Fréttablaðið - 14.08.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
14. ágúst 2001 ÞRIÐJUDAGUR
Spenna í herbúðum Liverpool:
Verður Fowler
settur á sölulista?
Símadeild kvenna:
Stórsig-
urKRá
FH
knattspyrna Tveir leikir fóru
fram í Símadeild kvenna í gær.
KR sigraði FH 5-0 á heimavelli
og Valur sigraði Stjörnuna 1-0 í
Garðabænum. KR er því enn í 2.
sæti deildarinnar tveimur stigum
á eftir Breiðabliki, en FH er í
mikilli fallhættu í 7. sætinu,
þremur stigum á eftir Grindavík.
knattspyrna Óvissa ríkir nú um
framtíð Robbie Fowler hjá Liver-
pool, eftir að leikmaðurinn var ekki
einu sinni valinn í hópinn fyrir leik-
inn um Góðgerðarskjöldin gegn
Man. Utd. á sunnudaginn.
Breskir fjölmiðlar sögðu frá því
í gær að Fowler hefði verið mjög
ósáttur með að vera hvorki í liðinu
né í hópnum gegn Man. Utd. sér-
staklega þar sem Gerard Houllier,
framkvæmdastjóri Liverpool, hefði
ekki heldur valið hann í liðið fyrir
leikinn gegn FC Haka í und-
ankeppni Meistaradeildar Evrópu í
síðustu viku.
Fowler hefur undanfarið átt í
samningaviðræðum við Liverpool
og er talið að atburðir síðustu daga
geti haft áhrif á þær viðræður.
Houllier hefur sagt að hann vilji að
samið verði við alla leikmenn sem
eiga minna en tvö ár eftir af samn-
ingum sínum og að ef leikmenn
dragi það á langinn muni þeir verða
seldir. Forráðamenn Liverpool vilja
ekki að sagan um Steve McManam-
an endurtaki sig, en hann var met-
inn á 12 milljónir punda þegar Real
Madrid fékk hann án þess að greiða
nokkuð fyrir hann, þar sem hann
var samningslaus.
Ef Fowler verður settur á sölu-
lista er talið að lið eins og Chelsea,
Leeds, Aston Villa og Blackburn
muni bítast um kappann. ■
SLACUR Á WHITE HART LANE
Kasey Keller lendir I samkeppni við Neil
Sullivan um treyju númer eitt.
Leikmannakaup í
Englandi:
Kaninn Kell-
er til Spurs
knattspyrna Markvörðurinn
Kasey Keller hefur samþykkt að
ganga til liðs við Tottenham, sem
þurfti ekki að greiða fyrir hann
þar sem hann var samningslaus.
Keller er 31 árs Bandaríkja-
maður og fór frá spænska liðinu
Rayo Vallecano fyrr í sumar. „Eft-
ir að hafa íhugað tilboðin sem bár-
ust, frá Iiðum eins og Besiktas,
Tottenham og öðru stóru ensku
liði, hefur Keller ákveðið að skri-
fa undir hjá Spurs,“ sagði um-
boðsmaður hans. Hann var í fyrs-
ta sæti hjá Tottenham en lendir í
samkeppni við Skotann Neil Sulli-
van um treyju númer eitt.
Keller fór í læknisskoðun í
gærmorgun. Umboðsmaður hans
vildi ekkert segja um hversu lang-
an tíma samningurinn nær yfir en
sagði alla ánægða. Glenn Hoddle
er búinn að vera að leita að manni
til styrktar Sullivan síðan Ian Wal-
ker fór til Leicester. Hann til-
kynnti á laugardag að hann ætlaði
að næla í markvörð og varnar-
mann fyrir fyrsta leikinn á móti
Aston Villa á laugardag.
—+—
WUSA:
Charge í
undanúrslit
knattspyrna Philadelphia Charge tap-
aði síðasta leiknum sínum í WUSA-
deildinni í knattpspyrnu á sunnudag-
inn. Charge tapaði 2-1 fyrir Boston
Breaker, en þrátt fyrir tapið komst
Iiðið í úrslitakeppnina, sem hefst á
laugardaginn. Margrét Ólafsdóttir
lék allan leikinn gegn Breakers, en
Rakel Ögumundsdóttir kom inn á á
46. mínútu.
