Fréttablaðið - 14.08.2001, Blaðsíða 16
FRÉTTABLAÐIÐ
BESTA PLATAN
16
14. ágúst 2001 ÞRIÐJUPAGUR
ÁSA BRIEM
tónlistarmaður
Tónlist Kurts Weills
„Þessa dagana er ég að hlusta á plötu
með tónlist Kurts Weills þar sem ýmsir
fiytjendur syngja lögin hans. Þar á
meðal syngur Bertold Brecht eitt lag,
Elvis Costello, Pj Harvey og Theresa
Stratas óperusöngkona. Þetta er mjög
skemmtiiegur diskur vegna þess að
lögin eru flutt í alls kyns búningi." ■
j BÍÓ í BANDARÍKJUNUM |
O AMERICAN PIE 2 Í7TA
O RUSH HOUR 2 ▼
O THE PRINCESS DIARIES ►
O THE OTHERS rra
O planet of the apes ▼
O JURASSIC PARK 3 ▼
O osmosis jones ▼
O AMERICA'S SWEETHEARTS ▼
O legally BLONDE
0 ORIGINAL SIN ▼
1 1
NÝJASTA MYND FARELLY BRÆÐRA
Osmosis Jones er hvít blóðkornslögga,
sem er sífellt að koma sér í vandræði.
Chris Rock talar fyrir hann en ævintýrið
gerist inni í líkama Bill Murray.
American Pie 2
vinsælust:
Fleiri fram-
haldsmyndir
KVIKMYNDIR Kynlífsgamanmyndin
American Pie 2 dró að sér banda-
rískra táninga um helgina. Myndin
fékk meira en helmingi fleiri
áhorfendur en sú fyrri frumsýn-
ingarhelgina 1999 en var þó sýnd í
mun fleiri kvikmyndahúsum. Hún
er framleidd af Universal og er
þetta er fjórða sumarmyndin þeir-
ra sem halar inn meira en 40 millj-
ónir frumsýningarhelgina. Þeir
lögðu áherslu framhaldsmyndir í
sumar og það borgaði sig.
Mynd Nicole Kidman, The
Others, var frumsýnd og gekk
ágætlega um helgina. og fékk góða
dóma gagnrýnanda. The Others er
fyrsta hryllingsmyndin sem er
frumsýnd í Bandaríkjunum í lang-
an tíma og nýtur hún því sérstöðu.
Osmosis Jones olli aðstandend-
um sínum miklum vonbrigðum en
henni er leikstýrt af Farelly
bræðrum, sem slá venjulega í
gegn. Þetta er bæði teiknimynd og
leikin. Hún fjallar um stríð hvíts
blóðkorns og víruss inni í líkama
manns, sem er heilsulítill. Bill
Murray leikur manninn en inni í
líkama hans, þar sem allt er teikn-
að, tala m.a. Chris Rock fyrir blóð-
kornslögguna og Laurence Fishbo-
urne fyrir vírusinn.
Spennumyndin Original Sin
með Angelina Jolie og Antonio
Banderas féll niður í aðsókn, sem
var áður mjög lítil. ■
.v r f /? A' 4 riíMni
Allar stærðir íbúða,
raðhúsa og einbýlishúsa
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Synd kl. 6, 8 og 10
jSHREK m/íslensku tali kl. 4 FILrVtUNPLlR
FLASHDANCF
IBLINKANDE LYGTER kl. 5.45,8 og 10.15) DIRTY DANCING kl. 1015 II
jTHE VIRGIN SUICIDE kl. 6, 8oglo| j TILL SAMMANS kl. 8;
• FRÉTTIR AF FÓLKI[
* Sýnd kl. 4,6, 8 og 10 vrr 260
Sýnd kl. 3.50, 5.55, 8, 10.05 VIT 257 IBRIDGET JONES DIARIES kl. 4,6,8 og lo| jlíSS)
jSHREK m/íslensku tali kl. 4 og 6 j jiVSj ANTITRUST kl. 3.45, 5.50, 8 og lO.lOÍIlsis
jSHREK m/ensku tali kl. 4, 6, 8 og 10|ji«| jPEARL HARBOR kl.aiilS
| BESTU HANDRITIN
Q CITIZEN KANE_______
O CASABLANCA
Othe CODFATHER
Och|nat°wn
O ALL ABOUT EVE
OSOME LIKE it hot
O SUNSET BOULEVARD
Oannie H*LL
Othe CRADUATE
Othe CODFATHER, PART II
IVANMETNUSTU HANDRITIN
Qcroundhocday________
0°UIZ SHOW
Oauens
Othe WIZARD °F OZ
Othe BEST years of our lives
Qamerican beauty
Otitanic
O E T-THE extra-terrestrial
O CROUCHING TIGER, HIDDEN DRAGON
© ITS A WONDERFUL LIFE
BléHftLLM
§ACA-HC)
Otraff|c
Warren Beatty er ekki sáttur
með dugnað Ethan Hawke.
