Fréttablaðið - 14.08.2001, Síða 12
12
FRETTABLAÐIÐ
14. ágúst 2001 ÞRIÐJUPAGUR
FYRIRTÆKJASALA
ISLANDS S,ÐUMÚLA1S
FYRIRTÆKI TIL SOLU
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
SIMI: 588 5160
Cissur V. Kristjánsson hdl. og
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
SÖLUSTJÓRI
GUNNAR JÓN YNGVASON
Landsbekkt verktakafvrirtæki
20 ára gamalt í sögun, borun,
broti, smágröfur, vörubílar, hellu-
lagnírogfl Ársvelta 90-100 milj,
góð verkefnast.
Pöbb í 276 fm eigin húsnæði ,
sem gefur ótal möguleika,
sannkallaður hverfispöbb, góður
arðbær rekstur.
Heildverslun með vörur fyrir
apótek ásamt fallegri gjafavöru.
Efnalauq oq bvottahús fín
staðsetning og mikið að gera.
Bókbandsstofa eitt elsta og
þekktasta fyrirtæki landsins í þes-
sari grein, mikill og góður
búnaður.
Blóma oq qiafavöruverslun
glæsilega innréttuð, góð vinnu
aðstaða, góð traust umsvif / afko-
ma.
Heilsustofa með sérstöðu mjög
vel þekkt á sínu sviði, sérlega
góður tækjakostur. Fullbókað alla
daga .
Barnafataverslun í Krinolunni
vinsælt fatamerki ásamt eigin
innflutningi, besti tíminn framun-
dan.
SDort-heild-oo smásala m/ vin-
sælt og þekkt merki, fatnaður,
skór og fl samningar við
fþróttafélög í gangi.
Liósrit . fiölritun plasthúðun og
fl Rótgróið og þekkt fyrirtæki, 3-4
stm.
Trésmiðia rótgróin í eigin hús-
næði traust verkefnastaða, góður
búnaður.
Nudd-. sólbaðs- oq snvrtistofa
á flottum stað , kraftmikið fyrirtæ-
ki með góða viðskiptavild, nýleg
tæki.
Tölvuverslun / verkstæði með
eiginn innflutn. á heimsþekt.
tölvum og íhlutum, netversl og fl.
Framleiðslufvrirt. f áli oo plasti
eigin innflutningur, þekkt,. skilar
góðum hagnaði ár eftir ár.
Veitinoastaður. sölutun. vide-
oleioa með 2 bílalúgur, sæti fyrir
70 inni, nýr vandaður búnaður,
framhaldsskóli beint á móti.
Ársvelta ca 80 milj.
Videoleioa með einstaka sérstöðu
á markaðnum, mikið að gera og
afar góð afkoma, þægilegur rek-
stur.
Skvndibitastaður oo bar í úthverfi
borgarinnar, vel útbúið eldh, góðar
innrétt, gott að gera , risaskjár og
fl.
Heilsustudió fullbókað frá 9-21
Eurowave, UCW leirvafn, Ijósaklefi,
hljóðbylgjur .sogæðanudd og G-5.
Sólbaðstofa ein sú allra vinsælas-
ta og þekktasta , mikið að gera og
nú er flottur tími framundan, topp
bekkir.
Kvenfataverslun á Laugavegi
ásamt heildsölu , besti tíminn fra-
mundan, heimsþekkt merki.
Atvinnuhúsnæði
Smiðshöfði 276 fm góð
innkeyrsluhurð, lofthæð ca 5m,
gott lagerpláss og skrifstofa, mal-
bikað gott plan. Laust fljótlega eða
strax.
Bæiarflöt Grafavooi 1436 fm van-
dað húsn, 7-8 m lofthæð á lager,
glæsilegar skrifst.og sýningar salur
full frágengin lóð. Áhv.77milj.
Fiárfestar Lauoaveour glæsilegt
293 fm endurnýjuð eign 10 ára lei-
gus. tekjur 5,4. verð 49,8 milj,áhv
36 m.
