Alþýðublaðið - 08.02.1961, Page 5
Lokað vegnal
veikinda
Tvser ungur stúlkur komu
komu á afgreiöslu fyrir-
á ritstjórn Alþýðublaðs-
ins í gærtlag, og sögðu
farir sínar ekki sléttar af
viðskiptum við sokkavrð-
gerð hér í bæ. Þegar þær
tækisins í gær, til að
sækja sokka úr vrðgerð,
var afgreiðslustúlkan að
tala í síma. Eftir að þær
höfðu beðið nokkurn
tíma, kom afgreiðslustúlk
an, og sagði, að þær gætu
vel beðið.
Stúlkurnar biðu nú
nokkra stund enn, og þeg
ar afgreiðslustúlkan lét
sjá srg aftur, þá spurðu
þær hvort þær yrðu ekki
afgreiddar. Við það reidd-
ist afgreiðslustúlkan, og
sagði þeim að hypja srg
út. Þegar hér var komið
gáfust stúlkurnar upp, og
fóru niður á lögreglustöð.
Lögreglan sagði þeim að
reyna einu sinnr enn, og
ef það ekki tækist, þá til-
kynna þetta til Rannsókn-
arlögreglunnar.
Stúlkurnar komu nú í
annað sinn að afgreiðsl-
unnr, en þá hafði spjald
verið hengt út í glugg-
ann, og á því stóð: Lokað
vegna veikinda.
ABURÐARVERKSMIÐJAN
er 10 ára í dag. Var verksmiðj-
an stofnuð 8. febrúar 1950 sam
kvæmt lögum frá 23. maí 1949.
Starfsemi verksmiðjttnnar
hófst 7. marz 1954. A því tíma-
bili, sem síðan er Iiðið, hefur
verksmiðjan framleitt 130 þús.
lestir af kjarnaáburði að verð
mæti 265 millj. kr.
Starfsemin hefir skapað áuk-
ið öryggi íslenzkum landbún-;
aði og hefir bætt fjárhagsaf-
komu þjóðarinnar. — Á síðasta
ári var áburður verksmiðjunn-
ar seldur miklu lægra verði. en
sambærilegur áburður hefði
kostað innfluttur, eftir að geng
isbreytingin var gerð. Talið er,
að meðaltals sparnaður af
þessu fyrir hvern bónda hafi
numið á árinu sem leið um
2000 kr.
Gjaldeyrissparnaður þjóðar-
búsins vegna verksmiðjurekst-
ursins er áætlaður að samsvara
milli tvö- og þrefaldri þeirri
fjárhæð, sem varið var til bygg
ingar verksmiðjunnar í erlend
um gialdeyri.
Starfsemin hefir lagt til vara
sjóðs og til afskrifta miklar
fjárhæðir, sem notaðar verða til
þess að undirbúa og fram-
kvæma frekari framleiðslu í
samræmi við upphaflegar á-
kvarðanir, að auka enn öryggi
landbúnaðarins og til bættrar
afkomu allrar þjóðarinnar.
Nú er ráðgert að hefja fram-
leiðslu á fosfatáburði svo
blönduðum áburði, fosfati,
köfnunarefni og kali. Einnig er
ráðgert að framleiða köfnunar-
efnisáburð með smærri kornum
en verið hefur.
afnumin?
FULLTRÚARAÐSFUNDUR
Sambands íslenzkra sveitar-
félaga hófst í fundarsal bæjar-
stjórnar Reykjavíkur í gær-
morgun. Jónas Guðmundsson,
formaður sambandsins, setti
fundinn, en Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, flutti ávarp og
bauð fulltrúa velkomna til
starfa.
Þá flutti formaður skýrslu
°2 um starf'stjórnarinnar á síðasta
ári og skýrði frá gangi ýmissa
mála. er sveitarféiögin varða,
um gatnagerðarfélagið Malbik,
um breytingar á útsvarslögum,
breytingar á lögum um Bjarg-
ráðasjóð, sem hann taldi mjög
mikilvægar, og nokkur önnur
þingmál.
Á dagskrá fundarins var m.
a. væntanleg löggjöf um tekju-
stofna sveitarfélaga og kom
ráðuneytisstjórinn í félagsmála
ráðuneytinu, Hjálmar Vil-
hjálmsson, á fundinn og gerði
'gréin fyrir þeim breytingum,
sem nú er fyrirhugað að gerðar
verði á fjármálum sveitarfélag-
anna.
