Alþýðublaðið - 08.02.1961, Síða 4
ERLEND TÍÐINDl
JFK og efnahagsmálin
eftir Guðna Guðmundsson
JOHN F. KENiNEÐY, hinn
nýi forseti Bandaríkjanna,
sendi í s. 1. viku hoðskap til
þingsins, hinn fyrsta af nokkr
um slíkum, sem væntanlegir
eru nú alveg á naestunni. Svo
sem við mátti 'búast fjallaði
boðskapur þessi um efnahags-
mál og leggur í aðalatriðum
línuna um stefn.u stjórnar
Kennedys í þeim málum. Eins
og menn muna af fréttum,
liafa Bandaríkjamenn átt í
nokkrum erfiðleikum undan-
íarið á sviði efnahagsmála og
guilflótti verið mikill úr land-
inu. M. a. varð þetía til þess,
aö Eisenhower lét það vrerða
eítt af sínum síðustu verkum
í emoætti að kalla heim fjöl-
skylaur hermanna, sem að-
setui' nata utau Bandaríkj-
anna.
Þá ma minna á það, að í
kosningaoaráttu .sinni hélt
Kennedy pví fram, að milljón-
ir Bandarikjamanna færu
svangir í lumið á hverju
kvöldi. í hinum nýja efnahags
boðskap sínum, ræðir hann
bæöi þessi amði og úrbæíur
á þeim, auk ýmislegs annars,
en almennt miðast 'þær til-
lögur, sem hann gerir, við að
snúa bandarísku efnahagslífi
af leið hjöðnunar og atvinnu-
leysis íil vaxtar og öryggis,
Tilgangur Kennedys ,er ekki
aðeins að stöðva hjöðnun þá,
sem um nokkurt skeið hefur
verið í efnahagslífinu, heldur
að hefja eflingu þess og byggja
iruggan grundvöll undir frek-
rri nýtingu auðlinda landsins
ug örari vöxt í efnahagsmál-
um en þar hefur verið nokkur
utmanfarin ár.
jif Repúblikanar
^ lítt hrifnir.
I boðsKapnum fór ekki hjá
því, að sneitt væri verulega
að stjórn Eisenhowers vegna
stjórnar á efnahagsmálunum
undanfarin ár, ogíhafa leiðtog-
ar þeirra, Charles ÍHalleck í
fulltrúadeildinni, og Everett
Dirkens, í öldungadeildinni,
rætt um tillögur Ken-
nedys ; blaðaviðtali fyr-
ir helgina, að tillögur Ken-
nedys mundu hafa lítil á-
'hrif á atvinnuleysið Og við-
reisn efnahagslífsins, annars
vegar, en hins vegar skar Hall-
■eck upp herör meðál repútílik-
ana gegn „eyðslu-tiUögum,
sem mundu kosta milljarða
dolíara".
Og hverjar eru þá tillög-
urnar, sem Kennedy gerðí í
títtnefndum boðskap sínum?
Boðskapurinn er mjög víð-
tækur og verður ihér aðeins
minnzt á nokkur thelztu atriði
hans, en í honum eru -ekki
minna . en tólf höfuðatriði
þeirrar stefnu, sem hann vill
fylgja, frá stjórn peningamála
til lágmarkslauna, frá hús-
næðismálum til trygginga.
Húsnæðis-
mál.
Sem dæmi má taka hús-
næðismálin. íbúðarhúsabygg-
ingar hafá dregizt aftur úr í
Bandaríkjunum og á því sviði
stingur Kennedy upp á lækk-
un vaxta af lánum til húsa-
bygginga og auknum hraða í
áætlunum borga um endur-
nýjun húsnæðis. Halda repú-
blikanar því fram, að þessi
vaxtalækkun muni hafa lítil
áhrif.í þá átt að auka nýbygg-
John. F. Kennedy.
ingar. Hélt Dirksen því fram
á fyrrnefndum blaðamanna-
fundi, að öldungadeildin hefði
fellt slíka tilögu 1959, þar eð
það hefði verið „augljóst“, að
slík. ráðstöfun mundi hækka
forvexti og fæla einkafjár-
magn frá markaðnum.
