Alþýðublaðið - 15.11.1961, Qupperneq 2
Æitatjórar: Gisn J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi rit
Hjómar: [ndriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. -
Bimar: 14 900 — - 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðu-
kúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfisgötu 8—10. — Áskriftargjalo
fcr. 55.00 k mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. -
F’-amkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson.
Hver á verksmið/una?
I ÁBURÐARVÍERKSMIÐJAN er fyrsta iðnfyrir
} tæki, sem kallað hefur verið stóriðja á íslenzkan
= mælikvarða. Starf verksmiðjunnar hefur í heild
; gengið allvel, og hún hefur gert þjóðarbúskapnum
; .mikið gagn. Hins vegar hafa verið nær stöðugar
; dei'lur um verksmiðjuna, um kornastærð og ann
\ að varðandi áburðinn, um sölu og dreifingu hans
| og loks um eignarétt verksmiðjunnar.
] Síðasta atriðið er augljóslega veigamest þessara
j deiluefna. Þegar lögin um verksmiðjuna voru
i sett, var ætlazt til, að verksmilðjan yrði ríkiseign.
i Á síðustu stundu var þó bætt í lögin því ákvæði,
i að hlutafélag mætti! reka hana.
j Þetta hlutafélag var stofnað og á ríkið 60%,
: einstaklingar 20% og samvinnufélögin 20%•
j Síðan hafa ýmsir talið, að þetta hlutafélag ÆTTI
; verksmiðjuna, en aðrir hafa mótmælt því þar á
‘{ meðal Alþýðuflokkurinn. Ef félagið telst ieiga
: verksmiðjuna, hafa hluthafarnir sannarlega kom
j íizt í feitt, því hlutaféð var 10 milljónir og fyrir það
i imundu þeir í dag eiga 2—300 milljóna eign!
Þetta deilumál getur ekki verið lengi óleyst.
■ Það er óþolandi, að eignaréttur á slíku mannvirki
i
; skuli ekki vera ljós, hluth|afar halda sig eiga verk
! smiðjuna, en aðrir telja hana ríkiseign. Hér er um
að ræða mismunandi túlkun á lagafyrirmælum, og
1 virðist eðlilegast að fela þegar Hæstarétti að úr
skurða, hver eigi verksmiðjuna. Að fengnum þeim
; úrskurði getur Alþingi gripið í taumana, ef því
{ .sýnist-
7 æknifræðingar
RÍK ÁSTÆÐA er til að ætla, að efnahagslegir
erfiðleika íslendinga stafi að verulegu leyti af
: kunnáttuleysi og gervimennsku á svfðum tækni
5 legra starfa. Mun vera mestur skortur á nægilegri
' þekkingu í stjóm fyrirtækja, bókhaldi og hag
; kvæmum rekstri, enda hundruð fyrirtækja raun
. verulega bókhaldslaus éba með bókhaldið á blöð
um í rassvasa eigandans. Þá skortir einnig á tækni
: iega þekkingu á mörgum verklegum sviðum.
! Ekki verður sagt, að þjóðin hafi ekki komið sér
upp fríðum hóp verkfræðinga, ef hægt verður að
hemja þá í landinu. Hins vegar er mikill skortur á
i
- svokölluðum tæknifræðingum, sem ekki eru lang
• skólagengnir, en hafa þó undirstöðugóða tækni
menntun. Er að jafnaði fjöldi slíkra manna á móti
hverjum verkfræðing við stórframkvæmdir. Nú
hefur Eggert G. ÞorsteMsson flutt á alþingi til
lögu um að greitt skuli fyrir tæknifræðinámi, og
er það þarft mál og nauðsynlegt, og áhugi iðnaðar
manna á þessu sviði mikill.