Charge varð í 4. sæti deildarinnar
og leikur gegn Atlanta Beat undanúr-
slitum á sunnudaginn í Atlanta. í hin-
um undanúrslitaleiknum, sem verður
á laugardaginn, mætast New York
Power og Bay Area CyberRays. ■
Atvinnuhúsnæði atvinnurekstur,
iyrirtæki, stór og smá
Skagamenn í toppsætið
Ovænt úrslit litu dagsins ljós í Símadeild karla í gær þegar Fylkir tapaði fyrir Breiðablik 1-0 í Ár-
bænum og Fram sigraði Grindavík 3-1 á útivelli. Skagamenn komust í toppsæti deildarinnar
með sigri á Val, en KR er komið í fallsæti.
knattspyrna Óvænt úrslit urðu í
Símadeild karla í gærkvöld þegar
botnlið Breiðabliks sigraði topplið
Fylkis í Árbænum 1-0 og Fram
sigraði Grindavík á útivelli 3-1.
Skagamenn sigruðu síðan Vals-
menn örugglega 2-0 uppi á Akra-
nesi og með sigrinum komst ÍA í
toppsæti deildarinnar.
Leikur Fram og Grindavíkur
var bráðfjörugur. Fram komst í 1-
0 með marki frá Viðari Guðjóns-
syni, en eftir það sóttu Grindvík-
ingur töluvert og uppskáru mark
eftir um hálftíma leik þegar Óli
Stefán Flóventsson sendi knöttinn
örugglega í netið af stuttu færi. Á
43. mínútu fékk Sinisa Kekic, leik-
maður Grindavíkur, rautt spjald
fyrir brot á Ingvari Ólassyni inni í
vítateig Framara. Þremur mínút-
um síðar komust Framarar yfir í
leiknum með marki, sem Ásmund-
ur Arnarson skoraði eftir góðan
undirbúning Hauks Snæs Hauks-
sonar, sem var í byrjunarliðinu
þar sem Þorbjörn Atli Sveinsson
var meiddur.
í síðar hálfleik voru Grindvík-
ingar meira með boltann en náðu
aldrei að skapa sér almennileg
færi, fyrr en á 80. mínútu þegar
Grétar Hjartarson komst einn inn
fyrir. Gunnar Sveinn Magnússon,
markvörður Fram, braut á Grét-
ari fyrir utan teig og fékk að líta
rauða spjaldið fyrir vikið. Þegar
þarna var komið höfðu Framarar
þegar skipt þremur leikmönnum
inn á og tók Ingvar Ólasson því
við markmannshönskunum og
stóð í markinu það sem eftir lifði
af leiknum. Síðust 10. mínúturnar
voru æsispennandi, en Grindvík-
ingar náðu aldrei að ógna marki
Fram að ráði. Fram beitti hins
Ferguson um dómarann:
Gaurinn of
stressaður
knattspyrna Sir Alex Ferguson segir
dómarann Andy D’Urso hafa verið
of stressaðan til að ráða við álagið í
leik Manchester og Liverpool um
Góðgerðaskjöldinn á sunnudag.
D’Urso neitaði Manchester um
tvær vítaspyrnur og liðið tapaði með
einu marki gegn tveimur. Fyrir
tveimur árum síðan lenti D’Urso í
rifrildi við Roy Keane og nokkra
aðra leikmenn United þegar þeir
mótmæltu harðlega dómi hans í leik
á móti Middlesbro. Ferguson vor-
kennir D’Urso og segir hann enn
hafa leikinn við Middlesbro á hugan-
um. Þegar leikmenn hans tóku í
hendina á dómaranum eftir að hafa
horft á eftir skildinum voru þeir
vægast sagt óánægðir með ákvarð-
anir hans.
D’Urso dæmdi Liverpool víti þeg-
ar leikurinn var rétt hafinn er Keane
braut á Danny Murphy. Síðan neitaði
hann Manchester um tvö, þó svo að
greinilegt væri að varnarmaðurinn
vegar skyndisóknum og fékk
nokkur góð tækifæri til að bæta
við mörkum. Það gerðist hins veg-
ar ekki fyrr en komið var fram
yfir venjulegan leiktíma, en þá
skoraði Andri Fannar Ottóson eft-
ir að hafa komist einn í gegnum
Grindarvíkurvörnina.
