Alþýðublaðið - 08.02.1961, Blaðsíða 2
ð&aC^rw. ÖIMI J. Astþomseiu »aö.j os Beaeúltn (ironaai íumniat eu
JMnar: Sigvaldl Hjáliziarsscn og Indrlði G. Þorsteinsson — Fréttastjðn
MSrgvin Guðmundsson - Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903 Auglýslngasim
M8M. — ABsetur: AiþýSuhúsiB. — PrentsmlSja AIþýSublaösin3 Hverlií-
Mta I—10. — Askriftargjald: kr. 4S.OO á mánuSl. í lausasölu kr 3,00 eln'
%»Sfaadi: JUþýSuíIokkurlnn — rramkvasmdaaiiór) Uvarrt. Kiartansnev
Einræðisherrar
' RÍKJUM jarðarinnar má skipta í tvær heildir:
: annars vegar þau, er lúta stjóm kommúnisfca, hins
| vegar öli hin, hinn frjálsa heim. í báðum þessum
j fylkingum eru til eilnræðisherrar, sem stjórna
þjóðum sínum án þess að hafa verið kjörnir til
þess í frjálsum kosningum, og traðka rneira eða
; minna á réttindum einstaklinga.
Einn munur er þó á einræðisherrunum austan
! járntjalds og vestan. Hinir kommúnistísku einræð
1 isherrar virðast búa við mikið öryggi innanlands,
{ og viðkomandi þjóðir hafa litla möguleika til að
! kasta af sér oki þeirra. Eina lífshætta þessara
! herra er valdastreita í þeirra eigin forustuliði,
■ sem leitt gætis til hreinsana og nýrra einræðis-
í herra. Uppreisnir í Austur-Berlín, Póllandi og
! Ungverjalandi megnuðu ekki að lósa þjóðirnar við
! einræðj þeirra Íanda. Rauði herinn sá til þess.
Vestan við jámtjald eiga eínræðisherrar ekki
! við slíkt öryiggi að búa. Að vísu reyna flestar rík-
: isstjómir að skipta sér e'kki af innanríkismálum
! nógranna sinna, jafnvel þótt þar séu einræðisherr-
ar. En fó'lkið getur gripið tll ýmissa ráða og hefur
1 gert það. Þegar ekki fenigust heiðarlegar kosning-
! ar í Suður-Kóreu, urðu uppþot, sem leiddu til
\ falis Syngman Rihee. Þegar frelsi blaða og ein-
staklinga var heft um of í Tyrklandi, greip herinn
til sinna ráða, og Menderes féll. Og nú er þjarm-
! að mjög að Salazar hinum portúgalska.
Mannlegt samfélalg verður seint alfulikomið,
’ Hins vegar er nokkur huggun í því, ef málum
1 þokar áfram og einræðisherrunum fer fækkandi,
( eins dg gerzt hefur utan kommúnistaríkj'anna. Það
sýnir mikinn mun á lífi fólksins, að unnt er að
!' kollvarpa einræði utan járntjialds, méðan komm-
! únistarrkin eru í járngreipum rauða hersiíns, svo
1 að vonlaust virðist að losna við Ulbricht eða Ka-
! dar.
1
Algert samstarf
' HIÐ algera samstarf Framsóknar og kommúnista
!. er nú orðin pólitísk staðreynd. Það er framkvæmt
1 í stjórnarandstöðu, á alþingi), í bæjarstjórnum
! viíða um land, í verkalýðsfélögum og samvinnu-
félögum. Hefur þetta s'amstarf fest svo rætur, að
! Tíminn heldur uppi vömum fyrir það og telur
1 það hið eðlil'egasta í alla staði.
Er ekki kominn tími til þess, að lýðræðissinnar
innan Framsóknarfiokksins fari að láta til sín
! heyra?
2 8. febr. 1961 — Alþýðublaðið
Happdrætti v
vegagerðar
UNGMENNAFÉLAGIÐ þessum' framkvæmdum ásamt
Djörfung i Beruneshreppi ungmennafélaginu, en það er
hefur nú hrundið af stað happ Búlandshreppur, Geithella-
drætti til styrktar málefni, hreppur og Iiafnarhreppur. —
sem má segja að sé nokkuð ó- Þegar þessum framkvæmdum
venjulegt. En félagið hefur er lokið hefur náðst mikill og
hafizt handa um að ryðja veg merkur áfangi, þar sem þessi
yflr Öxi,, mjllí Skriðdals og vegalagning er mikið hags-
Berufjarðar. munamál fyrir slla, sem búa
sunnan Berufjarðar.
Vegalagning þessi styttir Eins og fyrr segir hefur
leiðina milli Egilsstaða og' happdrætti nú verið hleypt af
Hornaíjarðar um 62 km,, eða stokkunum, og mun ágóði þess .
úr 80 km. í 18. Félagið hefur standa 'straum af þeim kostn j
nú þegar rutt vegarslóða, þessa aði, sem verður við að fullgera I
leið, sem aka má í jeppum í veginn, Vinningurinn í happ-
þurru veðri. Er nú eftrr að mal drættinu er Volkswagenbif-
bera veginn og gera hann vel reið árgerð 1961. Aðeins verða
greiðfæran. Þegar hefur verið fíefnir út 6000 miðar. og er
eytt 179 þús. lcrónum í veginn, verð hvers miða 100 krónur.
og nú vantar peninga til mal- Umboðsmaður happdrættisins í
arburðarins. Reykjavík er Sigmar Péturs-
Þrjú hreppsfélög standa að son, Breiðfirðingabúð.
Hannes
■fö Greindur bóndastauli
eða „hámenntaður“
auli.
