Alþýðublaðið - 08.02.1961, Page 3
Leyndarmálið um
Spútnik enn óleyst
LONDON, 7. febr. (NTB
REUTER). Enn ríkti mikil þögn
í Sovétríkjunum í dag uni
hinn stóra spútnik, sem skotið
var á loft s. 1. laugardag og
ekki hefur heldur lieyrzt neitt
lífsmark frá gervihnettinum.
Nokkrir stjörnufræðingar á
Vesturlöndujxi eru þeirrar
skoðunar, að sovézkir vísinda-
menn fáj skeyti frá hnettin-
um á leynilegri bylgjulengd.
Fram ti'l kvöldsins í kvöld
hafði Moskvuútvarpið ekki
sagt orð meira um hnöttinn. í
sendingu á ensku var minnzt
tvisvar á hann og talað var
um, að 'þróunin frá fyrsta
spútniknum 1957 hafði verið
stöðugt í þá átt að gera kleift
að senda mönnuð farartæki
út í geiminn.
Neiudon-athuganastöðin við
París fann ekki sputnik í dag,
þó að skilyrði væru góð, en
talsmaður þar kvað reikning-
ana á tímalengd hverrar um
ferðar, sem gerðir voru í gær,
vera rétta. Talsmaður Bel-
field-athuganastöðvarinnar í
Ástralíu kvað Riissa hljóta
nota leynilega bylgjulengd,
Stöðin hefði ekki getað á-
kvarðað braut hnattarins.
Hann kvað þá leynd, sem nú
ríkti í fyrsta sinn yfir gervi-
hnetti, vera mjög undarlega.
Yfirmaður Bochum-athug
anastöðvarinnar í Vestur-
Þýzkalandi telur, að hnettin-
um hafi verið skotið fyrr á
loft en gefið hefur verið xipp,
Og að merki þau, sem náðust
s. 1. fimmtudag hafi verið frá
honum. Hann hafði heldur
ekkert heyrt síðan á mánu-
dag.
acmillan
vill ræða
við Rú
LONDON 7. febrúar
(NTB-AFP).
BÍKISSTJÓRN Bretaveldis
e,. reiðubúin til að taka upp
viðræður við Sovétríkin, sagði
Marold MacMiIIan forsætis-
herra í neðri deild bi'ezka
þingsins í dag. „Takmark okk
ar er enn hið sama og það
var þegar hinn misheppnaði
toppfundur í París var liald-
inn. Við erum tilbúni,. til við
ræðna vi5 Rússa hvenær sem
vera skal“, sagði ráðherrann
ennfremur.
Fulltrúar Verkamanna-
flokksins réðust að Home ut-
anríkisrá&herra og ríkisstjórn-
inni fyrir yfirlýsingar hans
um Sovétríkin og Komma-
Kína. Hivöttu þeir MacMillan
til að benda ráðherranum á
það að hann væri utanríkis-
ráðherra og ekki „ráðherra
hins kalda stríðs“, MacMill-
an neitaði því, hvað Vestur-
veldin verða að móta stefnu
sína í samræmi við núverandi
ástand heimsmála og kvað
„vonbrigði frá í fyrra ekki
mega hafa áhrif á tilfinning-
ar ckkar í dag. Vonbrigðin
verða að 'hvetja okkur til
nýrra átaka“, sagði hann.
Zorin og Steven-
son semur vel
AÐALFULLTRÚI
Bandaríkjanna lijá Sam-
eílnuðu þjóðfunum, Adlai
E. Stevenson, átti í dag
fund með SÞ-fulltrúa
Rússa, Valerm Zorin.
Lagði Stev’enson fram á-
ætlun í fjórum atriðum
um lausn Kongó-málsins.
Góðar heimildir segja að
afstaða Zorin til tillögunn
ar hafi verið jákvæð.
Áætlun Stevenson er á
þesSa leið:
1. Allur her Kongómanna
verðj afvopnaður. jafnt her
ríkisstjórnarinnar sem herir
liinna einstöku héraðsstjórna.
2. Þjóðþing Kongó verði
kallað saman.
3. Patrice Lumumba og fyrr
verandi meðráðherrar hans
verði látnir lausir.
4. Allir belgiskir ríkisborg-
arar hverfi frá Kongó.
Viðræður þeirra Stevenson
og Zcrin stóðu f tvo tíma og
ræddu þeir einkum fyrsta lið
áætlunarinnar, einkum hVbrn-
ig afvopnun Kongómanna
væri framkvæmanleg. Sagt
■er að Stevenson sé ánægður
með árangur viðræðnanna.
Sendinefnd Rússa hjá SÞ
sendi í kvöld út tilkynningu
um að Zorin væri ánægður
með áætlun þá er Stevenson
lagðf fram. Talsmaður nefnd
arinnar sagði þó að hin nýja
bandaríska rílkisstjlórh fylgdi
sömu stefnu og sú gamla. í til
kynningunni segir að Zorin
hafi haldið fast við þá skoð-
un að fyrst af ölu yrðu Belg
ir að hverfa úr Kongó, en
Stevenson hafi ekki einu sinni
nefnt það atriði. Þeir báðir,
Zorin og StevenBon, hafi ver
ið sammáia um nauðsyn þess
að þjóðþingið verðj kallað sam
an.
