Fréttablaðið - 14.08.2001, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
14. ágúst 2001 ÞRIÐJUDAGUR
1 SPURNING PACSINST
Snorri Steinn Þórðarson starfar sem málari
Ferð þú ofl í kvikmyndahús?
Já, nokkuð oft, svona tvisvar til þrisvar í
viku. Það er svo sem engin ein tegund kvik-
mynda sem höfðar til min frekar en önnur,
ég hef nokkuð víðan kvikmyndasmekk. ■
TÝR Á SEYÐISFIRÐI
Nú er að hefjast vinna við að fjarlægja
sprenginefni úr El Grillo.
E1 Grillo:
Stjómarfundur í Verðbréfaþinginu:
Alykta um Islandssíma
hlutabréf Framtíð Íslandssíma
mun að nokkru leyti ráðast af
ákvörðun stjórnar Verðbréfa-
þingsins sem kemur saman
klukkan fjögur í dag. Málið snýst
um hvort félagið hefði átt að
greina fjárfestum í hlutafjárút-
boðinu í maí frá einhverju þeirra
þriggja atriða sem nefnd voru í
afkomuviðviðvörun rúmum mán-
uði síðar. Þar kom fram að geng-
istap, aukinn innri kostnaður og
tap dótturfélagsins Títans myndu
valda fráviki frá afkomuáætlun í
útboðslýsingu. Forsvarsmenn fé-
lagsins hafa haldið því fram að
ekki hefði mátt sjá fyrrgreind at-
riði fyrir, afkomuáætlunin hafi
verið unnin af bestu vitund. Verði
niðurstaðan á aðra leið gætu
kaupendur í útboðinu átt skaða-
bótakröfu á íslandsbanka sem
hafði umsjón með sölunni.
Sem fyrr er stjórnin að meiri-
hluta til vanhæf sökum tengsla
við Íslandssíma, auk þess sem
Finnur Sveinbjörnsson, forstjóri
VÞÍ, kemur ekki að málinu þar
sem eiginkona hans er aðstoðar-
forstjóri félagsins. Fyrirsjáan-
legt er að varamenn komi í stað
Bjarna Ármannsonar, banka-
stjóra íslandsbanka, Þorkels Sig-
urlaugssonar, fulltrúa Burðaráss-
Eimskipa, Jóns Arnalds, föður
Eyþórs, og Sigurðar Atla Jóns-
sonar, forstjóra Landsbréfa. ■
fSLANDSSfMI
Færði rök fyrir að útboðslýsing hafi verið
unnin af bestu vitund í greinargerð sem
stjórn þingsins tekur fyrir í dag. Verði ekki
fallist á rökin gæti verið grundvöllur fyrir
nýja hluthafa að leita réttar síns.
Urskurðarnefnd klofín
í máli Arna Johnsen
Hreinsun á
sprengiefh-
um hafín
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál klofnaði þegar hún ákvað að vísa frá kærum Fréttablaðsins
vegna synjunar um afhendingu gagna tengdum byggingarnefnd Þjóðleikhússins. Meirihluti
nefndarinnar sagði ekki hægt að kæra synjunina til hennar þar sem „ætla megi“ að gögnin verði
tekin til skoðunar í lögreglurannsókn.
landhelgisgæslan Varðskipið Týr
er komið til Seyðisfjarðar með
hóp manna sem er ætlað að hrein-
sa upp allt sprengiefni sem talið
er að fyrirfinnist í flaki E1 Grillo.
Tólf manna teymi kafara frá dan-
ska hernum er í hópi mannanna og
að sögn lögreglunnar á Seyðisfirði
er reiknað með að töluvert magn
fallbyssukúlna sé í flaki E1 Grillo
og allavega tvær djúpsprengjur.
Reiknað er með að vinnu ljúki 21.
ágúst næstkomandi.
Flak E1 Grillo liggur á 43-44
metra dýpi um 400 metra frá landi
í Seyðisfirði. Stefnt er að því að
hreinsun olíu úr flakinu hefjist í
innan fárra vikna. ■
—4---
Hafnarfjörður:
Reyndi flótta
en náðist
lögreglumál Ökumaður bifreið-
ar, sem mælst hafði á 144 kíló-
metra hraða á Reykjanesbraut
þar sem hámarkshraði er 70
kílómetrar, komst undan lög-
reglunni í Hafnarfirði þegar hún
hugðist stöðva aksturinn. Mað-
urinn var handtekinn síðar á
heimili sínu og var hann færður
á lögreglustöð til yfirheyrslu.
Um helgina þurfti lögreglan
að hafa afskipti af þrjátíu og
þremur ökumönnum vegna
brota á umferðarlögum, þar af
fimmtán vegna hraðaksturs og
fjórum vegna gruns um ölvun
við akstur. ■
upplýsingalög Úrskurðarnefnd
um upplýsingamál hefur vísað frá
þremur kærum blaðamanna
Fréttablaðsins vegna neitunar
menntamálaráðuneytisins, þjóð-
leikhússtjóra og Framkvæmda-
sýslu ríkisins um að afhenda afrit
gagna tengdum byggingarnefnd
Þjóðleikhússins.
