Alþýðublaðið - 08.02.1961, Síða 14
Svart í álinn
Framhald af 4. síðu.
herrann eigi sæti í þeirri
nefnd. Aðalverkefni nefndar-
innar er talið munu vera að
kanna aðgerðir, sem verka-
menn, vinnuveitendur og önn-
ur samtök einstaklinga geta
stuðlað að til aukningar á
framleiðni og vexti efnahags-
lífsins, fremur en ránnsaka
aðgerðir, er stjórnin geti fram
kvæmt í þessu efni.
Með boðskap sínum hefur
Kennedy tekið fyrsta skrefið
í efnahagsaðgerðum sínum og
margt af því, sem minnzt hef-
ur verið á hér, og önnur atriði
boðskaparins eiga eftir að
komast í fastari skorður. En
ef til vill má bezt sjá hver
stefnan er af lokaorðum boð-
skaparins, þar sem hann seg-
ir m. a.: ,,Ég hef reynt í þess-
um boðskap að leggja fram
áætlun til að endurreisa kraft-
inn í efnahagslífi Bandaríkj-
anna. Ég hef mælt með ráð-
stöfunum, er miða að því að
beina okkur örugglega inn á
leiðina til fulls bata og varan-
legs vaxtar“.
/jbróff/V....
Framliald af 10. síðu.
+ ÞÝZKIR DÓMARAR
DÆMA LEIKINA
GEGN DÖNUM OG
SVISS
Eins og skýrt hefur verið frá
hér á síðunni, leika íslending-
ar gegn Dönum í Karlsruhe 1.
marz og þann leik dæmir aust-
ur-þýzki dómarinn Singer,
mjög góður dómari. Leikinn
gegn Sviss, sem fer fram í
Wiesbaden 2. marz dæmir vest-
ur-þýzki dómarinn Rosmainith.
Leikurinn í Karlsruhe hefst kl.
18.50 eftir ísl. tíma og kl. 18.30
Wiesbaden.
Það hefur nú verið ákveðið,
að Hallsteinn Hinriksson, lands
þjálfari sjái um skiptingar inn
á í keppninni, en fyrirliði lands
liðsins er Birgir Björnsson.
Landsliðsnefndin mun á-
kveða liðin, sem leika fyrsta
leikinn og jafnvel gegn Sviss
áður en farið verður utan. Ef
íslenzka liðið kemst í gegnum
fyrstu umferð, munu þjálfari
og formaður landsliðsnefndar,
Hannes Þ. Sigurðsson stilla upp
hverju sinni. Benedikt Jakobs-
son, sem séð hefur um þjálfun
liðsins hefur látið þá skoðun í
ljós, að þol leikmanna sé yfir-
leitt mjög gott.
Ásbjörn skýrði frá ýmsu
fleiru í sambandi við keppnina
m. a. vandræðum Þjóðverja að
velja lið sitt, sem skipað er
bæði Austur-og Vestur-Þjóð-
verjum. Þjálfarar frá báðum
landshlutum koma saman 13—
18. febr. og velja liðið, en bú-
izt er við, að það verði svipað
og í síðustu keppni. Eitt af
deilumálum Þjóðverja, þegar
þeir hafa valið sameiginlega í-
þróttaflokka til keppni hefur
verið þjóðsöngurinn. Nú hefur
orðið samkomulag um að velja
hluta úr 9. sinfóníu Beethov-
ens.
Hróplegt misrétti og — 3
Misrétfi
Framhald af 13. síau.
auka ferðamannastrauminn
til landsins í stórum stíl, því
þessi eiturlyf liggja ekki á
glámibekk í útlöndum.
Búast má við að einhverj-
ir vesælir sálsýkingar neyttu
meira en hollt væri af þess-
um lyfjum, og yrðu ófærir
tii að framfleyta sér og fjöl
'skyldu sinni, eða féllu jafn-
vel frá á miðjum aldri. En
ekki væri vandinn annar, en
að byggja ný hæli handa sjúk
lingunum og barnshæli fyrir
börnin þeirra. Og alltaf yrði
þó einhver hola í kirkjugarð
inum handa þeim, sem færu
yfir um. Hælin mætti reisa
fyrir ágóðann af lyfjasöl-
unni. Margir fengju atvinnu
við hjúkrun og barnagæzlu,
svo þetta yrði líka eins kon-
ar atvinnubótaspursmál.
Ég bendi hér á þessi at-
riði til vinsamilegrar athug-
unar fyrir þá, sem þykir
frelsi einstaklingsins fullmik
ið skert, og þegnar þjóðfé-
lagsins misrétti beittir í þess
um efnum. Geta þeir svc
borið fram sínar umbótatil-
lögur, þegar þeim finnst þær
tímabærar.
Líklegt þykir mér, að flytj
andi ölfrumvarpsins skiljist
ekki við það mál, fyrr en
hann hefir tryggt hverjum
einasta íslendingi aðgang að
vel sterku öli, mætti þá svo
fara, að innan tíðar yrði hver
íbúi landsins farinn að neyta
áfengis í stað fjögurra af
hverjum fimm, eins og hann
telur að nú muni vera. Væri
þá glælsilegur sigur linninn í
þessu -mikla velferðarmáli.