Beatty lék síðast í Town And
Country, sem
hrasaði illilega,
og var því mjög
ánægður með það
að Quintin Tar-
antino skyldi
bjóða honum
hlutverk í næstu
mynd sinni, Kill
Bill. Síðan varð
Uma Thurman, sem leikur aðal-
hlutverkið, ólétt af barni Ethan
Hawke og því var tökum frestað
þangað til hún er búin að jafna
sig eftir fæðinguna. Beatty hljóp
til og reyndi að tala Tarantino á
að ráða Winona Ryder eða Gwy-
neth Paltrow en leikstjórinn tók
það ekki í mál. Kill Bill er gerð í
film noir stíl og fjallar um vænd-
iskonu (Thurman), sem er skotin
af hórumangaranum Bill
(Beatty). Hún fellur í dá í níu ár,
vaknar ævareið og fer í hefndar-
leiðangur. Thurman var búin að
æfa sig í alls kyns sjálfsvarnarí-
þróttum áður en hún varð ólétt.
Þegar Woody Allen vann fyrir
sér sem uppistandsgrínari
þoldi hann ekki þegar áhorfend-
ur klöppuðu hon-
um lof í lófa.
Honum leið því
ekki vel þegar
hann kynnti nýj-
ustu mynd sína,
The Curse of the
Jade Scorpion,
fyrir sal fullum
af fólki í Seattle.
„Ég er lélegasti maðurinn til að
kynna mína eigin mynd. Ég hef
aldrei gert það áður,“ sagði Allen
fyrir sýninguna. „Þegar ég byrja
á mynd er ég í svefnherberginu
að skrifa. Þá held ég að þetta
verði besta mynd í heimi, mín
útgáfa af Citizen Kane. Svo
byrja tökur og ferlið einkennist
af málamiðlunum. Þegar ég
byrja síðan að klippa óska ég til
Guðs að ég geri sjálfan mig ekki
að fífli. Þannig get ég ekki
ábyrgst þessa mynd.“ Jade
Scorpion verður frumsýnd í
Bandaríkjunum í næstu viku.
Hún fjallar um tvo trygginga-
sölumenn (Allen og Helen Hunt),
sem þola ekki hvorn annan en
eru dáleidd og verða skartgripa-
þjófar.
Bandarískir rithöfundar flokka kvikmyndahandrit:
Welles alltaf vinsæll
kvikmyndir Handritshöfundar í
Hollívúdd eru ekki í neinum
vafa hvort „Rosebud“ eða
„Royale with Cheese" sé þrung-
ið meiri merkingu. Samkvæmt
þeim er Quintin Tarantino langt
í frá jafnoki Orson Welles.
í nýlegri könnun, sem var
gerð af Library of America,
voru meðlimir rithöfundasam-
bandsins Writers Guild of
America spurðir í þaula um
gæði kvikmyndahandrita sög-
unnar. 4500 meðlimir voru á list-
anum en birtar voru niðurstöður
úr hluta úrtaksins um daginn.
Citizen Kane, sem Orson
Welles skrifaði með Herman J.
Mankiewichz, var í fyrsta sæti
og önnur klassísk mynd, Casa-
blanca eftir Howard Koch, Juli-
us Epstein og Philip G. Epstein.
Þær komu ekki aðeins vel út úr
könnuninni þar sem báðar voru
ofarlega á lista yfir ofmetnustu
handritin. Þá kemur á óvart að
gamanmyndin Groundhog Day
með Bill Murray í aðalhlutverki
skuli vera á toppi listans yfir
vanmetnustu handritin.
Citizen Kane er á toppi
flestra lista, sem gerðir eru um
kvikmyndir, og því voru að-
standendur könnunarinnar að
vonast eftir annarri niðurstöðu.
Þá grunaði hinsvegar að svona
FASTUR í PU NXSUTAWN EY
Andie McDowell og Bill Murray i hlutverkum sínum. Handritið að Groundhog Day var
kosið vanmetnasta handrit kvikmyndasögunnar af bandarískum rithöfundum. Danny
Rubin og leikstjórinn Harald Ramis skrifuðu handritið.
myndi fara. „Þetta er mjög við-
urkennd mynd og við vildum
helst að einhver mynd sem hef-
ur ekki enn hlotið viðurkenn-
ingu myndi fara á toppinn," seg-
I OFMETNUSTU HANDRITIN I
Qpulp fiction
O CITIZEN KANE
o gone w|™ the w|N»
Ocasablanca
ir Max Rudin, útgáfustjóri Libr-
ary of America.
Það vekur athygli að fáar
myndir gerðar eftir 1977 kom-
ast á listann
„Það er oft sagt að rithöfundar
séu jafn bundnir sögunni og þeir
voru eitt sinn. Það er ekki rétt.
Það er hinsvegar mjög sterk hefð
fyrir handritsskrifum í Banda-
ríkjunum," segir Rudin. Það er ef-
laust ástæða þess að Tarantino og
fleiri nýlegar vinsældamyndir
fengu spark í rassinn. ■