Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 45

Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 45
45 Ef nú einhver reikistjarna er nákvæmlega jafn- lengi að ganga umhverfis sólu og að snúast um möndul sinn, þá hlýtr sú in sama sífelt að snúa sörnu hlið að sólu, alveg eins og tunglið snýr ávalt somu hlið að jörðu. Um slíkar stjörnur segja stjarnfræðingar, að þær hafi „hundinn möndulsnún- mg“. Umferðartími þeirra um sólu er árslengd þeirra, en engin verða þar skifti dags og nætr, því að jafnan snýr sama hlið þeirra að sólu, og er þar sííeldr dagr, en hin hliðin snýr jafnan frá sólu, og er þar sífeld nótt og náttmyrkr. Stjarnfræðingum hafði til þessa talizt svo til, að Merkúr snérist um rnöndul sinn á 24 klt. og 5 mínútum, en Venus á 23 klukkustundum og 21 míuútu, og hefði því dagrinn (sólarhringrinn) á hvor- um þessum hnetti fyrir sig átt að vera ámóta langr og sólarhringr vor (23 klst., 56 inín.). Nú þykist stjarnfræðingrinn Schiaparelli hafa fundið það á- reiðanlega, að hæði þessi systkin jarðar vorrar hafi „bundinn möndulsnúning11. Og síðustu athuganir aniiara stjarnfræðinga virðast að staðfesta þetta. Almenningr gefr nú venjulega slikum fundn- mgum lítinn gaum. Það er í hæsta lagi að mönn- um þyki það dálítið skrítið, að þessar stjörnur skuli þurfa alveg jafnlangan tíma til að ganga um- hverfis sólu og til að snúast eina umferð um mönd- ul sinn. Nýjung þessi er þó í rauninni mjög merkileg, því að hún gjörhreytir algerlega hugmyndum vor- um um öll tilveruskilyrði á „drotning reikistjarn- anna“, Venusi. Það hefir til þessa verið álit-ið, að Venus væri stjarna á fegrsta æskuskeiði eða tæplega af barnsaldri enn. Hún hefir verið skoð- uð sem kornung hlómarós á fegursta vori æskunn- ar. Inn alkunni þjóðverski stjarnfræðingr Dr. Wilhelm Meyer kallaði hana „yngri systr jarðar- mnar“. „Innanhitinn i Venusi“, sagði hann, „eldr sá, sem hún hefir þegið í heimanfylgju frá móður snmi (sólunni), streymir ólíkt heitara gegn um æð- ar hennar, heldr en hitinn gerir gegn um æðar jarðar vorrar“. Og allar athugauir vii'tust að stað- festa þetta álit, sem Venus hafði á sér fyrir æsku °g blómleik. Eijikum þótti það, að gufuhvolf Venusar virtist svo ákaflega þétt, vera skýr sönnun fyrir því, að Venus væri barn eitt í samauburði við jörð vora. Menn hugsuðu sér, að líkt hagaði tii á \enusi nú eins og gert hefir á st einkola-tim abilinu. jörð Eftir því átti Veuus að vera hnöttr, sem átti mikla framtíð fyrir höndum. Það þótti líklegt, að hana skorti enn skilyrði fyrir því, að inar æðri lífsmyndir gæti þróazt þar, en aftr mundi hún verða hnöttr í fullum lífsblóma, þegar annmarkar ellinn- ar færu að stríða á jörð vora. — En allar þessar meir eða minna sennilegu ágizkanir hafa dú koll- varpazt gersamlega við það, að sýnt hefir verið fram á, að reikistjarna þessi hafi bundinn möndul- snúning. Því að það er ekki ajiðið að sjá annað en að alt líf hljóti að vera út dautt á hnetti, sem hefir bundinn möndulsnúning. Þegar hnöttr er ná- kvæmlega jafnlengi að snúast um möndul sinn eins og að ganga í kring um sólu, þá hlýtr hnöttr sá slfelt að snúa sömu hliðinni að sólunni; en af því leiðir það aftr, að engin verða þar umskifti dags og nætr. Á aðra hlið hnattarins skín sólin ár og síð alla tíð og steikir hana í hita. Á hinni hlið- inni sér aldrei sól; ríldr þar eilíft myrkr og ís- grimdar helkuldi. Á sólarhlið slíks hnattar brenn- ir hitinn burt alt líf; en á myrku hliðinní ríkir viðrstygð eyðingarinnar, af því að þangað nær ald- rei nokkur sólgeisli. Þessar ályktanir geta menn dregið af hlutar- ins eðli, þá er menn vita og skilja, hvað bundinn möndulsnúningr er. Og inar nýjustu Venus-athug- anir staðfesta þær fyllilega. Utlit hnattar þessa er jafnan eins. Menn sjá sífelt sömu blettina og sífelt jafnskýra. Engin ský breiða nokkru sinni neinn skugga á gufuhvolf Venusar, og af þvi er auðsætt, að engin vatnsgufa á sér stað á Venusi. Engin litbrigði er heldr að sjá á yfirborði þess hnatthelmings, sem að oss snýr. Á Marz sjást líf- leg litbrigði eftir árstíðum, en Venns or ávalt sí- bleikgul að sjá. Yfir öllum inum sýnilega helm- ingi hennar hvila sjmileg merki óbreytilegleikans, það er að segja dauðans. Sífeldr steikingshiti ei- lffs dags hefir drepið sérhverjar menjar lífsgróðrs og gert alt að einni lífsneyddri eyðimörk. Og eins og áðr var sagt, getr auðvitað ekkert líf heldr þrifizt á inni símyrku hlið, er frá sólu snýr, því að þar skortir þau tvö aðalskilyrði alls lífs ljós og yl. Venus er dauðans heimkynni, dauðr hnöttr, og staf- ar það af því, að hún hefir bundinn möndulsnún- ing. I fyrndinni hefir hún að líkinduin um langar aldir verið fríðr bústaðr ijörs og lífs, en nú er hún að eins lífvana lík af hnetti, er sífelt líðr kring um sólina eins og vofa. En hvernig stendr nú á því, að bæði Venus og veslings litli Merkúr skuli vera svona komin

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.