Fréttablaðið - 14.08.2001, Síða 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
14. ágúst 2001 ÞRIÐJUPAGUR
Víetnam:
5 sjómenn
taldir af eftir
dýnamítslys
HANOI. vIetnam. flp. Fimm sjómenn
eru taldir af og 11 aðrir særðust eft-
ir að slys varð við dýnamítveiðar
undan suðurströnd Víetnam. Sjó-
mennirnir voru að reyna að losa
sprengiefni úr dýnamítsprengju
þegar hún sprakk skyndilega og
sökkti bát þeirra sem staðsettur var
nærri Con Dao eyju. Þrátt fyrir
bann við dýnamítveiðum í Víetnam
er afar algengt að sprengiefni séu
notuð til að veiða mikið magn fiska
og eru slys sem þessi tíður fylgi-
fiskur slíkra veiða. ■
Nýjasta verðbólguspá Seðlabankans þegar sprungin:
Verðbólgan vanmetin
efnahacsmál Vísitala neysluverðs
miðuð við verðlag í ágústbyrjun
hækkaði um 0,3% frá fyrra mán-
uði samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar. Þetta er nokkru
meira en gert var ráð fyrir í nýj-
ustu spá Seðlabankans frá í byrj-
un þessa mánaðar og verulega
umfram spár fjármálafyrirtækja.
Það var ekki aðeins Seðlabank-
inn sem vanmat verðbólguna. Að
því er fram kemur á vef Við-
skiptablaðsins á Vísi.is höfðu
fjármálafyrirtæki að meðaltali
spáð því að verðbólga milli mán-
aða myndi mælast aðeins 0,06%.
Spár þeirra hafa því reynst vera
fjarri lagi. Á undaförnum árum
hefur verðlag heldur lækkað á
milli júlí og ágúst, m.a. vegna
sumarútsala og spáði Kaupþing
t.d. verðhjöðnun upp á 0,15%.
Fyrirtækið segir frávikið frá spá
sinni einkum skýrast af því að
verð á þjónustu hækkaði helm-
ingi meira en spáin hljóðaði upp
á.
Seðlabankinn spáði því að
verðbólgan yrði 2,1% á þriðja
ársfjórðungin þessa árs, það er að
segja mánuðina júlí, ágúst og
september. Hækkunin mun nú
þegar nema um 2,9% og því ljóst
að ársfjórðungspáin er þegar
brostin þrátt fyrir að enn sé mán-
uður eftir af tímabilinu. ■
SEÐLABANKINN
Sérfræðingar
Frakkland:
Vínbændur
uggandi
parís. ap „Villimennirnir eru að
koma,“ segir í skýrslu sem skrif-
uð var fyrir franska landbúnaðar-
ráðuneytið um ástandið á vín-
mörkuðum heimsins. „Ástralía,
Nýja-Sjáland, Bandaríkin, Chile,
Argentína, Suður-Afríka - á vín-
flóðið frá Nýja heiminum eftir að
sökkva vínframleiðsluiðnaðinum í
gömlu álfunni?"
Vínframleiðendur í Frakklandi
óttast greinilega um stöðu sína,
enda þótt Frakkland, Ítalía og
Spánn séu ennþá stærstu vín-
framleiðsluþjóðir heims. Ríki
„Nýja heimsins" eru kominn með
20% af heimsmarkaðinum, en
voru nánast í núlli fyrir tveimur
áratugum. ■
—♦—
Rottufaraldur í Eyjum:
Úr fríi til að
kljást við rottur
MEINPÝravarnir Mikið hefur verið um
rottugang í austurbæ Vestmannaeyja
undanfarnar vikur og hefur hann orð-
ið það skæður að meindýraeyðir Vest-
mannaeyja greip til þess ráðs að styt-
ta sumarfrí sitt svo hann gæti tekist á
við rottufaraldurinn. Á fréttavefnum
Fréttir í Vestmannaeyjum er rætt við
Ásmund Pálsson meindýraeyði sem
segir að fyrst hafi orðið vart við rott-
urnar sem um ræðir, svokallaðar
svartrottur, upp úr síðustu áramót-
um. Talið er að rotturnar hafi komið
til landsins með rússneskum togara
sem var á ferð í Vestmannaeyjahöfn
rétt fyrir síðustu jól. Síðan þá lítur út
fyrir að þær hafi náð að fjölga sér
verulega og síðustu vikur mun hafa
borið mikið á þeim í austurbæ Vest-
mannaeyja. ■
Reykjavík:
Ofbeldi í
miðbænum
LÖCRECLMÁL Mikill erill var hjá
lögreglunni í Reykjavík um helg-
ina vegna ölvunar, hávaða og
slagsmála. Átök urðu á Lækjar-
torgi á sunnudagsmorgun þar sem
ráðist hafði verið á mann og hann
skallaður, sleginn og síðan stigið á
háls hans. Maðurinn var með
skurð á enni og nefi og var líklega
nefbrotinn. Hann var fluttur á
slysadeild og síðan heim. Árás-
armaðurinn og stúlka voru hand-
tekin og var ástæða átakanna sögð
vera deilur á milli hins slasaða og
stúlkunnar.
