Fréttablaðið - 14.08.2001, Page 7
ÞMPIUDAGUR 14. ágúst 2001
. FRÉTTABLAÐIÐ
Landgrunnið:
Heildarkostnaður
702 milljónir króna
LANDGRUNNSMÆLINCAR Heildar-
kostnaður vegna vinnslu greinar-
gerðar til landgrunnsnefndarinn-
ar SÞ um mörk landgrunns ís-
lands utan 200 sjómílna er 702,5
milljónir króna. Tæknilegur þátt-
ur starfsins næstu fjögur árin
kostar tæpa 655 milljónir króna.
Orkustofnun mun hafa yfirum-
sjón með tækilegum þætti
verkefnisins. Svona skiptist
kostnaðurinn í milljónum króna. ■
KOSTNAÐUR VIÐ MÆLINGAR
1. Fjölgeisladýptarmælingar 346
2. Hljóðendurvatpsmælingar 155,6
3. Annar tæknilegur kostnaður 153,3
4. Utanrikisráðuneytið 47,6
Heildarkostnaður 702,5 milljónir
Kostnaður skiptist þannig á svæðin:
a) Síldarsmugan 67
b) Reykjaneshryggur 196,2
c) Hatton Rockall 238,4
Morð á vændiskonum
í Iran:
Morðingjan-
um hælt á
hvert reipi
mashhad. IRAN. ap Undanfarið ár
hefur 21 vændiskona fundist
myrt í íran, flestar í borginni
Mashhad í norðausturhluta
landsins. Þessi morð hafa neytt
yfirvöld til þess að viðurkenna að
vændi sé stundað í landinu, þar
sem lög íslamskrar trúar eru í
hávegum höfð og helst má ekki
minnast á kynlíf.
Þann 25. júlí síðastliðinn var
39 ára maður að nafni Saeed Han-
ei handtekinn vegna morðanna
og hefur hann viðurkennt að hafa
myrt sextán kvennanna.
En ekki er nóg með það, því
bæði stærir hann sig af verkum
sínum og til eru þeir íranir sem
hrósa honum í hástert fyrir
morðin.
„Ég myrti konurnar í Guðs
þágu, og til verndar trú minni
vegna þess að þær voru vændis-
konur og spilltu öðru fólki,“ sagði
Hanei fréttamönnum.
„Guð blessi hann fyrir að
drepa spilltar konur,“ segir Mo-
hammad Taqi Shariatmadaran,
sem býr í Mashhad. „Morð á
vændiskonum vekur ótta meðal
þeirra og þvingar þær til þess að
hætta að spilla fólki hér, sérstak-
lega ungdóminum." ■
IlögreglufréttirI
Fjögur innbrot voru tilkynnt
til lögreglunnar í Hafnarfirði
um helgina og átta umferðaró-
höpp. í einu óhappanna lentu
fjórar bifreiðar í árekstri á mót-
um Reykjanesbrautar og Öldu-
götu. Engin meiðsl urðu á fólki.
Þá voru unnar skemmdir á
tveimur bifreiðum í Garðabæ,
annarri við Gilsbúð en hinni við
Hofstaðaskóla. Annað málanna
er upplýst en hitt er enn í rann-
sókn.
Eitt fíkniefnamál kom til kasta
lögreglunnar í Hafnarfirði
um helgina, þar sem lagt var
hald á tæki til fíkniefnaneyslu.
Lögreglan í Reykjavík fann lítil-
legt magn af fíkniefnum í fórum
manns í austurborginni. Við leit
á heimili hans fundust cannabis-
plöntur og ýmislegt annað.
Kona sem lagði leið sína í
trjágöngin á háskólasvæðinu
við Sæmundargötu varð fyrir
árás aðfaranótt laugardagsins.
Lét konan vel í sér heyra og
kallaði eftir hjálp og tók maður-
inn við það til fótanna. Maðurinn
fannst ekki þrátt fyrir ítarlega
leit.
Menntaskólinn við Hamrahlíð
105 Reykjavík
SÍmi 595-5200 • fax 595-5250
Stöðupróf á vegum menntamálaráðuneytisins verða
haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð í ágúst
2001 sem hér segir:
Miðvikudaginn 15. ágúst
Kl. 17:00 Norðurlandamál og franska.
Kl. 19:00 italska, spænska og þýska.
Fimmtudaginn 16. ágúst
Kl. 17:00 Stærðfræði skv. nýrri námskrá STÆ103, STÆ203 og STÆ263.
Kl. 19:00 Enska.
Tekið verður á móti skráningu í stöðupróf á skrifstofu skólans í síma
595-5200 frá kl. 8:30 til 15:30 dagana 9. -14. ágúst.
Prófgjald, kr. 3500 á hvert próf, greiðist hálftíma fyrir prófið.
í Aðalnámskrá framhaldsskóla er tekið fram að þessi próf séu ætluð þeim sem
búa yfir þekkingu og reynslu sem ekki hefur verið aflað með hefðbundnum
hætti í skóla. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fyrir liggur álit menntamála-
ráðuneytisins um að stöðupróf skuli ekki nota sem upptektarpróf fyrir nemend-
ur sem fallið hafa á annar eða bekkjarprófi. www.mh.is D
nGKtOr.
Tölvugrunnur
kr. 16.900
ík 50%'75°/° a
Surgreip^^
Helstu hugtöb einbatölvu. Uppbygging og hlutverb stýriberfa.
Notbun lyblaborðs, músar, disbadrifs, prentara, sbanna,
20 bennslustundir
Word I br. 16.900
Grundvallaratriöi ritvinnsluforrita, Innsláttur texta og
leiöréttingar. Útlitsmótun stafa, efnisgreina, blaösíðna.
Prentun. 20 bennslustundir
Word II br. 17.900
Staðsetning og notbun mynda í ritvinnslusbjali. Stöðluð stílsnið
texta og málsgreina. Notbun og uppsetning flýtihnappa. Töflur og
dálbar. Haus- og fótlína. 15 bennslustundir
Excel I br. 16.900
Grundvallaratriði töflureibna. Innsláttur gagna og tilfærsla.
Gerð formúla og myndrita. Útlitsmótun.
Prentun. 20 bennslustundir
Excel II br. 17.900
Framsetning tölulegra upplýsinga á myndrænan hátt. Flóbnari
formúlugerð og föll. Síun og röðun. Tengingar á milli sbjala.
15 bennslustundir
Power Point br. 16.900
Gerð vandaðra glæra, litsbyggna, námsgagna fyrir sbjásýningar.
Notbun babgrunna og mynda. Hreyfing og hljóð.
20 hennslustundir
KENNSLA FER FRAM I TOLVUVERI
Fjögurra vifena bvöldnámsbeið hafin. Kennt fimm
fevöld vihunnar fel. 18.00 - 21.00 eða kl. 18.00 - 22.0
tj
H|
' ' ' V,
{ 7/"." < - /' \ ; - v ' - , Í-T /...