Enda nauðsynlegt, þar 'sem
vinnutíminn er alltaf að
styttast, en frítímarnar að
lengjast. Og hvað geta þá
blessuð börnin og ungling-
arnir — hinir verðandi borg
arar — þarfara gert en að
'sitja við öltei'ti í sjoppum
bæja og kauptúna til þess að
þroska þar hæfifleika sína
andlega og líkamlega, svo að
þeir geti orðið fyrirmyndar
borgarar hins íslenzka þjóð-
félags?
miðvikudagur\
SLYSAVARÖSTOFAN er 09-
In allan sólarhringinn. —
Læknavörðnr fyrir vitjanir
ar á sama itað kl. 18—8.
Kvenfélag Bústaðasóknar:
Fundur verður haldinn í
Háagerðisskóla 'kl. 8.30 ann-
að kvöld. Nokkuð óvænt
gerizt á fundinum, Konur
fjölmennið.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell fór í
gær frá Rvík til
Vestfjarða og
Norðurlands-
hafna. Arnarfell
er í Gdynia. Jökulfell er í
Calais. Dísarfell er á Horna-
firði. Litlafell er í Rvík.
Helgafell er á Keflavík.
Hamrafell fór frá Batum 3.
þ. m. áleiðis til Rvíkur.
Hafskip:
Laxá er í Rvik.
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla er í Rvík. Esja fór
frá Rvík í gær austur um
land í hringferð. Herjólfur
fer frá Rvík kl. 21 í kvöld til
Vestm.eyja. Þyrill er væntan
legur til Manchester í dag.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á
vesturleið. Herðubreið er á
Austfjörðum á suðurleið.
Jöklar h.f.
Langjökull fór frá Fred-
rikstad í gær áleiðis til Sand-
nes. Vatnajökull fór frá Lond
on í gær áleiðis til Rvíkur.
Árshátíð Skaftfellingafélags-
ins í Reykjavík verður hald-
in að Hlégarði nk. laugar-
dagskvöld. Skemmtiatriði
og dans.
Alþýðublaðinu barst í gær
vísa með nokkrum formála.
Vísan og formálinn fara hér
á eftir: Hér í Vestmannaeyj
um er háð verkfall, sem
kunnugt er. Hingað hafa
komið þrír topp-kommar til
að athuga gang mála og við-
horf. Menn þessir eru:
Snorrj Jónsson, Björn Jóns-
son frá Akureyri og Guð-
mundur J. einhverskonar
stríðshetja Dagsbrúnar í
Reykjavík. „Eyverja“, sem
svo nefnir sig, varð eftirfar-
andi að orði um þá góðu
gesti:
Til eilífðar verður það
eyjunum vörn,
enginn mun lenda í hraki.
Því hingað kom Snorri og
blessaður Björn,
og blómið hann Guðmundur
jaki.
Loftleiðir h.f.
Snorri Sturlu-
son er væntan-
legur frá New
York kl. 08.30,
fer til Stafang-
urs, Gautaborgar, Kaup-
mannahafnar og Hamborgar
sl. 10.00.
Styrktarfélag vangefinna: —
Minningarspjöld félagsins
fást á eftirtöldum stöðum
í Reykjavík: Bókabúð Æsk-
unnar, Bókabúð Braga Bryu.
jólfssonar.
Tæknibókasafn IMSÍ: Útlán:
kl. 1—7 e. h. mánudaga til
föstudaga og kl. 1—3 e. h.
laugardaga. Lesstofa safns-
ins er opin á vanalegum
skrifstofutíma og útláns-
tínia.
Bókasafn Dagsbrúnar
að Freyjugötu 27 er opið
sem hér segir: Föstudaga kl.
8—10, laugardaga kl. 4—7 og
sunnudaga kl. 4—7.
Minningarspjöld í Minningar-
sjóði dr. Þorkels Jóhannes-
sonar fást í dag kl. 1-5 f
bókasölu stúdenta í Háskól-
anum, sími 15959 og á að-
alskrifstofu Happdræítis
Háskóla íslands í Tjarnar-
götu 4, símj 14365, og auk
þess kl. 9-1 í Bókaverzlun
Sigfúsar Eymundssonar og
hjá Menningarsjóði, Hverf-
isgötu 21.
Miðvikudagur
8. febrúar.
12.50 Við vinn-
una. 18.00 Út-
varpssaga bar-n-
anna: Átta börn
og amma þeirra
í skóginum.
20.00 Myndir
frá Afríku, III.
hlutí (Benedikt
Gröndal alþing-
ismaður tekur
saman dag-
skrána). 20.35 Einsöngur:
Mahalia Jackson syngur.
20.50 Vettvangur raunvísind-
anna: Örnólfur Thorlacíus
fil. kand. kynnir starfsemji
fiskideildar Atvinnudeildar
háskólans. 21.10 Tónleikar:
Rósamund, músik op. 26 eftir
Schubert. 21.30 Saga mín,
endurminningar Ignacy Pad-
erewskis, I. (Árni Gunnars-
son fil kand. þýðir og les).
22.30 Upplestur: Gömluhjón-
in, smásaga eftir Alphonse
Daudet, í þýðingu Önnu Mar-
íu Þórisdóttur (Þýðandi les).
22.45 Djassþáttlur (Jón Múli
Árnason) 23.15 Dagskrárlok.
K.B.100
Þessi segulbandstæki höfum við til sölu.
Áhyrgð á endingu
Afbcrgiifiarskilmálar.
Sendum í kröfu um allt land.
Hafnarstræti 7 — Sími 19800.
U 8- febr. 1961 — Alþýðublaðið
Jóh. Guðm.