Fréttablaðið - 14.08.2001, Side 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
14. ágúst 2001 ÞRIÐJUDACUR
1
É HÍíTr, p. i j * f /\ i ) iR' . . ÍJ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavlk
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjom@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins (stafrænu formi og (gagnabönkum
án endutgjalds.
| BRÉF TIL BLAPSINS |
Er Hiroshima
syndaaflausn?
Frá Sr. Toshiki Toma
sacan Mér sýnist að Hiroshima og
Nagasaki séu orðnar eins konar
„syndaaflausn" fyrir Japani. [...]
Því meiri athygli og samúð sem
fólk í heiminum hefur sýnt Japön-
um vegna Hiroshima og Nagasaki,
þeim mun sterkar hafa Japanir
upplifað sig sem fórnarlömb stríðs-
ins. Er það rétt hjá Japönum að skil-
ja söguna þannig? Árið 1910 gerði
Japan Kóreu að hluta lands síns.
Kína varð einnig í raun nýlenda
Japans árið 1932. Rétt eftir að
Kyrrahafsstríð hófst byrjuðu jap-
anskir hermenn að fara suður til
Filippseyja og ríktu loks víða frá
Indónesíu í austri til Burma (Myan-
mar) í vestri. Japan geymdi annars
vegar ríkar náttúruauðlindir þess-
ara landa, en krafðist þess um leið
að japönsk menning væri yfir
menningu heimamanna hafin. Jap-
anir neyddu m.a. íbúana til að læra
japönsku. f samanburði við Hiros-
hima og Nagasaki tölum við Japan-
ir of lítið um þessa hlið sögu okkar.
Japönsk stjórnvöld reyna meira að
segja að fela slíkt og vilja hætta að
kenna skólabörnum þessi sögulegu
tíðindi. Eins og fréttir hermdu ný-
lega hefur þessi villandi söguskoð-
un Japana leitt til mikilla mótmæla
i Suður- Kóreu. Slik mótmæli eru
sjálfsögð. Þetta ber vitni um hvern-
ig fólk og þjóðir „velja“ sér sögu og
staðreyndir til að segja næstu kyn-
slóðum. Slík saga sem er „valin“ að
geðþótta og eftir því sem hentar
sjálfsmynd þjóðar er ekki endilega
í samræmi við sannleikann, a.m.k.
ekki allan sannleikann. Ofangreint
atriði endurspeglar fyrirlitningu og
fordóma Japana gagnvart öðrum
Asíubúum. Kennsla á sögu eigin
þjóðar hefur mikil áhrif á ungu
kynslóðina og mótar sjálfsmynd
hennar. Japönsk yfirvöld hafa þeg-
ar framið stríðsglæpi gagnvart ná-
grannalöndum sínum. Ef þau
„velja" villandi sögukennslu og
endurframleiða fordóma meðal
ungrar kynslóðar, er það ekki annar
ítrekaður glæpur? Eru svona við-
horf ekki einnig svik til allra í
heiminum sem vilja íhuga Hiros-
hima og Nagasaki? Við Japanir
verðum að velta málinu fyrir okkur.
Japanir geta ekki verið stoltir af
sjálfum sér með því aðeins að fram-
leiða tölvur og selja bíla. Það er
nauðsynlegt að sýna hugrekki til að
viðurkenna sögu okkar í heild sinni.
Mér þykir vænt um að íslendingar
halda minningarathöfn vegna
Hiroshima og Nagasaki. Við verð-
um að íhuga hvað hægt er að gera
til að hindra að „önnur Hiroshima"
eigi sér stað í sögu mannkyns. Til
þess verðum við öll í heiminum að
horfa á eigin sögu í hreinskilni og
kenna næstkomandi kynslóð um
hana. Þetta á eins við um íslendinga
sem aðrar þjóðir heims. Guð
hjálpi okkur í þessu mikilvæga
verkefni. ■
i
1 tf g ® 41 fl H W 45 lL Verðsins og kjaranna vegna
Augafyrir auga
Auga fyrir auga... ef þannig er
haldið áfram verður allur
heimurinn blindur. Mig minnir að
þessi ummæli hafi verið eignuð
Gandhi og það er eins og þau séu
að verða að veruleika í ísrael og
Palestínu um þessar mundir.
