Fréttablaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDACUR 14. ágúst 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Heimslistinn í tennis:
Kuerten upp
fyrir Agassi
tennis Brasilíski tennisleikarinn
Gustavo Kuerten skaust upp fyrir
Andre Agassi í efsta sæti heims-
listans í golfi eftir sigur á Patrick
Rafter í úrslitum á sterku tennis-
móti í Cincinati. Kuerten hefur
þar með sigrað á sex mótum það
sem af er árinu, m.a. á Opna fran-
ska meistaramótinu. Eftir rúman
mánuð hefst Opna bandaríska
meistaramótið og verður Kuerten
að teljast afar sigurstranglegur á
því.
Andre Agassi, féll út í fyrstu
umferð á mótinu í Cincinati og
virðist vera í einhverri lægð.
BESTUR
Gustavo Kuerten hefur sigrað á sex mót-
um það sem af er árinu.
Hann er samt sem áður í 2. sæti
heimslistans. Spánverjinn Juan
Carlos Ferrero er þriðja sæti list-
ans og Ástralarnir Patrick Rafter
og Lleyton Hewitt eru í 4. og 5.
sæti. Rússinn Yevgeny Kafelnikov
klifraði upp um tvö sæti á listan-
um úr því 10. í það 8. ■
Knattspyrnuleikur í Gvatemala:
Elding banaði tveimur
KNATTSPYRNA Tveir lét-
ust og tíu manns eru
enn á spítala með slæm
brunasár eftir að eld-
ingu laust niður á fót-
boltavöll í Gvatemala á
laugardag. Alls slösuð-
ust rúmlega 25 manns.
Óhappið varð á velli í
Chiquimililla, sem er
120 km frá höfuðborg-
inni Gvatemala City en
Guatemala liggur milli
Hondúras og Mexíkó.
Leikurinn var á milli
þriðju deildar liðanna Deportivo
Chiquimulilla og Pueblo Nuevo
ÞRUMUR OG ELDINGAR
Þrátt fyrir að veðrið væri orðið vafasamt í seinni hálfleik var ákveðið að
halda áfram með leik tveggja þriðju deildar liða í Guatemala.
Vinas. Meirihluti seinni hálfleiks
var liðinn þegar stormurinn gerði
vart við sig. Ákveðið
var að halda leiknum
áfram, þrátt fyrir að
flestir áhorfendanna
flúðu völlinn vegna
mikillar rigningar. Eld-
ingunni laust niður í
handrið, sem liggur í
kringum völlinn, og all-
ir á honum misstu sam-
stundis fótanna. Tveir
leikmenn, Rosbin Yum-
an 16 ára og Lester
Marrioquin 24 ára létust
um leið. Áhorfendurnir
sem voru eftir á pöllunum fundu
ekki fyrir neinu. ■
Ferguson fór á bak við PSV árið 1998:
Atti leynilegan fund
með Jaap Stam
Jaap Stam segir í ævisögu sinni að hann og Alex Ferguson hafi hist i íbúð við Schipol-flug-
völlinn án þess að forráðamenn PSV Eindhoven hafi vitað af því.
knattspyrna Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri Man. Utd.
braut reglur Enska knattspyrnu-
sambandsins þegar hann keypti
hollenska varnarjaxlinn Jaap
Stam frá PSV Eindhoven árið
1998. Þetta kemur fram í ævi-
sögu Stam, sem ber heitið „Head
to Head.“
í bókinn greinir Stam frá því
að Ferguson hafi haft samband
við sig áður en hann ræddi við
PSV, en samkvæmt reglum Enska
knattspyrnusambandsins er ólög-
legt að ræða við leikmann áður
en rætt er við félagið sem hann
er samningsbundinn.
„Við urðum að fara mjög var-
lega svo að félagið (PSV) kæmist
ekki að því að við værum að ræða
saman,“ segir Stam í bók sinni.
Það var Tom van Dalen, um-
boðsmaður Stam, sem skipulagði
fund Stam og Ferguson og hittust
þeir í íbúð nálægt Schipol-flug-
vellinum. í bókinni segir Stam að
þeir hafi ekki viljað hittast á hót-
eli í borginni þar sem þeir hafi
ekki viljað taka áhættuna á því að
það sæist til þeirra. Stam segist
hafa vitað að með þessu hafi þeir
verið að taka ákveðna áhættu, en
bætir því við að fundir af þessu
tagi séu vel þekktir í knatt-
spyrnuheiminum.
„Við áttum hálftíma fund, þar
sem við ræddum aðallega um
mínar framtíðaráætlanir og það
hversu mikið Ferguson vildi fá
mig til Old Trafford. Það var ekk-
ert rætt um samninga- eða pen-
ingamál. Ég býst við því að hann
hafi bara viljað hitta mig og
kynnast því hvernig náungi ég
væri.“
Ólíklegt er talið að Enska
knattspyrnusambandið taki mál-
ið upp þar sem PSV hefur ekki
sent inn formlega kvörtun. Pedro
Salazar-Hewitt, talsmaður PSV,
sagði í gær að félagið hygðist
ekki senda inn kvörtun, en að at-
vikið væri ekki í anda háttvísi-
stefnu alþjóða knattspyrnunnar.
