Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 18

Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 18
18 þykir mér réttara að láta þetta óumtalað, sem ég hefi ávalt borið og mun jafnan bera hlýjan vinar- hug til forseta félagsins, séra Jóns Bjarnasonar, þrátt fyrir alt, sem ég er honum ósamdóma um í skoðunum og að því er starfsemi hans snertir. Prestarnir lifa þar allir mjög við skorinn skamt; nema séra Priðrik Bergmann og séra Jón. Sann- leikrinn er, að hávaði safnaðanna vill helzt enga presta hafa. Prestarnir og nokkrir fylgifiskar þeirra gera alt, sem auðið er, til að lokka söfnuði til, að kalla til sín prest; en það gengr tregt. Og þegar söfnuðir hafa nauðugir látið leiðast til þess, þá vill það oft verða með hangandi hendi, að þeir haldi lifinu í þessum prestum. I>ó líða engir þeirra neinn skort, nema hvað séra Oddr Gfíslason hefir átt mjög örðugt, og svo var mér sagt af útliti hans og æfi fyrsta/ vetrinn, sem hann var vestra, að það hefði víst verið kallað hér heima að sæi á manni fyrir lélegt viðrværi og illa aðbúð, og varð að skjóta saman utan safnaða hans, til að halda í honum líf- inu. En hvort sem þetta er nú of sagt eða ekki, þá veit ég það með vissu, að ég varð var við óræk merki þess, að þessi prestr átti við ákaf- lega bág kjör að búa. Um háskólann kyrkjufélagsins fyrirhugaða, sem margir hafa heyrt um getið, ætla óg alls ekkert að segja, annað en það, að auk þess sem hver maðr getr séð, hvert vit sé 1 þvi að ætla svo sem 4000 fátæklingum — fleiri hygg ég ekki séu meðlimir í kyrkjufélaginu, þótt alt sé talið, og ómálga börnin með — að þeir muni nokkurn tima geta komið upp og haldið við skóla, sem kæmi nálægt Möðruvalla eða Elensborgar skólunum hér, hvað þá meira, þá sýna undirtektir þær, sem sú hugmynd hefir fengið í verkinu, hvern áhuga og hverja- trú almenningr í kyrkjufélaginu hefir á henni. Ymsir hér, og þó varla þeir er bezt skynja, spyrja inig stundum: Skyldi nú íslenzk tunga og Jjjóðerni geta haldizt við í Ameríku til lengdar? Það er þá fyrst af tungunni að segja, að menn þurfa ekki annað en að líta í „Lögberg“ eða „Heimskringlu“ (eins og hún er nú), til að sjá, að íslenzkan er orðin býsna flekkótt. Sannast að segja er það hrafhamál, en engin íslenzka, sem blöðin eru skrifuð á. Og þó er málið á blöðunum hátíð móti þeim Babels-málhræringi, sem vér tölum allir Vestr-ís- lendingar vor á meðal. Islendingr, sem ekki skilr ensku, skilr varla landa sína, þegar þeir ætla að tala íslenzku við hann, svo eru orðskrípin afkára- leg og alt málið bjagað. -■ Uað er hörmung hverju íslenzku eyra að heyra. Eg stórhneykslaðist á þessu fyrst í stað, er ég kom vestr. En svo vand- ist ég þessu, og vandist sjálfr ósjálfrátt á að tala eins og aðrir tóman hræring. Eg tók ekkert eftir því upp á síðkastið, þangað til ég kom til Chicago og talaði við fólk, sem enn talaði íslenzku og hló að mér fyrir málblendinginn. Þetta er alment meðal landa alstaðar vestra,. en þó dálítill munr á, að því leyti, að sum orðskrípi eru tíð i einum bæ eða bygðarlagi, sem lltt eru tíðkuð í öðrum. Víðast er það enskan, sem hefir blandazt inn í málið; en þó hefi ég sumstaðar hitt norsku-skrípi, þar sem landar hafa verið innan um Norðmenn. Af þessu síðasta sauðahúsi er það t. d. þegar landinn. segir: „Ég bý í bakinu“. Það heyrist aldrei í Winnipeg, eii þvf oftar í Chicago. Eg get gefið ykkr ofrlítið sýnishorn af Vestr- heims-íslenzku, orðtækjum úr daglega málinu, sem maðr heyrir dags daglega. Mundi ykkr ekki verða torskilið sumt af þessu? „Hvernig fílarðu?u (þ. e. hvernig líðr þér?). „Pétt eftir að við höfðum krossað rifurinn, (farið yfir ána), komurn við á díópið (járnbrautar- stöðina) og fórum út úr karinu (vagninum). Hann krossaði str'itið (gekk yfir strætið), en ég gekk eftir miðri rótinni (akveginum). Svo kallaði hann til mín, að koma upp á sœdvokið (gangstéttina). Eg var feginn að vera kominn út af treininu (vagnlest- inni)“. „Pasturivn (beitilandið) er vel sprottinn". „Nú eru fálarnir (hænsin) komnir 1 fílinn (akrinn)“. Þetta síðasta orð „fíll“ (= akr) er málblómstr frá Minnesota. Það er enskt orð field og á að bera það fram fild. En Norðmenn (og Danir) sleppa d-inu á eftir l upp á norsku, og bera það fram fil, og svo hafa landar búið til úr þessum norska framburði enska orðsins þetta nýyrði: fíll!! „Bæ dsjísos, þú ert rangru á að þýða: Það veit hamingjan, að þú hefir rangt fyrir' þér. „Mig vantar ekki (ég kæri mig ekki um) að láta fúla (narra) mig svona“. Það held ég að ég megi bölva mér upp á, að það verði ráðgáta fyrir flesta ókunnuga, jafnvel þó ensku kunni, að skilja hvað það er: „að ganga hrotinn á gemlings-hús“. Það á að vera sama sem: að farapeningalaus (broke) á spilahús (gambling house). „Við pleiuðum (lékum, tefldum) þrjá geima (spil, skák) og hann beit (vann) mig tvisvar“. „Þetta bítr (yfirgengr) alt“!

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.