Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 38

Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 38
38 Þegar Grettisljóð eru tekin og skoðuð í heild sinDÍ, standa þau sögunni langt að baki. En þau haía hinsvegar ekki spilt söguuni að neinu leyti. Hún er jafngóð eftir sem áðr. Bókmentir vorar hafa því ljóð þessi í hreinan gróða. Þess vegna er betr farið en heima setið á alt- arisbríkinni. Munu aðrir gera betr? Ef til vill (Hannes og Borsteinn), og ef til vill ekki nema höf. sjálfr; hann hefði getað gert betr, ef hann hefði viljað; þegar hann var búinn að setja sig í skorðurnar, og brýna tól sín og tæki. En hvað sem því líðr, skal höt. hafa guðsást og góða þökk fyrir góðgcetið og fallegu sprettina. Guðmundr Friðjónsson. Athugasemd. An þess að öðru leyti að fara neitt út i dóm hr. Guðmundar Eriðjónssonar um „Grettisljóð11, getum vér eigi annað en bent honum á, að það er tilefoislaust að tala um, að 1. kvæðið sé orkt und- ir sálmalagi („Alt eins og blómstrið eina“). Það mætti eins vel bregða Tegnér um, að hann hefði orkt kvæði sitt um Karl XII. („Karl ungur, hetjan háa“) undir sálmalagi, eða að Danir hefðu sinn nafnkunna vésöng: Vift stolt pá Codans Bolge undir sálmalagi. Það geta verið alls ólík lög við einn og sarna hátt. — Djarft þykir oss það og, að segja að Jónas Hallgrímsson haíi ekki haft „full- mynduga sál“, eða að hann hafi „nauðgað tungu vorri“, er hann orkti: „ísland, farsælda-frón“. Ritstjórn „Sf.“. Þorlákur Jóusson frá Grautlöndum. (F. 21. Ágúst 1870, d. 24. Desember 1897). Ekki bregðast ragna rök; römm eru sköpin gumum; enn þá feigs er opin vök ungum jafnt og hrumum; eingum tekst, þótt æskufjör sé enn í merg og beini, að fóta sig i Eeigðarvör, þeir falla’ á Dauðsmanns-steini. Svo er orðið enn um þann, er allur hér nú sefur og Mannabana marvaðann þann myrka troðið hefur. Hann féll, i öllum æsku þrótt, sem ungum veitist sveinum, í dauðans sjó. Um svarta nótt segir fátt af einum. Eágætt var að finna mann í flokki ungra hinna að öllu farinn eins og hann til orða og verka sinna; með skýrleiks gnótt hann hafði’ ei hátt, þótt hinir léki’ um stundu, var hugsað mart, en hjalað fátt og haggáð aldrei lundu. Mætara vart, i manni dó, — né meira valinn drengur, — en alt það, sem- hann yfir bjó og enginn nýtur lengur. Þó aldur hans væri’ ekki hár, mun einhver lengi þreyja; sé gott að hljóta gamals árs, er góður betra’ að deyja. * *

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.