Fréttablaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 13
PRIÐIUDAGUR 14. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
13
Fertugsafmælis Berlínarmúrsins minnst:
Veldur enn
tilfinningaróti
berlín. ap í Berlín, höfuðborg
Þýskalands, var þess í gær minnst
að fjörutíu ár eru frá því byrjað var
að reisa Berlínarmúrinn illræmda,
sem skipti borginni í tvo hluta. Það
sem setti mestan svip á daginn var
þó ekki saga múrsins heldur
áhyggjur margra af því hvort
Flokkur lýðræðislegra sósíalista
(PDS), sem er arftaki gamla
Kommúnistaflokksins í Austur-
Þýskalandi, hafi í raun og veru sagt
skilið við fortíðina.
PDS hlaut 40% atkvæða í kosn-
ingum sem fram fóru í Berlín árið
1999, en búist er við því að fylgi
hans verði enn meira í kosningum
sem fram eiga að fara í október
næstkomandi. Lögreglan fjarlægði
mann sem reyndi að fjarlægja
blómsveig sem Gregor Gysi, leið-
togi PDS lagði að minnismerki um
múrinn. Einnig var gert hróp að
Gerhard Schröder kanslara Þýska-
lands þegar hann lagði blómsveig
þar. Schröder hefur jafnan harð-
neitað því að samstarf við PDS
komi til greina. ■
„Við erum ennþá þjóðin" stendur á hvíta borðanum sem festur hefur verið á gamlan varð-
turn frá tímum Berlínarmúrsins, en í baksýn eru tvö af nýju stórhýsunum sem reist voru
þar sem múrinn stóð áður í miðborg Berlinar.
Ilögreglufréttir
Eftir hádegi á föstudag var til-
kynnt um stuld á málverki af
myndlistarsýningu í Laugardags-
höll. Um er að ræða akrýlmynd af
Bláa Lóninu. Þá var einnig tilkynnt
um þjófnað á vörum úr tollvöru-
geymslu við Héðinsgötu.
Bifreið var ekið í gegnum rúðu í
húsi við Fossaleyni um hádegi
á laugardag. Um var að ræða ung
börn sem tekið höfðu bifreiðina úr
gír með þeim afleiðingum að hún
rann af stað og endaði inn um
glugga á nærliggjandi fyrirtæki.
Verðmætum tölvubúnaði var
stolið þegar farið var inn um
glugga í fyrirtæki í Höfðahverfi á
laugardagskvöldið. Málið er í rann-
sókn.
Breskar konur þrá
hið fullkomnaútlit
Líkamshlutarnir scm konum líkar verst við í sínu fari eru mjaðmir og
læri, rassinn, mittið, fótleggirnir og handleggirnir.
heilsa Tveir þriðju hlutar breskra
kvenna eru það óánægðir með lík-
ama sinn að þeir eru tilbúnir til að
fara í lýtaaðgerð til þess að ná
hinu fullkomna útliti. Þetta kemur
fram í nýlegri breskri skoðana-
könnun, sem birt er á fréttavef
BBC, en það var tímaritið Top
Sante sem stóð fyrir könnuninni.
Af þeim 3000 konum sem tóku
þátt, sögðust 90% þeirra vera nið-
urdregnar vegna líkama síns.
Næstum þrír fjórðu hlutar kvenn-
anna hugsa um útlit og lögun lík-
ama síns á hverjum einasta degi.
í könnuninni var einnig spurt
til hvaða konu þær litu mest upp
til hvað varðar gott útlit og fékk
sönggyðjan Madonna flest at-
kvæði.
Fallegasti karlmaðurinn var
aftur á móti gamli sjarmörinn
Sean Connery.
]lögreglufréttir|
Vinnuslys varð aðfaranótt
laugardagsins þegar verið
var að taka niður undirstöður
brúa á mótum Reykjanesbrautar
og Breiðholtsbrautar. Átján menn
höfðu verið uppi á bitum sem
féllu niður. Tveir starfsmenn
slösuðust og kvartaði annar þeir-
ra undan eymslum í hálsi en hinn
var með brotna rist. Var þeim
báðum ekið á slysadeild.
Vegfarandi tilkynnti lögregl-
unni í Reykjavík um tvo
menn sem höfðu verið að skem-
ma bifreiðar við Klapparstíg.
Höfðu þeir unnið miklar
skemmdir á bifreiðunum. Menn-
irnir náðust og voru færðir í
fangageymslu.
Brotist var inn í kaffihús ná-
lægt miðborginni aðfaranótt
laugardagsins. Við innbrotið var
brotin ein rúða, farið í sjóðsvél
og stolið nokkru af peningum. Þá
var maður handtekinn síðdegis á
laugardag í verslun í vesturbæn-
um en hann hafði stungið á sig
vörum að andvirði 55.000 kr.
Tvö umferðaróhöpp urðu síð-
degis á sunnudag í nágrenni
Sauðárkróks. Annar áreksturinn
var á Ólafsfjarðarvegi við Stór-
holt þegar maður reyndi framúr-
akstur. Flytja þurfti ökumanninn
á sjúkrahúsið á Akureyri. í hinu
tilvikinu var um að ræða
útafakstur við Kjartansstaði.
