Fréttablaðið - 14.08.2001, Qupperneq 1
j0IHkgi
MENNINC
Flestir
vilja
skólajot
IAPAN
Einkalíf
ráðherrans
bls 18
bls 22
KLAM ..
Menn
sæti ábyrgð
bls 11
una.ner
-*&sa
FRETTABLAÐIÐ
1 • ..... ...
78. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Þriðjudagurinn 14. ágúst 2001
Þ>RIIÐ>JiUiPAGyR
Salan á
Landsbankanum
tilboð Einkavæð-
ingarnefnd kemur
saman til að fara
yfir tilboðin í ráð-
gjöf vegna sölu
Landsbankans. Ekki
er ráðgert að niður-
staða náist á fund-
inum. En gert er ráð fyrir að
ákveðið verði á föstudag hvaða tii-
boði verður tekið.
Bandaríkjcimenn
hitta fjölmiðla
heiivisókn Bandarískir þingmenn
sem eru hér á landi til að kynna sér
auðlindastefnu íslendinga hitta
blaðamenn í dag. Þingmennirnir
hafa átt fundi með íslenskum
stjórnvöldum en gagnrýnt hefur
verið að þeir sem gagnrýna fisk-
veiðistjórnunina hafa ekki fengið
að hitta gestina.
Pveðrið í dag|
REYKJAVÍK Norðaustan
8-13 m/s. Punrt að kalla.
Hiti 8 til 14 stig.
VINOUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður Q 3-8 Skýjað ©12
Akureyri Q 5-10 Skýjað Ql3
Egilsstaðir Q 5-10 Súld O"
Vestmannaeyjar Q 3-8 Skýjað Ql3
Gengið á slóðir
Milljónafélagsins
viðey í þriðjudagsgöngunni í Viðey
verður að þessu sinni gengið um
slóðir Milljónafélagsins. Á sínum
tíma var þar um 100 manna byggð
þegar mest var.
Lokaundirbúning-
ur landsliðsins
knattspyrna Lokaundirbúningur
landsliðsins fyrir leikinn gegn Pól-
landi á morgun en tveir nýliðar eru
í íslenska landsliðshópnum, þeir Jó-
hannes Karl Guðjónsson og Marel
Baldvinsson. Búist er við að Atli
Eðvaldsson tilkynni byrjunarliðið
eftir æfingu í dag.
IKVÖLDIÐ í KVÖLDI
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 18 Útvarp 21
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
FRÉTTABLAÐIÐ
Hversu margir
á aldrínum
25 til 39 ára
fengu dagblað
á heimili sitt
í morgun?
Samkvæmt könnun
PriceWaterhouseCoopers
á útbreiðslu Fréttablaðsins
og áskrift að Morgun-
blaðinu virka
70% fólks ies L.döiö
72,5% IBUA HÖFUÐBORCARSVÆÐISINS A ALDRINUM
TIL 67 ÁRA LESA FRÉTTABLAÐIÐ AÐ MEÐALTALI SAMKVÆMT :
KÖNNUN PRICEWATERHOUSECOOPERS FRÁ JÚLÍ 2001. j
Starfsmaður Símans
las póst viðskiptavinar
Greindi þriðja aðila úti í bæ frá efni tölvupóstsins. „Þetta er alvarlegt,“ segir talsmaður Lands-
símans. Starfsmaður internetsfyrirtækis líkir þessu við innbrot þar sem brotið er á rétti einstak-
lingsins til einkalífs. Allir geta átt von á að slíkt sé gert.
samskipti „Ég er búinn að komast
að niðurstöðu í þessu máli,“ segir
viðskiptavinur Símans Internet
sem hefur klagað starfsmann í yf-
irmenn Landssímans fyrir að lesa
tölvupóst hans, sem vistaður er á
póstþjóni fyrirtækisins. Eftir að
hafa lesið bréfin á starfsmaðurinn
að hafa greint þriðja aðila út í bæ
frá efni þeirra og þannig komst
verknaðurinn upp. Viðskiptavinur-
inn veit hvaða starfsmaður á
þarna í hlut og hefur sagt upp
áskrift og fært viðskipti sín yfir til
Íslandssíma.
Þór Jes Þórisson, framkvæmd-
arstjóri breiðbandssviðs Lands-
símans, sem Síminn Internet heyr-
ir undir, segir þetta stranglega
bannað. Þeir einu sem eigi að hafa
aðgang að pósthólfum viðskipta-
vina séu þeir sem hafi umsjón með
tölvupósthúsinu. „Það eru ekki
margir, tveir kannski."
„Það er alveg ljóst að við tökum
svona ábendingum ekki léttilega,
þetta er alvarlegt," segir Heiðrún
Jónsdóttir, forstöðumaður upplýs-
ingamála hjá Landssímanum. Hún
segist hafa kvörtun viðskiptavin-
arins undir höndum og kallað hann
á fund sinn og yfirmanna Símans
Internet í gærkvöldi.