Annað veigamikið atriði í
efnahagsboðskapnum er bráða
birgða framlenging styrkja til
atvinnulausra samkvæmt at-
vinnuleysistryggingalögum
ríkisins, dreifing matvæla til
þeirra hluta ríkisins, þar sem
neyð ríkir, sértsök aðstoð við
börn atvinnulausra, umbæt-
ur á tryggingakerfi ríkisins,
hækkun lágmarkslauna, víðari
beiting þeirra, meiri harði í
byggingaframkvæmdum rík-
isins og sérstök aðstoð við
„vandræða-svæði“ landsins,
sem dregizt hafa aftur úr í
efnahagsþróuninni og þar sem
atvinnuleysi hefur verið stöð-
ugt vandamál.
Þe
Mannleg
sjónarmið.
MENN í FRÉTTUM
etta allt saman kölluðu
fyrrnefndir repúblikanar
„smávægileg atriði“, -og þau
kunna að vera það, þegar lit-
ið er á hina stærri mynd efna-
hagslífsins, en frá mannlegu i
sjónarmiði eru þau ekki neitt
smáatriði. og raunar rnundi
flestum íslendingum finnast
þessar ráðstafanir sjálfsagðar,
en við búum nú í „velferðar-
þjóðfélagi“.
Eitt atriði má og benda á í
þessu sambandi. Svo er að sjá
sem Kennedy hafi ekki verið
með nein innantóm kosninga-
slagorð, þegar hann talaði um
fólkið, sem færi svangt í rúm-'
ið, og það sem meira er, hann
gleymir því ekki, þegar hann
er orðinn forseti, heldur læt-
ur það verða eitt af sínum
fyrsfu verkum að gera eitt-
hvað í málinu. Þetta lofar
góðu. „New Frontier“ menn-
irnir hafa þjóðfélagslega sam-
vizku, ekki síður en ,,New
Deal“ mennirnir.
Uu
Bannið gegn
hjöðnun.
>m stefnuna í penfnga-
málum er erfiðara að segja
eftir boðskapinn, enda verða
þeim vafaiaust gerð betri skil
í boðskap um gjaldeyrisstöð-
una gagnvart útlöndum, sem
sendur hefur verið þinginu.
Enginn efi er þó á, að við
ramman reip er að draga
vegna gjaldeyrisstöðunnar. —
En yfirleitt má segja, að ráð-!
stafanir þær, sem fyrirhugað-
ar eru, miðist við að vinna
gegn hjöðnuninni í fyrsta lagi,
en aðalstefnan er að koma.
efnahagslífi Bandaríkjanna á
réttan kjöl, lyfta því upp til
mestu afkasta, sem hugsajileg
eru, og flýta fyrir vexti í
efnahagslífinu.
í boðskap sínum kvað Kenn-
edy möguleikana sífellt vera
að aukast. Er það skoðun hans,
að með núverandi árlegri
aukningu framleiðni og vinnu
afls megi gera ráð fyrir 3,5%
aukningu í efnahag Banda-
ríkjanna á ári hverju. Langt
er frá því, að slík aukning hafi
átt sér stað á síðustu árum. En
Kennedy finnst þetta ekki
nóg. — Með fullri nýtingu
manna, náttúruauðæfa og
framleiðslutækja, telur hann,
að enn megi auka vöxtinn.
Eiít af þeim atriðum, sem
SVART I ÁLINN
HINN NÝI landbúnaðar-
málaráðherra Kennedys
Bandaríkjaforseta, Orville
Lothrop Freeman, á vafalaust
eítir að eiga við erfiðleika að
stríða í embættinu, eins og
svo margir fyrirrennarar
ihans, en hann hefur þá fyrr
séð hann svartan.
Landbúnaðarráð-
herrar af hvaða ■
stjórnmálaflokki sem |
þeir hafa verið — f
hafa alltaf verið hafð
ir fyrir þlóra í flest-
um stjórnum Banda-
ríkjanna og hafa oft
og iðulega beðið lægri ^
hlut í baráttunni við k
þingmenn, samtök og W
almenning.
Frá því sjónarmiði hefur
Freeman hlotið ágæta þjálf-
un til starfans. Sem helzti
ráðunautur Kennedys í land-
búnaðarmálum verður hann
að kljást við eilíft vandamál:
Hvernig auka á tekjur bænda
og losna við offramleiðslu
þeirra. Sem Minnesotamaður,
og fyrrverandi ríkisstjóri þar,
hefur hann til að þera h-e.fi-
leika, sem hann mun þurfa
á að halda á árunum framund-
an.