Enoiateiour - Listhúsið . glæsi-
legt verslunar eða þjónusturými.
Dalveour - Kópavoai 280 fm sér-
lega hentugt fyrir heildverslun, 600
metrar í Smáralind, áhv 19,3 milj
Salaveaur - Kóoavoai 860 fm
þjónusturými skiptanlegt í
380/480.
Kaplahraun - Hf 351 fm
iðnaðarhús góð lofthæð, trésmiðja
er í húsnæðinu sem einnig er til
sölu.
Bæiarlind - Kópav. til leigu glæsi-
legt verslunarrými á áberandi stað,
með miklum gluggum, innk.h.
VANTAR ALLAR STÆRÐIR OG
GERÐIR HÚSNÆÐIÐ Á SKRÁ
Hárs og sýningarhússins Unique
Laugarvegi 7 68/Srautarholtsmegin
bjóðum við Marta og Sæunn hana /óu velkomna
til starfa.
Erum hárgreiðslustofa sem er eirmig með sýningarsal
sem er leigður út til ýmissa nota.
UNIQUE
Hár og sýningarhúsið Unique Laugarvegi 168
Brautarholtsmegin Sími 552 6789
Bónstöðin TEFLONjg
GSM 821 4848 Sími 567 8730 ■
Lakkvörn
2. ára ending
z
0
Teflonhúðun Djúphreinsun
Blettanir Mössun Alþrif
Opið alla virka daga 8.30-18.00
www.teflon.is • Krókhálsi 5 • Toughseal umboðið
J
IL
III
h
Tíð innbrot í Reykjavík:
Bakvakt þjófa
kölluð út
löcreclumál „Það er engu líkara
en að kölluð hafi verið út bakvakt
meðal þjófa,“ sagði viðmælandi
Fréttablaðsins hjá lögreglunni í
Reykjavík. Óvenjumikið var um
innbrot í bíla og iðnaðarhúsnæði
nú um helgina og þaðan stolið mis-
miklum verðmætum. Að sögn við-
mælandans var tilkynnt um
fimmtán innbrot í gærmorgun fyr-
ir utan þau sem framin voru föstu-
dags- og laugadagskvöld. Sagði
hann innbrotin ekki staðbundið
heldur færi fram víða í borginni þó
gat hann þess að Þorragatan væri
mjög vinsæl en þar legði fólk bíl-
um sínum þegar það færi í innan-
landsflug en þess má geta að engin
skipulögð vakt er á bílastæðinu.
Þegar Fréttablaðið leitaði skýr-
ingar á þessum tíðu innbrotum
sagði viðmælandi blaðsins fleiri
fara á stjá þegar skyggja færi.
Lögreglan minnir enn og aftur eig-
endur á að skilja ekki eftir nein
verðmæti í bílunum. Nánari leið-
beiningar er hægt að fá á heima-
síðu lögreglu www.logreglan.is. ■
INNBROT VORU TÍÐ UM HELGINA
Lögreglan minnir eigendur bifreiða á að
skilja ekki eftir nein verðmæti í bílum sín-
um sem gætu freistað misindismannanna.
Utihátíðir eins og
rússnesk rúlletta
Fann til vanmáttar á Eldborgarhátíðinni. Vonast eftir að foreldrar hafi
manndóm í sér að láta ekki undir þrýstingi unglinga. Karlmenn fara
ekki varhluta af því að vera byrlað nauðgunarlyfi.
EYRÚN JÓNSDÓTTIR
„Við höfum séð fórnarlömb smjörsýru á slysadeildinni. Sumir einstaklinganna hafa jafnvel
verið við dauðans dyr eða hreinlega dánir þegar þeir komu inn og mátti ekki seinna vera."
VERSLUNARMANNAHELCIN „Þetta Var
skelfilegt ástand og var manni af-
skaplega misboðið og fann til mik-
ils vanmáttar," sagði Eyrún Jóns-
dóttir, hjúkrunarfræðingur á
neyðarmóttöku vegna nauðgunar,
um ástandið á Eldborgarhátíðinni.