Úrskurðarnefndin klofnaði í
málinu. Eiríkur Tómasson, for-
maður nefndarinnar, og Valtýr
Sigurðsson töldu að vísa bæri
kærunum frá en Elín Hirst taldi
afhenda bæri gögnin. Fréttablaðið
óskaði eftir fundargerðum bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins,
skjölum um samskipti mennta-
málaráðuneytisins og Fram-
kvæmdasýslunnar vegna bygg-
ingarnefndarinnar og yfirliti yfir
útgjöld nefndarinnar.
Fréttablaðinu var upphaflega
synjað um aðgang um fundagerð-
unum og útgjaldayfirlitinu vegna
þess að ríkisendurskoðun væri að
hefja athugun á málum Árna
Johnsen. Síðar synjaði mennta-
málaráðuneytið Fréttablaðinu um
aðgang að skjölum um samskipti
ráðuneytisins og framkvæmda-
sýslunnar vegna ummæla ríkis-
saksóknara í fjölmiðlum um að
embætti hans ætlaði að hlutast til
um rannsókn á málum Árna John-
sen.
Úrskurðanefndin leitaði stað-
festingar ríkissaksóknara á því að
lögreglurannsókn væri hafin og
hvort gögnin sem Fréttablaðið
bað um yrðu til skoðunar í þeirri
rannsókn. Nefndin vísaði til þess
að upplýsingalögin gildi ekki um
„rannsókn eða saksókn í opinberu
máli“. Ríkissaksóknari svaraði
íslensk Auðlind
æ k j a r t o r g i
Hafnarstræti 20. 2h
101 Reykjavík
561-4000
www.audlind.is
■ L æ k j
Bifreiðarverkstæði
Vorum að fá á söluskrá okkar gott og vel tækjum búið birfreiðaverk-
stæði með einni lyftu sem rekið er í leiguhúsnæði á fínum stað í Kópa-
vogi. Fyrirtækið er með góða viðskiptavild. Uppl. gefur sölumaður.
Veislu og- framleiðslueldhús
Vorum að fá í sölumeðferð vel tækjum búið framleiðslu og veislueld-
hús. Fyrirtækið er með fína viðskiptavild sem henta gæti kröftugum
matreiðslumönnum sem vilja vinna sjálfstætt og græða peninga. Fyr-
irtækið er í leiguhúnæði. Allar nánari uppl. gefur sölumaður.
Erum með mikið úrval fyrirtækja á söluskrá okkar.
Fyrirtækjasala I Fasteignasala I Leigumiðlun I Lögfræðiþjónusta
því til að efnahagsbrotadeild rík-
islögreglustjóra hefði verið falið
27. júlí að hefja rannsókn á ætluð-
um auðgunarbrotum Árna í
tengslum við byggingarnefndina
og að „ætla mætti“ að gögnin sem
Fréttablaðið bað um yrðu til skoð-
unar við þá rannsókn.
Eríkur og Valtýr sögðu að þótt
gögnin hefðu ekki enn verið af-
hent lögreglu eða ákæruvaldi hafi
ríkissaksóknari lýst því yfir að
„ætla mætti“ að þau yrðu til skoð-
unar. Því væri ekki hægt kæra
synjun á afhendingu gagnanna til
úrskurðarnefndarinnar og kærun-
um vísað frá.
Elín Hirst taldi hins vegar að
ekki hafi verið rétt að synja
Fréttablaðinu um aðgang að um-
beðnum gögnum þar sem ekki
væri hægt að ráða af svari ríkis-
saksóknara hvort gögnin yrðu
tekin til rannsóknar eður ei.
Þess má geta að allar þrjár
kærur Fréttablaðsins voru sendar
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Ráðuneyti og rfkisstofnanir fá að halda op-
inberum gögnum um byggingarnefnd
Þjóðleikhússins leyndum vegna þess að
ætla má að lögreglan vilji skoða þau, segir
Úrskurðamefnd um upplýsingamál.
úrskurðarnefndinni áður en lög-
reglurannsókn á meintum bro-
tumn Árna Johnsen hófst. Tvær
kæranna bárust nefndinni 19. júlí
en sú þriðja 26. júlí.
gar@frettabladid.ís
Makedónía:
Ráðist á danska fréttamenn
KAUPMANNAHðFN, AP HÓpur
Makedóníumanna réðst um helg-
ina á þrjá danska fréttamenn þar
sem þeir voru á ferð í þorpinu
Radusa, ásamt ökumanni þeirra
sem er af albönskum uppruna.
Fréttamennirnir sögðu í við-
tali við danska ríkisútvarpið í
gær að hópur þorpsbúa hafi dreg-
ið þá út úr bifreið þeirra, brotið
tækjabúnað þeirra og barið þá
þangað til lögreglan kom á stað-
inn. Óljóst var um örlög öku-
mannsins.
Fréttamennirnir voru síðan
fluttir á lögreglustöð, en reiður
múgur hafði fljótlega umkringt
hana. Þá var reynt að flytja þá til
Skopje, höfuðborgar Makedóníu,
en múgurinn dró þá út úr lög-
reglubifreiðinni og braut rúður í
henni.
Lögreglunni tókst þó að lokum
að bægja fólkinu frá og koma
fréttamönnunum þremur til
Skopje.
„Fólk brjálaðist vegna þess að
bílstjórinn okkar var af albönsk-
um uppruna," sagði Jens
Nauntofte, einn fréttamannanna
þriggja. „Við vitum ekki hvað
varð um bílstjórann, hann var
barinn í klessu."
Hinir tveir fréttamennirnir
voru Birger Lund og Gunar Will-
um. ■