Hann er ungur og getur þol-
að hiua miklu vinnu og miklu
gagnrýni, sem fylgir starfinu.
Hann er gáfaður — ágætis-
einkunnarmaður frá háskól-
anum í Minnesota. Hann er
slyngur stjórnmálarnaður —
t, d. var hann þrjú kjörtíma-
bil ríkisstjóri í Minnesota,
sem repúblíkanar vinna oft-
ar en demókratar.
Leið Freemans til stjórn-
málaframa hefur verið erfið.
Hann hefur oft hrakið af leið
og beðið fleiri en einn ósigur
— hinn síðasta í nóvember sl.
er hann beið lægri hlut í
fjórða sinn, sem hann bauð
sig fram til ríkisítjóra, en
slíkt hafði enginn gert áður.
Blöðin sögðu, að hann hefði
átt „í of mörgum deilum við
of marga menn“. Einn af sam-
starfsmönnum hans sagði: „Ef
til vill er hann búinn að missa
velvilja manna“.
Freeman fæddist í Minnea-
polis 9. maí 1918. Hann vairn
fyrir sér allan tímann á með-
an hann var að ljúka háskóla
nómi — sem aðstoðarmaður
múrara, sem húsvörður og
vinnumaður í sveit. Hann út-
skrifaðist með láði og gerðist
síðan lögfræðingur.
Árið 1941, skömmu
eftir að hann útskrif-
aðist, gekk hann í
landgöngulið flotans.
Tveim árum síðar ent
ist honum heppnin
ekki lengur og særð-
ist hættulega á Boug-
ainville í orustunni
á Kyrrahafi. Eftir 8
mánaða legu í sjúkra-
húsi var hann sendur til Wash
ington til að skipuleggja stofn
un þá, er aðstoðaði hermenn
úr landgönguliðinu, er þeir
komu úr hernum. Hann er nú
undir-ofursti í varaliði land-
gönguliðsins.
Hann hóf afskipti sín af
stjórnmálum sem aðstoðar-
maður Hubert Humphreys,
sem þá var borgarstjóri -£
Minneapolis. Árið 1948, er
Humphrey var kjörinn í Öld-
ungadeildina, varð Freeman
formaður demokrata-bænda
og verkamannaflokksins,
Hann er þekktur fyrir góð tök
sín á blaðamönnum og er
sannfærandi í málflutningi
og góður ræðumaður. Hann
virðist ekki vera snöggur upp
á lagið eða einstrengingsleg-
ur, en kunningjar hans úr
heimahéraðinu segja, að það
sé talsverð þrákelni í honum.
iÞá er hann og talinn mjög
frjálslyndur í stjórnmálum.
Freeman hefur lýst sig fylgj
andi þeirri markaðsstjórn.
sem Kennedy boðaði undir
nafninu „framboðs-stjórn“ í
kosningabaráttunni. Það ber
þá ekki að búast við, að Free-
man hrindi þegar í stað í fram
kvæmd tillögunum, sem fram
komu í kosningabaráttunni a.
m. k. ekki fyrr en nokkurt
samkomulag hefur náðst með
al framleiðenda.
Bandaríkjastjórn hefur til at-
hugunar í þessu máli, er end-
urskoðun á skattamálum, sem
m. a. miðar að því að auka
fjárfestingu í verksmiðjum og
tækjum, afnám sérstakra skatt
fríðinda o. fl. Gerir hann senni
lega nánari g'rein fyrir þessum
atriðum um síðari boðskap-
inn.
E,
Ráðgjafa-
neínd.
nn er eitt veigamikið atr-
iði úr .boðskap Kennedys ótal-
ið, en það er stofnun sérstakr-
ar ráðgjafanefndar um sam-
skipti verkamanna og vinnu-
veitenda, er rannsaka á öll
mál, er snerta t. d. stefnuna í
verðlags- og kjaramálum, -—
samninga þessara aðila, vél-
væðingu, framleiðni og stöð-
ugleika verðlags. í nefndinni
munu eiga sæti fulltrúar
verkamanna, vinnuveitenda
og hins opinbera. Er húizt við,
að bæði verkalýðsmálaráð-
herrann og viðskiptamálaráð-
Framh. á 14. síðu
4 8. febr. 1961
Alþýðublaðið