Reyndar hefur verið ófriðlegt
þarna svo lengi sem ég man; Sex
daga stríð, Yom Kippur-stríð,
Intifada og hvað allt þetta hefur
heitið. Yfir 700 manns hafa beðið
bana síðustu 10 mánuði, flestir
þeirra venjulegir Palestínumenn,
sem voru á röngum stað þegar
ísraelsmenn þurftu að hefna ein-
hvers. Á annað hundrað ísraels-
menn hafa líka beðið bana. Þeir
voru á röngum stað þegar Palest-
ínumenn þurftu að hefna ein-
hvers. Svona virðist þetta halda
áfram endalaust í þessu landi þar
sem fátt virðist nú geta fengið að
dafna nema heiftin og hefndar-
þorstinn.
Ég hef ekki mikið vit á þessum
átökum og þekki sögu þeirra ekki
í neinum smáatriðum en það þarf
ekki sérfræðing til að sjá að í röð-
um beggja fá ofstækismennirnir
að vaða uppi. Þeir dæla á eldinn
allri þeirri olíu sem þeir geta. Það
dapurlega er að almenningur
virðist ekki knýja á um uppgjör
við ofstækismennina í eigin röð-
um. í fréttunum sjáum við ísra-
elsmenn, sem eru reiðir út í
Palestínumenn, og Palestínu-
menn, sem eru reiðir út í ísraela.
Einhvern veginn er erfitt að trúa
MáLmanm.
Pétur Gunnarsson
skrifar um Miðausturlönd
því að friður komist á í þessum
heimshluta fyrr en ísraelsmenn
eru búnir að gera upp við ofstæk-
ið sín megin og Palestínumenn
ganga í gegnum sams konar upp-
gjör við ofstækismennina í þeirra
röðum.
Einhvers staðar, steinsnar frá
þessum átakasvæðum, er fjall þar
sem flutt var ræða fyrir rúmum
2000 árum. í henni segir: „Þér hafi
heyrt, að sagt var: auga fyrir auga
og tönn fyrir tönn. En ég segi
yður: rísið ekki gegn þeim, sem
gerir yður mein. Nei, slái einhver
þig á hægri kinn, þá bjóð honum
einnig hina.“ ■
HÖRMUNCAR
Lögregla og björgunarlið að störfum á veitingastað í hafnarborginni Haifa í ísrael þar sem sjálfsmorðssprengjuárás var gerð á sunnudag. Tuttugu slösuðust og sprengjumaðurinn týndi lífi.
I nafni trúarsannfœringar
Sjálfsmorðssprengjumennirnir í Israel eru flestir um eða innan við tvítugt og fremja tilræðin í
fullvissu um paradísarvist og píslarvætti.
heilact stríð Það er til marks um
hve reiði, gremja og örvænting í
garð ísraelsmanna stendur djúp-
um rótum meðal Palestínumanna
að það virðist enginn skortur á
sjálfboðaliðum, sem eru reiðu-
búnir að fórna lífi sínu í sjálfs-
morðsárásum.
Yfirleitt eru það ungir, ógiftir
menn - öðru hvoru megin við tví-
tugt - sem fara á fjölmenna staði í
ísrael og sprengja sjálfa sig í loft
upp í von um að þeir taki með sér
sem flesta ísraelsmenn í dauðann.
Nýlega hafa hins vegar heyrst
raddir meðal trúarleiðtoga í
Palestínu sem fordæma sjálfs-
morðstilræðin og segja þau and-
stæð íslamskri trú, en það viðhorf
virðist eiga litlu fylgi að fagna við
þær aðstæður sem nú ríkja í sam-
skiptum ísraelsmanna og Palest-
ínumanna.
Að baki verknaðnum býr trúar-
leg sannfæring um að sá sem fell-
ur á þennan hátt í heilögu stríði,
fái fyrirgefningu synda sinna og
uppskeri heiðurssess í Paradís.
Flestir sprengjumennirnir eru
taldir tengjast annað hvort Ham-
as eða Jihad, hinum herskáu sam-
tökum Palestínumanna.
Sjálfboðaliða er að finna í
moskum, skólum og túarlegum
stofnunum meðal ungra manna
með sterka trúarsannfæringu og
eindreginn vilja til að kynna sér
trúarsetningar íslams. Þeir
mynda tengsls við útsendara Ji-
had eða Hamas og það er sagt
dæmigert að smám saman dragi
út tengslum þeirra við fjölskyldu
og vini eftir því sem þeir gefa sig
hinu pólitíska starfi og hinni trú-
arlegu kenningu meira á vald. Eft-
ir að þeir hafa gefið kost á sér til
sjálfsmorðsárása helga þeir sig
trúarlegum og andlegum undir-
búningi tilræðisins en fá svo hins-
ta verkefni sínu úthlutað 1-2 sólar-
hringum áður en stundin kemur.