Þetta er ekki í fyrsta skiptið
sem Man. Utd. er sakað um að
fara á bak við félagslið í þeim til-
gangi að kaupa leikmann. Því fyr-
ir skömmu kom upp svipað mál
varðandi Patrick Vieira, leikmann
Arsenal. Enska knattspyrnusam-
bandið hefur hins vegar ekki held-
ur tekið það mál upp, þar sem
Arsenal, líkt og PSV, sendi ekki
inn formlega kvörtun. ■
Heimslistinn í golfi:
Tiger
langbestur
golf Tiger Woods er í efsta sæti
Heimslistans í golfi með 28,69
stig, en Phil Mickelson er í öðru
sæti með 28,69 stig. David Duval,
sigurvegarinn á Opna breska
meistaramótinu er í þriðja sæti
listans með 9,72 stig.
í 4. til 10. sæti eru Ernie Els,
Vijay Sing, Davis Love III, Sergio
Garcia, Darren Clarke, Colin
Montgomerie og Mike Weir. ís-
landsvinurinn Retief Goosen er í
17. sæti listans. ■
Leikmannakaup:
Man. Utd. hefur
eytt 50 m punda
knattspyrna Úrvalsdeildarliðin í
Englandi hafa verið dugleg að
styrkja lið sín fyrir átökin sem
hefjast á laugardaginn og ber Man.
Utd. höfuð og herðar yfir önnur lið
hvað þetta varðar, en liðið hefur
keypt 3 leikmenn á tæpar 50 millj-
ón pund. Liverpool og Leeds hafa
hins vegar haft hægt um sig. í lok
tímabilsins keypti Leeds Robbie
Keane frá Inter Milan á 13 milljón-
ir punda og Liverpool keypti fyrir
skömmu John Arne Riise frá
Mónakó fyrir 4 milljónir punda. ■
DÝRASTUR
Juan Sebastian Veron, sem Man. Utd.
Keypti frá Lazio fyrir 28.1 milljón punda, er
dýrasti knattspyrnumaður Bretlandseyja.
LEIKMAÐUR FRÁ TIL VERÐ (PUND) lan Walker Tottenham Leicester 2.5 m
Juon Veron Lozio Man. Utd. 28.lm Roy Carroll Wigan Mon. Utd. 2.5 m
R. Nistelrooy PSV Man. Utd. 19 m Dennis Wise Chelsea Leicester 2.1 m
R. Keane Inter Leeds 13 m Shoun Bartlett FC Zurich Charlton 2m
F. Lompard West Hom Chelseo 11 m Abdelslom Ouoddou Nancy Fulham 2 m
F. Jeffers Everton Arsenal 10 m Jonathan Greening Man. Utd. Middlesbro 2 m
L Robert PSG Newcastle 9.5 m Luis Boa Morte Southampton Fulham 1.7 m
Giovanni van Bronckh. Rangers Arsenal 8.5 m Gustovo Poyet Chelsea Tottenham 1.5 m
Emmanuel Petit Barcelona Chelsea 7.5 m Alon Mohon Sporting lisbon Blockburn 1.5 m
Edwin von der Sar Juventus Fulham 7 m Mark Wilson Man. Utd. Middlesbro 1.5 m
Corrado Grabbi Ternona Blackburn 7 m Tugoy Kerimoglu Rangers Blockburn 1.3 m
Goretb Soutbgate Aston Villo Middlesbrough 6.5 m Tony Miller Hartlepool Ipswich 0.75 m
William Gollas Marseille Chelsea 6.2 m Bernt Haas Grasshoppers Sunderland 0.75 m
Richard Wrighl Ipswich Arsenol 6 m Henrik Pederson Silkeborg Bolton 0.6 m
Craig Bellamy Coventry Newcastle 6 m Steed Malbranque Lyon Fulhorn 0.5 m
Olof Mellberg Santander Aston Villo 5 m Gordon Greer Clyde Blackburn 0.2 m
Jason Euell Wimbledon Charlton 4.75 m Nicky Southoll Gillingham Blackburn óuppgelið
John Arne Riise Monaco Liverpool 4.6 m Sol Comphell Tottenham Arsenal 0
Tomasz Radzinski Anderlecht Everton 4.5 m Teddy Sheringham Man. Utd. Tottenham 0
Mutapha Hodji Coventry Aston Villa 4.5 m Hassan Kachloul Southampton Aston Villo 0
Christian Ziege Liverpool Tottenhnm 4 m Poter Sthmeichel Sporting Lishon Aslon Villo 0
Goran Bunjevcevic Red Slar Belgr. Tottenhnm 4 m Alan Stubbs Celtic Everton 0
Rory Delap Derby Southampton 4 m Pablo Gonzalez Counago Celto Vigo Ipswich 0
Luke Young Tottenham Charlton 4 m Fabrizio Ravanelli Lazio Derby 0
Lilion Lnslandes Bordeaux Sunderlond 3.6 m Andy Marsholl Norwich Ipswich 0
Junicbi Inomoto Gomba Osako Arsenol 3.5 m Robbie Elliott Bolton Newcoslle 0
Szilard Nemetb Bratislavo Middlesbrough 3.5 m Jacinta Ela Eyene Esponyo! Southampton 0
Nicolos Medina Arg. Juniors Sunderland 3.5 m Baki Mercimek HFC Hoorlem Sunderland 0
Jon Horley Cbelsea Fulham 3.5 m David Bellion Connes Sunderland 0
David Jomes Aston Villa West Ham 3.5 m Laurent Courtois Toulouse West Ham 0
Jamie Scowcroft Ipswich Leicester 3 m Kasey Keller Royo Volleeono Tottenham 0
lúxusdýnur
Tilboö
King - Queen size 20-30% afsl.
Alþjóðasamtök chiropractora
mæla með King Koil-
heilsudýnunum
*
Rekkjan
GoodHousekeepmo •!
Skipholti 35 • SímÍ: 588-1955