Eyrún sagði muninn nú en áður al-
gjöran. Sagði hún þjóðfélagið orð-
ið harðara í dag, að meira væri
um ofbeldi og hættuleg lyf. Líkti
hún ástandinu á útihátíðum við
rússneska rúllettu hvort krakkar
slyppu eða ekki. Eyrún lýsti að-
búnaði læknanna á Eldborg við
það ástand sem skapaðist oft á
vígvöllum og jafnvel þar þætti
hann ekki boðlegur. „Þeir sem
stóðu að hátíðinni höfðu hreinlega
ekki kunnáttu til að meta hvaða
aðbúnaður var nauðsynlegur og
héldu hana í góðri trú um að þeir
hefði uppfyllt öll þau skilyrði sem
þeim var sett.“
Eyrún var spurð út í notkun
smjörsýru. „Við getum engan
veginn lagt mat á hvort smjör-
sýra hafi verið notuð í nauðgun-
armálunum sem upp komu á Eld-
borg. Aftur á móti hafa alltaf ver-
ið að koma upp mál þar sem mjög
mikill grunur leikur á að einhver
lyf hafi verið notuð og hafa augu
okkar fyrst og fremst beinst að
lyfinu „rohypnol." Eyrún sagði þó
ekki liggja fyrir neinar sannanir
þar sem bæði lyfin færu mjög
fljótt úr blóði fórnarlambanna.
Þrátt fyrir það hafi allt bent til
þess þau hafi verið notuð miðað
við lýsingar. Eyrún sagði karl-
menn ekki fara varhluta af því að
vera byrlað ólyfjan. „Á hverju ári
höfum við tekið á móti allt frá
einum upp í sex karlmönnum og
hafa þeir verið á öllum aldri en
meirihlutinn ungir menn. Þetta
eru ekki endilega samkynhneigð-
ir menn sem lent hafa í þessum
óþokkum sem beita þessu fyrir
sig.“
Eyrún sagði vonast til þess að
öll sú fjölmiðlaumræða sem fram
hefur farið verði til þess að styrk-
ja foreldra og aðra forráðarmenn
í því að láta ekki undir þrýstingi.
„Eg er búin að hitta foreldra sem
hafa þakkað fyrir þessa umræðu
og hafa margir þeirra jafnvel
sagst hafa þurft að flýja land um
verslunarmannahelgar til að
forða krökkunum frá þrýstingi
vina og kunningja að fara á útihá-
tíðir.“ Eyrún sagðist vilja sjá að
þeim lögum sem í landinu væru
yrðu fylgt betur eftir. „Við eigum
að hafa manndóm í okkur til að
fylgja þeim eftir og jafnvel þá
verður hægt að koma í veg fyrir
einhvern harmleik. Auðvitað
munum við aldrei sjá fyrir end-
ann á öllu en við erum þá alla
vega að sýna góða viðleitni til að
koma í veg fyrir stórann hluta,"
sagði Eyrún að lokum.
kolbrun@frettabladid.is
Fidel Castro 75 ára:
Varði afmælisdeginum
í frumskógum Venezuela
VENEIUELA.AP Fidel Castro varði 75
ára afmælisdeginum djúpt í frum-
skógum Venezuela. Eftir að hafa
haldið uppá afmælið sitt um helg-
ina, ásamt nánum vini sínum,
Hugo Chavez forseta Venezuela.
Þeir heimsóttu m.a. Angel Falls og
Canaima þjóðgarðinn á sunnudag.
Castro hélt til landamæraþorps-
ins Santa Elena de Uairen ásamt
Chavez og Fernando Henrique
Cardoso forseta Brasilíu þar sem
þeir Chavez og Cardoso hleyptu
formlega af stokkunum orkuverk-
efni. Castro sagði að verkefni sem
þessi væru lykillinn að þróun í
Suður-Ameríku. ■
CASTRO OG CHAVEZ f CANAIMA ÞJÓÐGARÐINUM
„Þetta er besti afmælisdagur sem ég hef átt," sagði Castro