Fréttablaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
14. ágúst 2001 PRIDJUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
NÝTINC CISTIPLÁSSA f JÚLf
Meðalherbergjanýting I júlf árið 2001 úti á
landsbyggðinni var 80.75% og jókst úr
78.63% sem var meðalnýtingin í fyrra.
Meðalverðið hækkaði úr kr. 7.705 I kr.
7.932. ( könnuninni taka þátt 10 hótel
með alls 603 herbergjum. Hér sést hvernig
nýting gistirýma hefur breyst yfir fimm ára
tlmabil.
HEIMIID: SAMTÖK
FERÐAWÓNUSTUNNA
MÆTTUR
Yuri Usachev, flugstjóri geimstöðvarinnar
Alpha, tekur I hönd Frank Culberson, sem
taka mun við starfi hans, skömmu eftir
komu Discovery.
Geimferjan Discovery
tengist Alpha:
Skipt um
áhafnar-
meðlimi
CANAVERALHÖFÐI, FLÓRfPA. AP. Geim-
ferjan Discovery tengdist í
fyrrakvöld alþjóðlegu geimstöð-
inni Alpha með þrjá nýja áhafn-
armeðlimi innanborðs. Einn
Bandaríkjamaður og tveir Rúss-
ar muni skiptast á plássum við þá
einn Rússa og tvo Bandaríkja-
menn sem fyrir voru í geimstöð-
inni og munu þeir dvelja þar
fram í desember. Discovery, sem
heimsótti geimstöðina síðast í
marsmánuði, mun dvelja þar í
átta daga til að flytja birgðir yfir
í stöðina. ■
—*—
Aðlögun Keikós:
Reynt út
mánuðinn
keikó Aðstandendur Keikós hafa
ákveðið að halda áfram tilraunum
til að laga Keikó að villtri náttúru
út ágúst, eða þangað til háhyrn-
ingar hverfa af slóðinni við Vest-
mannaeyjar.
Ákvörðun um þetta var tekin
um helgina, að sögn Halls Halls-
sonar. Aður hafði verið gert ráð
fyrir að nema staðar með tilraun-
irnar í lok þessarar viku.
Hallur sagði að menn vildu
reyna til þrautar meðan háhyrn-
ingar væru enn á ferð í grennd-
inni. Á síðasta ári hurfu þeir frá
Vestmannaeyjum í lok þriðju
viku ágúst og nú verður sá at-
burður en ekki fyrirframgefin
dagsetning látin marka endalok
tilraunarinnar. ■
|lögreglufréttir|
Bflvelta var í Jökuldal aðfara-
nótt laugardags. Ökumaður-
inn var einn á ferð og slasaðist
hann ekki í veltunni. Talsverðar
skemmdir urðu á bílnum.
Bæjarráð Kópavogs duglegt:
Kipptu málinu
strax í liðinn
sorphirða íbúi við Húsalind ákvað
að láta til sín taka þegar hann
varð þreyttur á að horfa upp á
eyðileggingu á villtum gróðri á
milli götunnar og Svalahverfisins.
íbúinn heitir Berghildur Valdi-
marsdóttir og ákvað hún að ganga
úr húsi í hús þar sem hún óskaði
eftir liðsinni nágranna sinna við
að hvetja bæjarráð Kópavogsbæj-
ar til þess að taka á málinu - sá í
moldina og fjarlægja rusl af
svæðinu sem stakk í augun.
„Ég er nýflutt í Kópavoginn
þannig að mig langaði að sjá
hvernig bærinn myndi taka á
þessum málum. Þannig gæti ég
svo myndað mér skoðun á því
hvernig það er að búa í bænum,“
sagði Berghildur og það kom
henni skemmtilega á óvart þegar
blaðamaðurinn sem þetta skrifar
las upp úr tillögu bæjarverk-
fræðings, Þórarins Hjaltasonar,
til bæjarráðs. Bæjarverkfræð-
ingur lagði til að sáð yrði í mold-
•=>
LIÐLECT BÆJARRÁÐ
Berghildur átti ekki von á því að nokkuð yrði aðhafst hjá bænum eftir að hafa sent bæn-
um áskorun um að ganga frá svæðinu hér á myndinni sem er austan Húsalindar. Það
kom henni þægilega á óvart þegar hún frétti það að búið væri að afgreiða málið hjá
Kópavogsbæ og nú stæði til að kippa málinu í liðinn.
ina og það sem hafði sviðið í augu „Þetta er skemmtilegt. Þetta
íbúanna að Húsalind yrði fjar- næst þá kannski fyrir haustið,"
lægt. sagði Berghildur ánægð. ■
LÆKJARSKÓLI f HAFNARFIRÐI
Minnihluti samfylkingarmanna í bæjaráði Hafnarfjarðar segir vinnulag meirihluta sjálfstæðismanna og framsóknarmanna vera með öllu óverjandi hvað snertir fyrirhugaða byggingu nýs
Lækjarskóla á Hörðuvöllum en meirihlutinn segir öll vinnubrögð til mikillar fyrirmyndar.