Sagt er að sjálfsmorðsárásirn-
ar séu ávallt vandlega skipulagð-
ar eins og hver önnur hernaðarað-
gerð. Við skipulagninguna er val-
inn staður fyrir tilræðið, sem lík-
legur er til að vekja mikla athygli
fjölmiðla og hneyksla almenn-
ingsálitið.
Oftar en ekki er sprengju-
manninum fylgt síðasta spölinn á
tilræðisstaðinn af hópi samverka-
manna, sem kveðja hann hinstu
kveðju, nokkrum mínútum áður
en látið er til skarar skríða, að því
er fram kemur í fréttaskýringu á
fréttavef BBC.
Stundum hefur því verið haldið
fram að tilræðismennirnir séu
undir áhrifum eiturlyfja á dauða-
stundinni en slíkt er talin fjar-
stæða enda væri slíkt í algjörri
andstæðu við þá trúarsannfær-
ingu, sem að baki tilræðunum býr.
Tilræðismönnunum er heitið
því að annast verði um fjölskyld-
ur þeirra og sett hafa verið á fót
líknarfélög í því eina skyni að auð-
velda fjölskyldum píslarvottanna
framfærslu. ■
ORÐRÉTT
Fylgi og fjármál flokkanna
„Niðurstöður í tveimur skoðana-
könnunum voru birtar í síðustu
viku. Sjálfstæðisflokkurinn bætti
við sig fylgi í þeim báðum. 3% í
könnun Gallups fyrir Ríkisút-
varpið og fékk þar 41% fylgi - en
sú könnun stóð yfir allan júlímán-
uð. í DV-könnun, sem var gerð að
kvöldi þriðjudagsins 7. ágúst,
bætti Sjálfstæðisflokkurinn við
sig 6,5% og fékk 42,1%.
Frásagnir fjölmiðla af þessum
niðurstöðum benda til þess, að þar
hafi menn búist við því, að Sjálf-
stæðisflokkurinn missti frekar
fylgi en yki það vegna umræðn-
anna, sem verið hafa um mál Árna
Johnsens síðustu vikur. Kemur
þetta meðal annars fram í helgar-
grein eftir Birgi Guðmundsson,
fréttastjóra á DV, en hann virðist
gegna því sérstaka hlutverki á rit-
stjórn blaðsins að draga taum
Framsóknarflokksins. Gerir hann
sér von um, að forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins fipist svo í
umræðum um mál Árna Johnsens,
að það skaði flokkinn, þótt síðar
verði.
Þegar fréttamenn Ríkisút-
varpsins sögðu frá niðurstöðu
Gallup-könnunarinnar var bæði í
hljóðvarpi og sjónvarpi lögð áher-
sla á, að hægt hefði á fylgisaukn-
ingu Sjálfstæðisflokksins eftir
því sem leið á júlímánuð - var
þetta dregið sérstaklega út úr
könnunni í frásögn af henni en
ekki hitt, að flokkurinn hefði auk-
ið fylgi sitt um 3%. „
Björn Bjarnason á www.bjorn.is
„íslenskir sjtórnmálaflokkar
eru eyjur í hagkerfi landsins.
Þeir komast upp
með að leika sér
með fjármuni.
Þessir sömu
flokkar ala upp
karla og konur
og kenna þeim
listina að setja
lög. Landslög.
Ekki verður með nokkru móti
séð hvað mælir gegn því að bók-
hald stjórnmálaflokkanna verði
fólki aðgengilegt.
[...]
Flokkarnir ættu ekki að
hræðast neitt í þessu efni. Þeir
ættu milku fremur að vera stolt-
ir af því að sýna að bókhald þeir-
ra er í lagi og þar sé engu að
leyna. Ekkert er eðlilegra en að
fólk og fyrirtæki styðji flokka í
lýðræðisríki. Skrýtið er ef því
fylgir skömm og kinnroði.
Þeir sem hafa helst efast um
réttmæti þess að opna bókhald
flokkanna segja að auðvelt muni
reynast að fara í kringum slík
lög með ýmsum hætti. Það hafi
sannast erlendis og muni sann-
ast hér á landi. Þetta er fyrir-
sláttur, ef ekki
hreinasta bull.
Allir vita að
auðvelt er að
komast hjá því
að greiða skatta
á íslandi en
engum kemur
til hugar að af-
nema skattheimtuna af því einu
að hægt sé að fara í kringum lög-
in.“
Sigmundur Ernir í leiðara DV, 13. ágúst.