Þá þurfti lögregla að hafa af-
skipti af slagsmálum í veitinga-
húsi nálægt miðborginni þar sem
maður gekk berserksgang. Hafði
hann hent flösku í höfuð á stúlku
og slegið mann í ennið með ösku-
bakka. Stúlkan var flutt með
sjúkrabifreið en lögreglan ók
manninum á slysadeild. Árás-
armaðurinn var færður í fanga-
geymslu. ■
Sundreið með fartölvu og GPS
Umfangsmikill ratleikur á sér nú stað við Mývatn og taka 36 Þjóðverjar þátt. Um 20 þýskir
blaðamenn eru með í för og munu kynna herlegheitin. Leikurinn er liður í auglýsingaherferð
rafhlöðuframleiðandans Varta.
landkynninc Róður á Mývatni,
sauðfjártalning í Mikley, þýðing-
ar á þýskum texta yfir á íslensku
og sundreið er
meðal þess sem
verður lagt á 24
einstaklinga sem
hafa verið valdir
til þess að taka
þátt í ratleik á
vegum rafhlöðu-
framleiðandans
Varta. Fyrirtækið
stendur nú í aug-
lýsingagerð og
hefur því ákveðið
að fara þessa leið
í öflun efnis og ís-
lendingar munu
vafalaust njóta
góðs af í formi
landkynningar.
„Þetta verður í
svipuðum stíl og
„Camel Trophy"
og fólkið verður
að fara allra sinna
leiða annað hvort
gangandi, á hest-
baki eða hjólan-
di,“ sagði Ingvi Ragnar Krist-
jánsson, framkvæmdarstjóri
ratleiksins á íslandi.
Leikurinn mun fara fram
samstundis á íslandi og í Ham-
borg í Þýskalandi í gegnum Net-
ið. Tveir úr hverju liði eru stadd-
ir í Hamborg og gefa þeir liðs-
mönnum sínum á íslandi ábend-
:---«,---
Leikurinn mun
fara fram
samstundis á
íslandi og í
Hamborg í
Þýskalandi í
gegnum Net-
ið. Tveir úr
hverju liði eru
staddir í Ham-
borg og gefa
þeir liðs-
mönnum sín-
um á íslandi
ábendingar og
fyrirskipanir á
Netinu sem
þeir þurfa síð-
an að fara eft-
ir í einu og
öllu til þess
að ná settu
marki.
VERKEFNIN BÍÐA
Sauðfjártalning, róður, þýðingar og sundreið er meðal þess sem unga fólkið í Vörtu-rat-
leiknum þurfa að takast á við á meðan dvöl þeirra á (slandi stendur. Rafhlöðuframleið-
andinn Varta er að afla sér auglýsingaefnis og ákvað að fara þessa leið í efnistökum og
segir framkvæmdastjórinn hér á landi að ísland muni njóta góðs af í formi landkynningar.
Á myndinni eru ónefndir þátttakendur í leiknum.
ingar og fyrirskipanir á Netinu
sem þeir þurfa síðan að fara eft-
ir í einu og öllu til þess að ná
settu marki. Sex lið með sex ein-
staklingum innanborðs taka þátt
í leiknum en auk þeirra koma við
sögu um 20 starfsmenn, 12
jeppabifreiðar og 20 hestar.
„Fjöldi fólk sótti um að taka
þátt í leiknum og í fyrsta forvali
komust 300 manns í gegnum sí-
una. Þeim var síðan fækkað í 100
eftir að búið var að þræla þeim í
gegnum æfingabúðir. Svo var
þeim fækkað í 50 manns og það-
an í 36 einstaklinga," sagði Ingvi
Ragnar.
Það er til mikils að vinna fyr-
ir þá sem að taka þátt því auk
þess að taka þátt í íslandsreis-
unni þar sem allur kostnaður er
greiddur af Varta þá munu þeir
sem standa eftir sem sigurveg-
arar fá í sinn hlut ýmsan raf-
tækjabúnað - raftækjabúnað
sem allur gengur jú fyrir raf-
hlöðum.
Um 20 blaða- og fréttamenn
eru komnir til íslands til þess að
fylgjast með leiknum sem hefst
á miðvikudaginn og stendur yfir
í nokkra daga. Þeir sem eru þátt-
takendur í leiknum eru þó ekki
svo heppnir að kúra í hlýju rúmi
þann tíma sem dvalið er á ís-
landi - þeir sofa í tjöldum
skammt undan hótelinu Sel-Hót-
el við Mývatn.
omarr@frettabladid.is
Heilastarfsemi skákmanna:
Stórmeistarar
nota hnakkann
og ennið
new york. ap Hvert er leyndarmál-
ið á bak við góðan árangur í skák?
Þrotlausar æfingar og grúsk í
fræðunum, vitaskuld - en fleira
kemur til. Samkvæmt nýrri rann-
sókn nota þeir sem langt eru
komnir í íþróttinni ekki sama hluta
heilans og byrjendur.
Vísindamenn í Þýskalandi tóku
sneiðmyndir af heila tuttugu
manna meðan þeir voru að tefla
skák við tölvu. Helmingur skák-
mannanna voru stórmeistarar en
hinir tíu voru áhugamenn í listinni.
í hvert sinn sem skákmaður lék
manni á taflborðinu fór af stað
straumur í heilanum í nokkrar sek-
úndur. Hjá áhugamönnunum sást
þessi aukna heilastarfsemi einkum
miðsvæðis í gagnaugablaði heil-
ans, en hjá stórmeisturunum var
hins vegar tiltölulega lítið að ger-
ast í gagnaugablaðinu. Aftur á
móti varð hreyfingar oftast vart
hjá þeim í hvirfilblaði og ennis-
blaði heilans.
Gagnaugablað heilans er talið
gegna hlutverki þegar fólk er að
framkvæma ný verkefni og við
myndun skammtímaminnis, en
ennisblaðið og hvirfilblaðið tengj-
ast langtímaminninu og hæfileik-
um til að framkvæma flóknar
hreyfingar. ■
SELLURNAR Á FULLU?
Vladimirov Evgenl stórmeistarí frá
Kazakhstan var I þungum þönkum á skák-
móti I Kalkutta á Indlandi I slðustu viku.
Að öllum likindum var ekki mikið að ger-
ast I gagnaugablaðinu hjá honum.
AP/BIKAS DAS