NJÓSNARAR
London, 7. febrúar.
(NTB—REUTER).
Mikill fjöldi sönnunargagna
var lagður fram í réttarhöld-
um er hófust í dag um njósna-
starfsemi fimm brezkra borg-
ara. Eru þeir ákærðir fyrir
njósnir um flotastöðina í Port-
land á suðurströnd Bretlands.
Meðal sönnunargagna eru 310
myndir af herskipum og öðrum
tækjum til hernaðar, lítij loft-
skeytastöð og átta síðu bréf á
rússnesku.
shombe hótar
SÞ öllu illu
París, 7. febrúar.
DE GAULLE Frakklandsfor
seti mun á morgun ræða við
sérlegan sendimann Bourgiba
forseta Marokkó, sem kemur í
kvöld til Parísar til að undir-
búa viðræður þeirra forset-
anna.
LEOPOLDVILLE, 7. febrúar
(NTB—REUTER).
MOISE Tshombe, forseti
Katanga, liefur lýst því yfir
í bréfi til Dag Hammarskjöld,
aðalritara SÞ, að ef SÞ ákveði
að afvopna allan her Kongó-
manna, muni hann vopna allt
sitt fólk og snúast hart móti
sérhverri tilraun í þá átt.
Tshombe segir, að ef lög-
regla hans cg her í Katanga
verði afvopnuð muni það að-
eins leiða til þess, að fólkið
Ihverfi af ökrunum og úr verk-
smiðjunum og þar með sé öll
iðnaðarframleiðsla héraðsins í
lamasessi.
Tshomhe kveðst í bréfum
munu skýra þjóðinni frá á-
'kvörðun stjórnarinnar um að
vopna hana ef nauðsyn krefur.
Hann segir einnig að SÞ-her
muni aldrei geta farið auð
synlegra ferða sinna um frum
skógana miklu og því sé fjarri
lagi að afvopna einu herdeild
irnar er það geti. Síðar í dag
lýsti Tshombe yfir því að
Lumumlba forsætisráðherra
sitji fangelsaður og hafi það
gott.
Talsmaður SÞ í Elizabethville
sagði í dag, að SÞ myndi við
fyrsta tækifæri útvega flugvél-
ar til að flytja SÞ-hermennina
Þegar þeir eru farnir verða að-
eins 2500 SÞ-hermenn eft-
ir í Katanga. Er þar um að ræða
700 Nigeríu-menn, 650 Eþíópíu-
menn, 600 íra og '550 Svía. Eru
þeir dreifðir um allt ríkið í fá-
mennum sveitum.
í Leopoldville hefur verið
skýrt frá því, að Mobutu valds-
maður hafi skipað her sínum að
vera við öllu búinn og bannað
SÞ-hernum að nota kongóskar
hersveitir meðan Kongó-um-
ræða Öryggisráðsins stendur
yfir. Ekki kannast þó SÞ-menn
við að liann hafi bannað þetta..
Líta menn svo á í Leopold-
ville, að þessi skipun Mobutu
sé mótleikur gegn beiðni Hamm
arskjöld um leyfi til að „end-
ur<skipuleggja“ ber í Kongó.
Stórsókn
til Leo-
poldville ?
Leopoldville, 7. febrúar.
(NTB—REUTER).
Fréttastofan AFP seg-
ir, að í dag hafi um 400
hermenn Mobutu valds-
manns farið um borð í
skip er á að flytja þá upp
Kongófljót í átt til Stan-
leyville. Er mögulegt, að
hér sé um upphaf að stór-
sókn að borginnr að ræða.
Jafnframt var skipað um
borð miklu magni skot-
færa. Munu þeir halda til
landamæranna við örien-
talehéraðrð, en þar ráða
vinir Lumumba lögum og
lofum. Talið er að þeir
muni gera tilraun til að
ná a. m. k. landamærun-
um á sitt vald og kljúfa
þar með Kongó í tvennt.
Jafnframt munu þerr þá
verða á undan SÞ-mönn-
um, er taldir voru hafa í
huga að hernema landa-
mærin.
ÍvMMMMMWWVMVMMMMIW
Frumvörp
milli deilda
FRUMVARPIÐ um samein-
rng Áfengisverzlunarinnar og
Tóbakseinkasölunar hefur átt
greiða leið gegnum Efri deild og
var samþykkt þar við 3. um-
ræðu í gær með 15 samhljóða
atkvæðum. Fer málið nú trl
Neðri deildar.
Neðri deild afgreiddi hins
vegar til Efri deildar í gær
frumvarp um Fskveiðasjóð ís-
lands með 19 atkvæðum gegn
5 Framsóknarmönnum, sem
vilja láta ríkissjóð hera gengis-
tap af erlendu lánum, sem sjóð
urinn þarf að taka.
Alþýðublaðið
8. febr. 1961 3