan heila, opið hjar-
ta og harðan skráp. Svo kemur að
því að maður vill ná nokkurn veg-
i in eðlilegu sköpunarlagi aftur,“
i segir Guðrún Bachmann sem ný-
I lega lét af starfi kynningarstjóra
j Þjóðleikhússins eftir nærri átta
ára vinnu.
„Ég hef séð um fjölmiðlatengsl,
hef búið til nánast allt kynningar-
efni leikhússins, leikskrárnar,
heimasíðuna, skipulagt markaðs-
sókn og ýmislegt fleira. Megin-
starf kynningarstjóra felst í að
vera tengiliður milli listarinnar og
umhverfisins, á báða vegu.“ Auk
þess hefur bókasafn Þjóðleikhúss-
ins og ljósmyndasafn verið í umsjá
Guðrúnar.
„Á þessum átta árum hefur orð-
ið alger bylting í menningarum-
hverfinu og sömuleiðis í fjölmiðla-
heiminum. Áherslurnar í þessu
starfi hafa auðvitað breyst í sama
hlutfalli. Áður þótti mörgum að
hugtökin list og markaðshugsun
gætu ekki átt saman, en auðvitað á
þetta tvennt samleið."
Guðrún segist reyndar ennþá
vera með annan fótinn í Þjóðleik-
húsinu. „Ætli fráhvarfseinkennin
yrðu ekki of mikil við að hætta of
snöggt. Ég mun enn um sinn búa
til leikskrárnar og sinna einstaka
lausaverkefnum fyrir leikhúsið.“
Hún hefur einnig verið að und-
irbúa námskeið í Háskóla íslands
þar sem stúlkur sem eru að ljúka
námi í félags- og hugvísindadeild
eiga þess kost að fá kynningu á
starfsmöguleikum að námi loknu.
„Ég er þar einn af leiðbeinendum á
sex daga námskeiði um menning-
arstjórnun," segir hún.
„En það sem ég stefni fyrst og
fremst á í sumar er að komast í
gott frí. Ég tók þá ákvörðun að
taka enga ákvörðun um framtíðina
fyrr en ég hef náð vissri fjarlægð.
Eða náð eðlilegu sköpunarlagi." ■
í Þjóðarbókhlöðu stendur yfir sýningin
sem ber heitið Þróun námsefnis á 20.
öld: Móðurmálið - náttúran - sagan og
er opin á opnunartíma safnsins. Þetta
mun vera í fyrsta sinn sem sett er upp
sýning af þessu tagi hér á landi. Hún tek-
ur til námsefnis fyrír skyldunám og hafa
verið valin sýnishorn námsbóka í
nokkrum greinum frá því um og eftir
aldamótin 1900, frá miðri öldinni og loks
frá síðustu árum. Sýningin stendur til 31.
mai.
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vígaferli og Götulíf
víkinganna í York . Um er að ræða
tvær sýningar, annars vegar endurgerð á
götu í víkingaþorpi þar sem hægt er að
sjá fólk við vinnu sína og hins vegar sýn-
ingu sem heitir „Skullsplitter" á frum-
málinu, þar má sjá beinagrind og haus-
kúpur vikinga sem féllu í bardögum. Á
sýningunni eru raunverulegar líkamsleif-
ar sem geta valdið óhug. Sýningin er
opin alla daga frá 13-17, kostar 300
krónur, frítt fyrir börn, unglinga og ellilíf-
eyrisþega. Miðinn gildir einnig í hin hús
safnsins. Sýningarnar standa til 1. októ-
ber.
I Sjóminjasafninu í Hafnarfirði stendur
handverkssýning Ásgeirs Guðbjartsson-
ar. Frá 1. júní til er Sjóminjasafnið opið
alla daga frá kl. 13 til 17. Sýningin stend-
ur til 22. júlí.
Ljósmyndasýning grunnskólanema
stendur yfir í Gerðubergi. í vetur hafa
þeir unnið undir handleiðslu hugsjóna-
mannsins Marteins Sigurgeirssonar og
afraksturinn hangir á veggjum Gerðu-
bergs. Sumar myndanna eru Ijóðskreytt-
ar aðrar segja sjálfar allt sem segja þarf.
Opnunartími sýningar er virka daga frá
12 til 17 og stedur sýningin til 17. ágúst.
Handritasýning stendur f Stofnun Árna
Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu.
Sýningin er opin frá kl. 11 til 16 mánu-
daga til laugardaga til 25. ágúst
Ekki er allt sem sýnist:
Holly wood á Italíu
myndlist Myndin hér
til hliðar er ekki tekin
í Hollywood á vestur-
strönd Bandaríkj-
anna, heldur í borg-
inni Palermo á norð-
vesturströnd Sikileyj-
ar. Hollywood-skiltið
á bak við fjölbýlis-
húsið er hluti af lista-
verki eftir ítalska
listamanninn
Maurizio Cattelan.
Skiltið er nákvæm-
lega jafn stórt og
frummyndin í Hollywood, eða 175 Bellolampo. „Þetta er eins og að
metrar á lengt og 23 metrar á hæð, en dreifa stjöi-nuryki yfir landslagið á
þarna stendur það á hæð sem heitir Sikiley," segir listamaðurinn. ■
SKYNPIBITASTAÐIR
Langþráður
skyndibiti
Alveg getur það verið ótrúlega
þægilegt að vita til þess að um
allar helgar, langt fram eftir nóttu,
er hægt að njóta traustrar þjónustu
hinna ýmsu skyndibitastaða sem
hafa opið frameftir í miðbænum.
Úr mörgum stöðum er að velja,
enda nauðsynlegt fyrir glorsoltinn
nátthrafninn á kaldri sumarnóttu
að geta gætt sér á því sem best
hentar hans matarlyst í það og það
skiptið. Pylsur eru alltaf vinsæll
skyndibiti og hefur til dæmis
pylsubarinn við Lækjartorg sjald-
an klikkað í því sambandi og hefur
maður oftar en ekki fengið sér eina
með öllu svona rétt fyrir svefninn
og verið fyllilega sáttur á eftir. En
kostirnir eru þó fleiri. Indverski
skyndibitinn Kebab getur komið
sterkur inn auk þess sem allar
mögulegar gerðir af bátum eru á
boðstólnum sem siglt geta með
mann í rétta höfn að loknu ströngu
kvöldi. Getur skyndibitinn einn og
sér og sú ánægja sem hægt er að fá
út úr honum ekki bara verið næg
ástæða til að fara út að skemmta
sér um helgar, ég bara spyr?
Freyr Bragason