Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 44

Sunnanfari - 01.01.1898, Blaðsíða 44
44 Jeg er fús á, að fyrirgefa rímsnillingiimn ýms- ar syndir: smá-syndir, meðal-syndir og jafnvel stór- syndir. Jeg tek það upp aftur: sá sem nær einyum tök- um á rímlistinni, á ekki að leita eftir faðmlögum við Iðunni. Andstæðingar braglistarínnar halda því fram, að hún fjötri hugsanirnar og rugli orðskipun og og rjetta framsetning. Það er lika satt, að þetta hefur hún mörgum gert, sem hafa tekið hana nauðungartökum. En hún þekkir sína eins og góði hirðirinn, og þeir sem kunna á henni tökin, og þeir sem hún vill sýna eftirlæti, finnst mjer ekki hafi ástæðu til þess að kvarta undan henni. Kimlistin hefur verið séra V. B. eftirlát, en hann hefur notað sjer góðvild hennar um skör fram. — Hún á ekki að vera vinnudýr 365 daga á ári hverju. iPað er auðvitað, að kveðandin leggur hemil á hugsun og framsetning Þetta er kostur hennar en ekki löstur. Vegna þess, hve erfitt er að yrkja undir föst- um og dýrum háttum, er ekki hætt við, að hver skussinn geti unnið sjer til frægðar við það starf. 3?að er heldur ekki til neins fyrir íþróttamann í þeirri grein, að ætla sjer að hrista fallegar og vel búnar hugsanir fram úr erminni. Vegna erfiðleik- anna, sem rímlistin leggur fyrir þann mann, sem ætlar sjer að vinna hylli hennar og fullnægja kröf- um hennar, leggur sá hinn sami fram alla krafta; og einungis þá getur listamaðurinn fullnægt kröf- um íþróttarinnar, eða gert henni nokkurn veginn til hæfis, þegar hann leggur fram alla krafta sina oy ástundun. En þegar aðhaldið er lítið, eða alls eklrert, krefur nauðsynin ekki þess, að allir kraftar sjeu framlagðir. Liklega er hægt að þrátta um þetta fram og aftur. En það er þó víst, að þau skáld, sem yrkja lausast — t. d. á Norðurlöndum — yrkja að öllu leiti ver enn hin. Jeg hef lika tekið eftir því, að sami maður yrkir betur — hugmyndirnar fullkomnari og skorð- aðri — þegar hann yrkir undir föstum og falleg- uin háttum. Háttur og hljómur verða að fylgjast að. Ef til vill er eingin tunga undir sólinni eins falleg og Islenskan. Og hvers vegna skyldi það vera? Vegna þess hve hljómrík hún er. Oflugasti og fegursti hljómur tungunnar kemur fram í braglistinni. Hann er, eða á að vera, föru- nautur hennar. Stuðlasetning og höfuðstafa eykur hljóminn og áherslurnar. IÞess vegna ætti þeim aldrei að vera misboðið. I?ess vegna ættu þær aldrei að verða lagðar fyrir óðal. Ef tunga vor ber þetta tvennt fyrir borð: fastan hátt og falleyan hljóm, þá fara að koma ljótu hrukkumar og aumi kerl- ingarsvipurinn á braglistina okkar. Ifuðmundur Friðjónsson. Útl ifaðar reikistj örn ur. Reikistjörnur, sem alt líf er út sloknað á, má vel nefna útlifaðar. Þannig er t. a. m. með tungl- ið. Tunglið snýst, eins og allar stjörnumar, um möndul sinn, en auk þess gengr það og umhverfis jörð vora. En nú er svo komið, þótt upphaflega hafi eigi svo verið, að umferðartími tungls um jörð- ina er jafnlangr þeim tíma, sem það er að snúast um möndul sinn. Eyrir því veit það ávalt sömu hliðinni að jörðunni. En eins og tunglið gengr umhverfis jörðuna, þannig gengr jörð vor og sérhver önnur reikistjarna í sólkerfi voru umhverfis sóluna, en snúast jaíh- framt um möndul sinn. Jörð vor er sem næst 365y4 sólarhrings að ganga umhverfis sóluna, en um möndul sinn snýst hún á 23 stundum og 56 mínútum. — Merkúr er aftr að eins 88 daga að ganga umhverfis sólu, og er því árið á Merkúr 88 dagar vorir. — Venus er tæpa 225 daga vora að ganga umhverfis sólu, og er því Venusar-árið 225 jarðardagar að leugd. — Júpíter aftr á mót er 4332y2 jarðardaga að ganga umhverfis sól, og er það árslengdin hans; en hann snýst um möndul sinn á 9 klt. 55 mín., og er því dagr hans tæpar 10 klukkustundir, og verða þá 10398 Júpíters-dagar í Júpíters-árinu. — Satúrnus er 10759 jarðdaga að fara umhverfís sól, en snýst á ÍO1/^ klst. um möndul sinn. — Úranus þarf yfir 30 þús. jarðdaga, og Neptúnus yfir 60 þús. jarðdaga til umferðar um sólu. Það er því feykilangt hvert árið á þeirn hnöttum.

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.