■ýr Breytingar á erfðafjár
skattinum.
ýV Bréf úr úthverfi.
UNG húsmóðir skrifar á þessa
leið: „Er ég las ummæli skóla-
stúlku í Vikunni, datt mér í hug
vísan:
Betra er að vera af guði ger
greindur bóndastauli,
heldur en vera hvar sem er
„hámenntaður“ auli.
EF ÞESSI unga stúlka sækist
eingöngu eftir menntun í því
skyni að lítilsvirða og líta niður
á þá, sem ekki fara út í lang-
skólagöngur, finnst mér mennt-
uninni sannarlega á glæ kastað.
Sem betur fer, held ég, að mik-
ill meir| hluti nemenda hugsi
ekki svona, að minnsta :kosti hef
ég ekki getað fundið það á fram
komu þeirra, sem einu sinni
voru með mér í háskóla. Tel ég
gáfnafar þeirra langt yfir það
hafið að vera með svona „aula-
skap“, því að menntahroki er
ekki annað en aulaskapur. Og
hvað gáfnafari ríkis-manna
barna viðvíkur, hef ég aldrei
getað séð að þau sköruðu fram
úr börnum frá bændum, verka-
fólki, sjómönnum eða þessu
millistéttarfólki, sem stúlku-
tetrið talar um.
h o r n i n u
SÚ VITFIRRING að draga
fólk í dilka eftir stöðum i þjóð-
félaginu er fyrir neðan allar |
hellur. Stúlkan víkur einnig að
því, að skemmtistaðina sæki
fólk eftir því hvaða atvinnu
hver stundar. í bjánaskap mín-
um fæ ég ekki annað séð, en að
á öllum þessum stöðum, sem hún
taldi upp geti maður rekist á
fólk af öllum stéttum.
Á SKEMMTISTAÐ, eins og
Lidó getur stúlkuvesalingurinn
meira að segja orðið fyrir því
óláni að dansa við bílstjóra eða
sjómann, nema hún biðji þá um
ættartöluna og upplýsingar um
stöðu fyrst. Sennilega stundar
hún.sjálf stað eins ,og Sjálfstæð-
ishúsið, þar sem toörn toetri borg
ara halda sig að hennar sögn.
Mér leikur forvithi á að vita,
hvort þau ganga um með nafn-
spjöld utan á sér á þeim stað“.
O. M. R. SKRIFAR: „Nú um
daginn var sagt frá í þingfrétta-
tíma útvarpsins, frumvarpi um
breytingu á erfðafjárskattinum
e. lög nr. 30/1921. En nú
skulum við athuga ranglætið í
þessum lögum, eins og íþau eru
í framkvæmd. A: átti hús á
brunamati kr. 400.000,00, en að
„fasteignamati“ kr. 80 000,00,
eftirlifandi maki og börn greiða
um 10 % í erfðaskattinn = kr.
8,000,00. B: átti skuldabréf, pen
inga o. fl. (þó ekki fasteign) að
verðmæti kr. 400.000,00. Eftir-
lifandi maki og börn greiða um
Veiða um 200
hrognkelsi
Húsavík, 6. febrúar.
HROGNKELSAVEIÐI hefus
liafizt hér óvenju snemma. —-
Þrír til fjórir menn stunda þesa
ar veiðar, enn sem komið er og
hafa fengizt um 200 hrognkelsl
á dag í 3 til 4 net.
Hrognkelsin fara að mestu til
neyzlu í bænum, en hrognin
eru söltuð og hefur fengizt á
elleftu krónu fyrir kílóið. E.J.
10% í erfðaskattinn eða = kr,
40.000,00.
AÐ ÞVÍ er virðist' eiga þeir
svipaðar eignir en eftirlifandl
fjölskyldu B er ætlað að borga
5 sinnum meira. — Er ekki al-
veg fráleitt að tala um réttlætl
í þessu samban'di?“.
P.J. í STIGAHLÍÐ segir: —
„Það þarf að fjölga ferðum stræfi
isvagna á nr. 8 leið og 20 leið,
þeir fara báðir á sama tínia, á
á 15 mín. yfir heilan tíma og
þegar kl. vantar 15 min. í heilan
tíma, annar úr Lækjargötu, —■
hinn af torginu og þeir eru svd
yfirfullir að það er troðið í þá
eins og síld í tunnu. Það þarf að
hafa vagn á þessum leiðum á
hverjum 15 mín. eins og á
Kleppsleiðinni.
FÓLKINU er alltaf að fjölga S
úthverfunum, það er svo lítil ból
í því að hafa þessa aukavagna,
fólkið bíður á biðstöðvmm upp
undir hálftíma, og enginn bið-
skýli. Það verður að krefjasl
þess að skýlj séu ekki látin á
bersvæði eins og til dæmis á
Siigahlíðar-staðnum.
ÞAÐ VAR LJÓTT að sjá 3
vonda veðrinu um daginn. Þettal
er á bersvæði, ekkert skjól ai
húsum í AN A-, A- og S A-
áttum og svo er leðjan svo mik-
il, að þegar maður fer út sekkur
maður í mjóalegg. Þetta er ó-
hæfa. Þetta er engin þjónusta,
hvar eru skýlin, sem Friðrik'sea
smíðaði? Væri ekki hægt að láta
eitthvað af þeim þarna? Og svo
er hálkan á stoppustöðum stræí
isvagnanna. Það er mjög sjaldan
borin sandur á stoppustaði, eða
götur i úthverfum bæjarins. —
Það er eins og þurfi ekki a3
hugsa um neitt nema miöbæ-
inn“.
Hannes á liorninu.