Engan sakaði.
ItlASA
ItiTERSATtO* 4 i
Gæðanna vegna
Hinn fullkomni kvenlíkami í
augum svarenda var blanda af
andliti leikkonunnar Catherine
Zeta Jones, hári vinarins Jennifer
Aniston, barmi leikkonunnar
Elizabeth Hurley, leggjum fyrir-
sætunnar Elle Macpherson og
rassi Jennifer Lopez. Hinn full-
komni karlmaður var hins vegar
blanda af andliti hjartaknúsarans
Brad Pitt, hári fótboltakappans
franska, David Ginola, brjóst-
kassa söngvarans Robbie Willi-
ams, rassi Mel Gibson og fótleggj-
um David Beckham, fyrirliða
Manchester United.
Þrír fjórðu hlutar þeirra kven-
na sem höfðu farið í lýtaaðgerð
sögðu að hún hefði bætt líf þeirra
og 71% þeirra myndu gera slíkt
hið sama aftur. Fjórar af hverjum
10 sögðust á hinn bóginn hafa orð-
ið fyrir vonbrigðum með fegrun-
araðgerðina sem þær fóru í.
Þeir fimm líkamspartar sem
konunum líkaði verst við í fari
sínu voru, í réttri röð; mjaðmir og
læri, rassinn, mittið, fótleggirnir
og loks handleggirnir. Auk þess
var helmingur kvennanna óá-
nægður með brjóstin á sér.
Samkvæmt könnuninni töldu
svarendurnir að konur næðu há-
punkti aðdráttarafls síns 32 ára að
aldri en að karlmenn næðu sínum
hápunkti 35 ára gamlir.
„Breskar konur eru með líkam-
legt útlit á heilanum og það
skemmir fyrir lífi þeirra," sagði
Juliette Kellow, ritstjóri Top San-
te tímaritsins. „í næstum því 40 ár
hefur það að vera aðlaðandi verið
tengt við grannan líkama. En þrá
kvenna eftir fullkomnum líkama
er ekki lengur tengd líkams-
þyngd, því meirihluti þeirra kven-
FLOTTUST
Madonna er fyrirmynd breskra kvenna
hvað varðar fallegt útlit og gott likamsá-
stand. Næstum því tveir þriðju hlutar svar-
enda töldu að kynlíf sitt væri betra ef þær
væru i réttu líkamsástandi. 80% kvenn-
anna sögðust einhvern timann hafa farið í
megrun, en ein af hverjum 10 sagðist vera
i megrunarkúr.
na sem þegar voru grannar sem
svöruðu könnuninni voru samt
sem áður óánægðar með líkama
sinn,“ bætti hún við að lokum. ■
Kambódía:
Réttað yfir
kmerunum
PHNOM PENH. KAMBÓDÍU. flP Norodom
Sihanouk, konungur Kambódíu,
hefur staðfest lög sem kveða á um
stofnun dómstóls þar sem réttað
verður yfir leiðtogum Rauðu kmer-
anna vegna glæpa gegn mannkyni.
Lögin gera ráð fyrir að dómstóllinn
verði starfræktur í samvinnu við
Sameinuðu þjóðirnar. Hluti af þeir-
ri samvinnu felst í því að við dóm-
stólinn munu starfa erlendir dóm-
arar og saksóknarar.
Lagasetningin er talin marka
stórt skref fram á við í baráttunni
fyrir því að láta fjöldamorðingja í
stjórn Rauðu kmeranna svara til
saka fyrir mannréttindabrot sem
framin voru í valdatíð þeirra. Með-
an Rauðu kmerarnir voru við völd í
Kambódíu frá 1975 til 1979 létust
1,7 milljón landsmanna vegna sjúk-
dóma, hungursneyðar og of mikils
álags að ógleymdum aftökum sem
stjórnvöld stóðu fyrir.
Pol Pot, leiðtogi Rauðu kmer-
anna á þessum tíma lést árið 1998
en flestir samstarfsmenn hans eru
enn á lífi og búa í Kambódíu. Enn
sem komið er hefur enginn þurft að
svara til saka fyrir ódæðin sem
unnin voru á þeirra vegum. ■
1
DUO MIX
vélar fyrir
örugga
og rétta
blöndun.
Faglegt að velja og nota
*, k , á , á , L. , 't-
jLJ
Við Duomix 2000 er fáanlegt fjölbreytt úrval fylgibúnaðs sem auðvelt er að setja á og fjarlæqja.
Má þar nefna síló, blástursbúnað, ýmis konar sprautur og stúta og búnað fyrir tilbúnar, hrærðar
blöndur.
Tæknilegar upplýsingar eru á
www.sandurimur.is
Viðarhöfði 1,110 Reykjavík.
Sími: 567 35 55 • Myndsendir: 567 35 42 • www.sandurimur.is
Vörurnar fró Sondi ímúr fúst i öllum helstu byggingavöruverslunum