Alþýðublaðið - 08.02.1961, Síða 7
ÞAÐ munu vera liðnir um
fimm tugir ára, síðan að fyrst
var rætt um vinnslu tiibúins
áburðar eða áburðarefna hér
á landi, og hvort og hver skil-
yrði væru til hennar. En á
þeim tíma var enn ekki hafin
notkun hans hérlendis svo
teljandí væri. Það er fyrst að
iokinni heimsstyrjbldinni
fyrri, sem áhugi vaknar fyr-
ir honum og þeim árangri,
sem af notkun hans sé að
vænta, og 1929 var Áburðar-
sala ríkisins stofnuð með lög-
um frá Afþingi, til að annast
innfdutning og sölu tilbúinna
áburðarefna. Skipulagsnefnd
atvinnumála, sem starfaði
1934 og nxitu árin á eftir,
gerði athuganir og áætlanir
um stofnun og rekstur áburð-
arverksmiðju hér á landi og
var meðmælt því. að í f-yrir-
tækið væri ráðizt. Skömmu
síðar hófst heimsstyrjöldin
síðari, og olli hún um sinn
drætti á( ýmsum framkvæmd-
um. Hins vegar mun þá ýms-
um hafa orðið ljósara en áður,
að áburðarvinnsla hérlendis
yki mjög öryggi allrar jarð-
ræktar og tryggði um leið
betri afkomu lándbúnaðarins
og þar með þjóðarinnar allrar
og væri minna háð því, sem
gerðist erlendis.
Á Alþingi 1943 var flutt
frumvarn um stofnun áburðar
verksmiðju, en var ekki af-
greitt. Aftur var frumvarp
um sama efni flutt á Alþingi
1947, en fékkst ekki heldur
lögfest. En á Alþingi 1949 voru
sett lög um áburðarverk-
smiðju. Frá þeim tíma og til
ársbyrjunar 1951 voru gerð-
ar margs konar undirbúnings-
athuganir, innanlands og utan,
bæði fjármála- og tæknilegs
eðlis. Einnig var þá undirbú-
in stofnun hlutafélags til að
reisa og reka verksmiðju til
áburðarvinnslu, eins og á-
kveðið var í áðurgreindum lög
um, Undirbúningur þessi var ■
i höndum stjórnar, er Alþingi
hafði kosið 14. maí 1949, en
hana skipuðu: Steingrímur
Steinþói'sson, búnaðarmála-
stjóri, formaður; Jón Jónsson,
forstjóri og Pétur Gunnars-
son, tilraunastjóri; en auk
þeirra vann þáverandi for-
stjóri Sambands ísl. samvinnu
félaga, Vilhjálmur Þór, með
stjórninni frá því á árinu 1950,
sem sérstakur fulltrúi land-
búnaðarráðuneytisins í þessu
máli. Sú breyting varð á skip-
un stjórnarinnar vorið 1950,
að Bjarni Asgeirsson, landbún
aðarráðherra, kom í stað Stein
gríms Steinþórssonar, er þá
varð forsætisráðherra.
Hinn 5. febúar 1951 var
haldinn stofnfundur Áburðar
verksmiðjunar h. f. í stofn-
samningi félagsins segir svo:
„Markmið félaginis er að
láta reisa og reka verksmiðju
með fullkomnum vélum og
öðrum n'auðsynlegum útbún
aði til framleiðslu ammoníaks
úr vatni og lofti, antmoníum
nítroníum: nítrats, ammoní-
um fosfatís og annarra áburða-
efna, er síðar kunna að vera
ákveðin11..
Þrem dögum áður hafði Al-
þingi kosið í stjórn félagsins:
Vilhjálm Þór, forstjóra, sem
skipaður var formaður stjórn-
arinnar, Jón Jónsson, for-
stióra, og Pétur Gunnarsson,
tilraunastjóra. Stofnfundur
félagsins kaus í stjórnina fyr-
ir hönd annarra hluthafa en
ríkissjóðs: Gunnlaug Briem,
ráðuneytisstjóra, og Jón ívars
son, forstjóra.
Á framhaldsstofnfundi 14.
ágúst 1951 gekk Gunnlaugur
Briem úr stjórninni, en í hans
stað var kosinn lngólfur Jóns;
son, alþingismaður.
Hlutafé í félaginu var l(r
milljón krónur, þar af var eiga
ríkissjóðs 6 milljón krónur, en
4 milijón króna voru lagðar
fram af félögum, einstakling-
um og Reykjavíkurbæ. Sam-
kvæmt ákvæðum áburðarverk
smiðjulaganna má ekki greiða
hærri arð af hlutafénu en 6 af
hundraði, og var það gert í
fyrsta skipti árið 1960. —
Skömmu eftir stofnun íélags-
ins tókst að fá tryggingu fyrir
nauðsynlegu fjármagni til
þess að reisa og fullgera verk-
smiðjuna og semja við verk,-
fræðinga, er teikna skyldu
hana og skipuleggja. Útboð
voru síðan gerð á vélum og
efni og samið um kaup á tækj
um og vélasamstæðum.
í ársbyrjun 1952 var gerð
lokaákvörðun um, að verk-
smiðjan skyldi reist í Gufu-
nesi. Um svipað leyti var
Hjálmar Finnsson ráðinn fram
kvæmdastjóri og skrifsítofu-
rekstur hafinn.'Nokkru síðar,
eða hinn 19. apríl sama ár,
voru gerðir samningar við
Reykjavíkurbæ um land fyr-
ir verksmiðjuna og litlu síð-
ar við Sogsvirkjunina uni
kaup á raforku til reksturs
hennar og loks við Reykjavík
urhöfn um hafnar- og bryggju:
stöðu. Hinn 25. apríl 1952 hóf-
ust störf við byggingu verk-
smiðjunnar í Gufunesi. Með
sameiginiegu átaki innlendra
og erlendra aðiia tókst síðan
að gera mannvirki og koma
fyrir vélum og útbúnaði svo
fljótt, að verksmiðjan hóf
störf rúmum 22 mánuðum síð-
! ar. Fyrstí áburðurinn var til-
: búinn og sekkjaður 7. marz
Framh. á 12. síðu..
EVI Y N D.l R :
Að ofan sér yfir verksmiðju-
hverfið í Gúfunesi. I»ar hefur í
l'u ár sarnfleytt verið framleidd
ur tilbúinn áburður og hefur
framleiðslan ger.t jafnvel meir
en að nægja þörfinni inman-
land's. Til beggja hliða hér að
ncðan eru myndir úr vinnusöl-
um verksmiðjunnar.
Alþýðublaðið — 8. febr. 1961 y