„Þetta er tæknilega hægt, ekki
bara hjá okkar fyrirtæki heldur
öllum, og mikilvægt að aðilar sem
senda tölvupóst geri sér grein fyr-
ir því. Það er mjög þröngur hópur
fólks innan Landssímans sem
kemst inn í þetta kerfi. Allir
starfsmenn sem vinna hjá okkur
hafa skrifað undir strangar trún-
aðaryfirlýsingar og ef þeir brjóta
á þessum trúnaði þá verður tekið á
því. Það liggja fyrir strangar siða-
reglur,“ segir Heiðrún.
Viðskiptavinir netþjónustufyr-
irtækja, sem þeir kaupa aðgang að
Interneti og tölvupósti hjá, eiga
það á hættu að starfsmenn þessara
fyrirtækja lesi tölvupóst þeirra,
sem vistaður er á póstþjónum inn-
an fyrirtækjanna. Þó móta fyrir-
tækin sér strangar siðareglur
varðandi aðgang og meðferð þess-
ara upplýsinga.
Jón Halldór Guðmundsson hjá
Internetfyrirtækinu Títan líkir
þessu við innbrot þar sem brotið
er á rétti einstaklingsins til einka-
lífs með því að lesa hans persónu-
legu bréf sem vistuð eru á póst-
þjóni. „Viðskiptavinurinn á þenn-
an tölvupóst sjálfur og þó hann sé
með aðgang í gegnum Símann
Internet, eins og í þessu tilviki, þá
er það hans einka tölvupóstur."
bjorgvin@frettabladid.is
Hveragerði:
Drengur
brann illa
áfæti
SLYS Ungur drengur var fluttur á
slysadeild Landspítalans - há-
skólasjúkrahúss í Fossvogi í gær
eftir að hann hafði brunnið illa á
fæti fyrir neðan hné þegar hann
steig niður úr jörðinni í Grændal
inn af Hveragerði og lenti í leir-
hver.
Drengurinn, sem var á ferð
með móður sinni þegar óhappið
varð, brenndist illa og voru 2.
stigs brunar á hluta fótarins sem
brenndist. Fólk sem átti leið um
hjálpaði drengnum áleiðis þangað
til hægt var að koma honum í bíl
og flytja á sjúkrahús. ■
SORGLEGT í gær var skipt é skilti Umferðarráðs við Suðurlandsveg, en þar segir til um fjölda látinna í umferðinni og er talan nú komin
upp í tólf það sem af er þessu ári. Birkir Þór Ásgeirsson sem lést í slysinu á sunnudag er á innfelldu myndinni.
Banaslys í umferðinni:
Tólf hafa látist í umferðinni
umferðarslys Tólf hafa látist í um-
ferðarslysum það sem af er þessu
ári. Tvö hörmuleg slys um ný-
liðna helgi urðu til þess að tala
látinna í umferðarslysum hækk-
aði úr tíu í tólf. Fyrra slysið varð
aðfaranótt laugardagsins á Sæ-
braut í Reykjavík þegar tvær bif-
reiðar sem ekið var í sömu átt
rákust saman með þeim afleiðing-
um að önnur bifreiðin lenti á
ljósastaur. Ung stúlka sem var
farþegi í bílnum lést. Hún hét
Sara Abdelazíz, 18 ára og var bú-
sett á Kjalarnesi.
Hitt slysið varð síðdegis á
sunnudag. Þá varð árekstur milli
fólksbíls og rútu neðarlega í Lög-
bergsbrekku á Suðurlandsvegi.
Ökumaður fólksbifreiðarinnar
lést. Hann hét Birkir Þór Ásgeirs-
son, til heimilis að Fjallalind 151,
Kópavogi. Birkir var 23 ára,
ókvæntur og barnlaus. Farþegar
rútunnar og ökumaður sluppu lítt
eða ekkert meidd.
Fleiri umferðarslys urðu um
helgina en sem betur fer urðu
ekki fleiri fyrir alvarlegum
áverkum. ■
| PETTA HELST |
Umhverfisráðuneytið vill ekk-
ert gera varðandi úrganginn
á Heiðarfjalli. Ráðuneytisstjórinn
segir ruslið vera venjulegt dót.
bls. 2
Tollgæslan í Leifsstöð hefur
lagt hald á mun meira af
hassi og E-töflum en í fyrra. Að-
ferðir smyglaranna hafa breyst.
bls. 2
Munu Bretar gæta hagsmuna
okkar í tilvonandi land-
grunnsbaráttu? Svo getur farið
að mælingar á landgrunninu
verði tilboðsskyldar. bls. 4
Verðbólgan er meiri en búist
var við. Vísitala neysluverðs
hækkaði um 0,3 prósent milli
mánaða. bls. 8