Metverð á fermetra í
hafnfirskum grunnskóla
Hart er nú deilt í bæjarráði Hafnaríjarðar um kostnað vegna byggíngu nýs grunnskóla og
íþróttamannvirkja á Hörðuvöllum. Meirihlutinn bendir á að lægsta tilboð sem hafi borist í út-
boðinu sé innan við 1% yfir kostnaðaráætlun en minnihlutinn segir áætlunina sjálfa vera með
ólíkindum háa og að fermetraverðið sé hærra en í öðrum skólabyggingum.
SVEITASTJÓRNIR Hart er nú deiit í
bæjarráði Hafnarfjarðar vegna
útboðs á byggingu og rekstri nýs
Lækjarskóla á Hörðuvöllum. Um
er að ræða grunnskóla ásamt
íþróttahúsi og sundlaug á Sól-
vangssvæðinu sem einkafram-
kvæmd.
Á fundi bæjarráðs 9. ágúst sl.
létu bæjarráðsfulltrúar Samfylk-
ingar bóka að þeir teldu kostnað-
aráætlun og tilboðsverð í bygg-
ingu og rekstur grunnskóla á
Hörðuvöllum vera með ólíkindum
há. „Má til samanburðar nefna að
byggingaverð hvers fermetra í
kostnaðaráætlun er um 25%
hærra en í Áslandsskóla sem nú er
í byggingu. Vinnulag og fram-
kvæmdamáti meirihlutans í þessu
máli er með öllu óverjandi. Vitur-
legast væri að leggja þessi bygg-
ingaáform á Hörðuvöllum til hlið-
ar og leita samkomulags um fjár-
hagslega raunhæfar framkvæmd-
ir við einsetningu Lækjarskóla
eins og bæjarfulltrúar Samfylk-
ingar hafa margítrekað kynnt,“
sögðu samfylkingarmenn.
Bæjarráðsfulltrúar Sjálfstæð-
isflokks og Framsóknarflokks,
sem saman fara með meirihluta í
bæjarráðinu, vísuðu gagnrýni
minnihlutans á bug: „Vinnubrögð
þau sem viðhöfð hafa verið í mál-
inu öllu hafa verið til mikillar fyr-
irmyndar af hálfu skipulags-
nefndar, bygginganefndar grunn-
skóla, hönnuða og annarra sem
komu að vinnu á Hörðuvallasvæð-
inu,“ létu þeir bóka.
Samfylkingarmenn sögðu þá að
ekki væri hægt að vísa því á bug
að byggingakostnaður nýja skól-
ans verði um 1200 milljónir króna
og fermetraverð mun hærra en
þekkist í öðrum skólabyggingum.
„Ef meirihluti bæjarráðs telur
þetta vera til fyrirmyndar þá lýsir
það best hug hans til ráðdeildar og
ábyrgðar við fjármálastjórn bæj-
arins,“ sögðu þeir.
Þá svaraði meirihlutinn því til
að lægsta tilboðið í byggingu um-
ræddra mannvirkja væri tæpu
1% yfir kostnaðaráætlun sem
hljóti að teljast mjög ásættanlegt.
„Þær byggingar sem um ræðir
eru glæsilegar þar sem tekið er
tillit til umhverfis og staðhátta á
þessu einstaka svæði í hjarta bæj-
arins. Hér er því vandað vel til
allra þátta varðandi uppbyggingu
á svæðinu," sagði meirihlutinn. ■
Útboðsreglur EES:
Fullveldishagsmunir í hendur Breta?
landgrunnið „Þetta er eitt af því
sem við þurfum að íhuga. Ég er
ekki viss um að það sé æskilegt að
hálfopinber bresk stofnun taki
verkefnið að sér,“ segir Steinar
Guðlaugsson, hjá Orkustofnun, en
stofnunin hefur umsjón með fyr-
irhugaðri athugun á landgrunni
íslands á ákveðnum svæðum utan
200 mílna lögsögunnar. Til að
mynda hafa Bretar, írar og Fær-
eyingar auk íslands sett fram
kröfur um landgrunnsréttindi á
Hatton Rockall-svæðinu suðaust-
ur af landinu. Steinar dregur ekki
úr því að sérstök staða gæti
myndast fari svo að verkefnið
SKIP HAFRANNSÓKNARSTOFNUNAR
Verkefni af þeirri stærðargráðu sem um ræðir eru útboðsskylt samkvæmt EES-sam
ningnum. Niðurstaða hefur ekki fengist um hvort sérstök heimild sé til að víkja
sllkum reglum frá þegar um viðkvæmar upplýsingar er að ræða.
verði útboðsskylt samkvæmt
EES-reglum og samkeppnisaðilar
okkar eigi lægri tilboð en innlend-
ir aðilar. Of snemmt sé þó að full-
yrða nokkuð þar sem lögfræðing-
ar í utanríkistjórnsýslunni eigi
eftir að kanna málið.
„Meginatriðið er að kostnaður
verði í lágmarki án þess að tímaá-
ætlanir raskist," segir Steinar og
tekur fram að best væri ef Haf-
rannsóknarstofnun gæti tekist
verkefnið á hendur á þeim for-
sendum. Orkustofnun hefur áætl-
að að kostnaður vegna könnunar-
innar næstu fjögur árin verði um
650 milljónir króna. ■