Óvæntustu úrslit gærdagsins
litu dagsins ljós í Árbænum þar
sem Fylkir tók á móti Breiðablik.
Með sigri hefðu Fylkismenn getað
styrkt stöðu sína á toppi deildar-
innar, en hjá Breiðabliki var það
annaðhvort að duga eða drepast,
enda liðið í neðsta sæti deildarinn-
ar. Úrslit leiksins réðust strax á
SIR ALEX
Segir dómarann D'Urso hafa tveggja ára
gamalt atvik milli hans og leikmanna Man.
Utd. á heilanum og látið það rugla dóm-
gæsluna.
Stephane Henchoz væri í bæði skip-
ti í handbolta inni í vítateig. „Það
skiptir ekki máli hversu góða þjálfun
maður hefur í stjórnun, knattspyrnu,
dómgæslu eða hverju sem er. Það
skiptir öllu máli að geta ráðið við erf-
iðar aðstæður. Gaurinn var einfald-
lega of stressaður fyrir þetta, ég vor-
kenni honum. Hann er ágætur mað-
ur og ágætur dómari, hann réði bara
ekki við þetta. ■
annarri mínútu, þegar Kristján
Brooks skoraði fyrir Breiðablik,
sem nú eygir von á að halda sæti
sínu í deildinni. Liðið er nú einu
stigi á eftir KR, sem komið er í
fallsæti og þremur stigum á eftir
Fram. KR á hins vegar einn leik
til góða.
IA vann góðan sigur á Val uppi
á Akranesi. Skagamenn gerðu út
um leikinn í fyrri hálfleik með
tveimur mörkum frá Grétari
Rafni Steinssyni. Með sigrinum
komst ÍA í efsta sæti deildarinnar,
en liðin eiga flest eftir að leika
fimm leiki á íslandsmótinu. Það
stefnir því í spennandi lokasprett,
knattspyrna Ian Holloway, fram-
kvæmdastjóri QPR, lofaði Stoke í
hástert eftir liðanna á laugardag-
inn sem QPR sigraði 1-0. Hann
sagði að Stoke myndi án efa vera í
toppbáráttunni í 2. deildinni í vet-
ur.
„Þeir eru stórir og sterkir, eins
og við bjuggumst við,“ sagði Holl-
oway um leikmenn Stoke. „Þeir
eru ótrúlega vel skipulagðir og
búa yfir miklum hæfileikum. Við
þurftum að hafa mjög mikið fyrir
sigrinum.
Við höfum byrjað tímabilið
með sigri á einu besta liði deildar-
innar, sem setti okkur undir mikla
pressu í síðar hálfleik. Við stóð-
umst hins vegar pressuna og ég er
stoltur af mínum leikmönnum -
þeir fórnuðu sér algjörlega í leik-
inn.“
QPR, sem varð næstum gjald-
þrota fyrir skömmu, hefur átt
erfitt uppdráttar undanfarin
misseri og féll m.a. úr 1. deildinni
í vor. Það er þekkt herbragð hjá
bæði á botni deildarinnar sem og
á toppi hennar. ■
SlMAPEILPIN
Lið Leikir U J T Mörk Stig
ÍA 13 8 2 3 20:9 26
Fylkir 13 7 4 2 23:9 25
ÍBV 13 7 2 4 11:11 23
FH 13 6 4 3 15:12 22
Grindavík 12 6 0 6 19:20 18
Valur 13 5 2 6 15:19 17
Keflavik 13 4 4 5 18:20 16
Fram 13 4 1 8 18:21 13
KR 12 3 2 7 9:16 11
Breiðablik 13 3 1 9 12:23 10
CUÐJÓN ÞÓRÐARSON
lan Holloway, framkvæmdastjóri QPR,
hrósaði Guðjóni Þórðarsyni og leikmönn-
um Stoke fyrir góðan leik.
þjálfurum, ekki síst þeim sem
eiga í vanda, að hrósa andstæð-
ingnum sérstaklega ef lið þeirra
hefur unnið hann. Með því gera
þeir meira úr sigri síns liðs og
byggja upp sjálfstraust leik-
manna. ■
Framkvæmdastjóri QPR:
Lofaði Stoke í hástert