Ræddi hann t. d. um afnám
'vekuútsvara, en að upp verði
tekið sérstakt aðstöðugjald, sem
stofnanir og fyrirtæki mundu
greiða sveitarfélögum, og jafn-
vel yrði miðað við útgjöld við-
komandi fyrirtækja í stað veltu.
Þá væri einnig rætt úm að lög-
festa fasteignaskatta .um land
allt. Einnig drap Hjálmar á
hugsanlegar breytingar á nið-
urjöfnun útsvara eftir að breytt
hefur verið innheimtu ríkis-
skatta;
Onnur mál, sem voru til um-
ræðu, voru frv. um ríkis- og
héraðsfangelsi, og frv. um ríkis
ábyrgðir, svo að eitthvað sé
nefnt. Eftir umræður í gær var
■ málum 'vísað til nefnda, sem
ljúka. störfum í dag, og verður
fundi síðan fram haldið á morg
un, en gert er ráð fyrir að fund
inum ljúki á föstudag.
MYNDIN var tekin á full-
trúaráðsfundinum í gær
Hjálmar Vilhjálmsson ráðu-
rieytisstjórl er í ræðustóli.
Bjórinn................
Framhald af 16. síðu.
ölið mundi ekki útrýma áfeng-
isbölinu. Lýsti hann breytingar
tillögu frá sér, stakk upp á að
vísa frumvarpinu til mennta-
málanefndar (ekki allsherjar-
nefndar, eins og PSig) og skor-
aði á þá nefnd, sem fengi málið
til meðferðar, að svæfa það
ekki, heldur láta atkvæði skera
úr.
Gísli lauk máli sínu kl. 4, en
þá var gert fundarhlé til kl. 5.
Voru sárafáir þingmenn á þeiim
fundi, enda ekki búizt við at-
kvæðagreiðslu. Halldór E. Sig-
urðsson talaði þá í tæpa klukkn
stund gegn. írumvarpinu.
Kvaðst hann hafa gert sér sér-
;sérstakt far um að fylgjast með
umræðum um niálið til að geta
:mvndað sér skoðun um það. Á-
standið 1 áfengismálum þjóðar-
innar væri verra en hann hefði
gert sér- grein fyrir. svo alvar-
legt, að gera þyrfti stórátak, ef
ekki ætti illa að fara.
Gunnar Jóhannsson sagðist
vera algerlega andvígur frum-
varpinu, því að. íslendinga vant
aði flest annað fremur en áfeng
an bjór. Hefðu íslendingar alit
frá landnámsárum neytt á-
fengra drykkja úr hófi fram;
höíðingjar og valdsmenn áður
fyrr riðið útúrdrukknir um hér-
uð og kúgað alþýðu. Er góð-
templarareglan yar stofnuð,
hefði fyrst farið að rofa til í
jsvartnætti áfengisneyzlunnar,
sagði Gunnar, en kvaðst vilja
taka fram, að hann yæri eng-
inn meðlimur í bindindissam-
tökum. Þingmaðurinn kvað á-
fengið vera einn mesta bölvald:
alþýðuheimilanna og vitnaði í
grein í Þjóðviljanum því til
stuðnings. Fjöldi kaffihúsa >
Revkjavík hefði leyfi til áfeng-
issölu á margföldu verði ÁVR,
sem væri nógu hátt fyrir.
Að Iokum tók Pétur Sigurðs-
son til máls, svaraði ýmsum at-
riðum úr ræðum andstæðinga
frumvarpsins og endurtók sum
ummæli úr framsöguræðu
sinni: ítrekaði Pétur t. d. til-
jvitnun. í vísindarannsóknír
Finna og lagði áherzlu ., að
hann hefði eindregið óskað þes9
að nefnd sú, er um frumvarpið
fjallaði, kynnti sér til hlítar
niðurstöður rannsókna menn-
ingarþjóða varðandi áhrif á-
fengra drvkkja. Kom ræðumað
ur víða við í svörum sínum ogf
lét oft nægja að endurtaka at.-
riði úr framsöguræðu, sem virt
ust hafa farið framhjá ræðu-
mönnum, er talað hafa gegii
málinu. Hafði Pétur ekki lo'k-
ið við að svara, þegar umræð-
.unni var frestað og málið tekið
út af dagskrá kl. 7,15 í gær.
LEIKFEL.4GIÐ sýnrr
„Tíminn og við“ í kvöld.
Hér ertt þati Þóra Friðriks
dóttir og Gísli Halldórs-
son í hlutverkum sínum.
Aðsókn að „Tímanum“
hefur v.érið góð. Sýning-
in í kvöld er sú nítjánda
í röðinni.
Alþýðublaðið — 8. febr. 1961