Alþýðublaðið - 08.02.1961, Page 1
WMWMWWWtMWWWWW
Engir sátta-
fundir í Eyjum
BD&ÍDÍXI)
42. árg. — Miðvikudagur 8. febrúar 1961 — 32. tbl.
Þðu syngja
i Gúttó
ÞAÐ gengur glatt á
gömlu dönsunum í Gúttó.
Þar eru ekki slegin vind-
höggin. Myndin var tekrn
þar síðastliðinn laugar-
dag. Söngfólkið er Sigurð
ur Ólafsson og Sigríður
Guðmundsdóttir. (Ljósm.
Guðm. Jónsson).
MMMMMMMMMMMWHMMtl
Hér er
sfúlkur!
SVONA skal það vera.
Tízkulínan er nýkomin
frá París. Allar stúlkur
útr þar kváðu vera að
rifna af hrifningu. Riss-
ið er af hliðarsvip nýju
línunnar. Við vitum ekkr
hvort hann hefur ennþá
fengið nafn ytra. Tillaga
okkar er: hengilmænu-
svipurinn. — Og verði
ykkur að góðu.
MMMWMMVWMMMMMMM
ÖLFRUMVARPIÐ margum-
talaða \-ar á dagskrá Neðri deild
’ar í gær og urðu miklar umræð
ur um málið. Þrír þingmenn
héldu langar ræður gegn mál-
inu, sem var rætt á síðdegis-
fundi, en að lokum hóf flutn-
ingsmaður að svara málflutn-
ingi þeirra. Var umræðunn
frestað kl. 7,15, en Pétur hafði
þá ekki lokið máli sínu.
Framhald 1. umræðu um ölið
hófst um 3-leytið í gær og var
Gísli Jónsson fyrstur á mæl
endaskrá. Gerði hann lítið úr
rökum flutningsmanns fyrir
frumvarpinu og andmælti ýmsu
úr framsög'uræðu hans. Fann
Gísli það m. a. að málinu, að
Framhald á 5. síðu.
ALÞÝÐUBLAÐH) átti í gær
til við einn af fulltrúum verka-
manna í samninganefnd þeirra
við atvinnurekendur í Vest-
mannaeyjum.
Hann tjáði blaðinu, að allt
væri við það sama í deilunni,
því ekkert hefði heyrzt í sátta-
semjara ríkisins, sem hefur
fengið deiluna til meðferðar.
Engar samningaleitanir munu
fara fram í Vestmannaevjum,
nema að frumkvæði sáttasemj-
arans. Ekki vissu Vestmanna-
eyingar í gær, hvenær það yrði.
ÚTBÝTT hcfur verið á al-
þingi frumvarpi til laga um
heimild handa samgöngumála-
ráðherra til að veita Cruðjóni
Ármanni Eyjólfssyni sjóliðsfor
ingja stýrimannsskírteini á ís-
lenzkum skipum. Sjávarútvegb
nefnd Efri deildar flytur frum-
varpið að beiðni ráðherra.
VESTMANNAEYJAR cru
umkringdar af síld. Það hefur
verið lóðað á mikla síld allt
frá Geirfuglaskeri og austur
fyrir Bjarnarey„ Að auki er
vitað um síldartorfur í Grind
arvíkursjó.
Alþýðuhlaðið fékk þe*ssar
upplýsingar hjá Jakob Jakohs
syni um borð í varðskipinu
Ægi á sjöunda tímanum í gær
kvöldi. Ægir var þá staddur
út af Garðskaga, og hafði lóð-
að þar í nokkrar síldartorfur,
en ekki var vitað hvort um
mikla síld væri þar að ræða.
Jakol) sagði, að 14 skip
hefðu tilkynnt veiði í gær-
morgun, og voru þau með um
10 þús. tunnur. Meðal annars
fékk Höfrungur II. rúmlega
1500 tunnur. Einnig fékk Heið
rún mjög stórt kast, en þar
sem báturinn her ekki nema
1000 tunnur, varð að sleppa
miklu magni úr nótinni.
Jakoh sagði að síldin væri
um klukkutíma siglingu
frá Vestmannaeyjum. Vest-
mannaeyingum er því sýnd
veiðin en ekki gefin. Eins og
fram kemur í fréttum, liggja
hátar þeirra nú bundnir við
hryggju.
Jakob kvað fiskileitarskipið
,,Fanney“ vera á miðunum til
að leiðbeina bátuum, og ef
veður spilltist ekki, mætti
gera ráð fyrir mikiHi veiði í
nótt (þ. e. sl. nótt), því síldar-
ntagnið væri mjög mikið.
Margir bátar voru á miðunum
í gærdag, en síldin stóð djúpt,
og fékkst lítið úr köstunum.
Mátti gera ráð fyrir, að BÍldin
kæmi upp með kvöldinu.
Síldin, sent veiddist í gær-
morgun, var nokkuð misjöfn
í köstunum, en meiriMutinn
ágætur.
Að lokum sagði Jakob. að
síldarmagnið kringum Eyjar
væri mjög mikið. Hann sagð-
ist ckkert geta sagt um hve
mikil síld það væri, sent Ægir
fann út af Garðskaga í gær-
kvöldi. Þó vonaði ltann, að
þarna væri um að ræða mikla
síld. Það styttir að mun sigl-
ingu bátanna, sem nú geta að
eins landað í Reykjavík,
Grindavík og á Akranesi.