GOÐAR BÆKUR -
saga fyr'r telpur eftir Frances Duncombe. -—
Þórunn Rafnar þýddi. — Skáldkonan Hugrún
segip um bókina: „Þcssa bók væri gaman að
gefa í jólagjöl'“. — Sagan er af lítilli telpu,
sem v.ll helzt ráða gerðum sínum sjálf, án
þess að mamma hennar eigi að vera þar þátt
takandi eða ráðandi. Það er ævintýrablær yf-
ir allr; sögunni. og ég trúi ekki öðru en að
hún verði le,sin með eftirvæntingu. — Bókin
er 138 bls. í stóru brot-, með fjölda mynda
og kostar aðeins 45 krónur.
ÁÖRÆFUM
eftir Hallgrím Jónasson. Þorsteinn Jónsson
(Þórir Bergsson rithöfundur) segir m. a. um
þessa bók í Mbl.: „Þessar frásögur Hallgríms
tel ég alveg hiklaust í flokki allra bezt frá-
sagna um ferðalög, sem ég hef lesið . . . Þettá
eru ekki þurrar leiðarlýsingar, heldur lifandi
frásagnir um náttúru landsins, samferðafólk
ið og atburðina, sem gerðust á ferðalaginu.
Bókin er 272 bls., prentu á góðan pappír. Marg
ar myndir prýða bókina, vel prentaðar á
myndapapjpíir. — Vandað band. Kr. 190,00.
Bernskan I—II.
eftir Sigurbjörn Sveinssön- Þær eru ekki
margar íslenzku bækurnar, fyrr eða síðar, sem
hafa átt meiri og almennari vinsældum að
fagna en BERNSKAN efti Sigurfbjörn Sveins-
son, þessar fögru og yfirlætislausu barna- og
unglingasögur, sem lesnar voru á svo til
hverju heimili í landinu fyrir tveimur til
þremur áratugum. Þá þekktu allir Bernsk-
una. — Nú er hún komin í nýjum og fallegum
búningi, ásamt öllum öðrum skrifum Sigur-
bjarnar, skreytt miklurn fjölda mynda, eftir
okkar beztu listamenn. Tvö falleg bindi í
vönduðu hylki. Kr. 180,00.
ODYRAR BÆKUR
Stýfðar fjaðrsr eftir |
GuSrúniui frá Lundi.
Þetta er nýjasta bók Guðrúnar. Um haná
segir Þorsteinn M. Jónsson rithöfundur og
bókaútgefandi frá Akureyri: Guðrún frá
L-undi kann þá list að gea alla atburði jafnt
smáa sem stóra, sö^ulega. Og hún er jafnari
snillingur í mannlýsingum. Hún hefur óþrjót
andi söguefni úr hinu daglega lífi, á þess a'ð
tvinna inn í sögu sínar reyaraatburðum.
Sögur hennar eru réttar lýsingar á mönnum
og þjóðlífi. Mér finnst þessi bók meðal beztu
bóka hennar. — Bókm er með sam;a lága
verðinu og í fyrra — kr. 145,00.
Píiagrímsför fli heilsulind- j
anna í Lourdes
eftir Guðrúnu Jacobsön. Jóhannes Gunnars<
son Hólábiskup segir í formála fyrir bókinni;
„Bókin er einlæg frásögn ungrar konu af því,
er hún sá fyrir sér saman komnar á einum
stað þjáningar mannkynsins, hinn þunga
kross, er varð svo miklu léttbærari, er kropið
hafði verið með hann að fótum heilagrar
Guðsmóður . . . Bókinni óska ég góðs gengig
og vænti þess að sem flestir lesi hana og fari
um leið í huganum í andlega pilagrímsför til
Lourdes11. — í bókinni eru margar fallegari
myndir. — Kostar 85,00.
Kvæði frá Holfi
eftir sr. Sigurð Einarsson. — Ljóðabækur Sig-
urðar hafa notið mikilla vinsælda á undan-
förnum árum og hlotið lof vandfýsinna gagn
rýnenda. Þessi nýja ljóðabók Sigurðar Ein-
arssonar er líkleg til að verða ljóðaviðburðuí
haustsins. a
T Ó L F unglingabækur.
Unglingabækur LEIFTURS eru fyrir löngu viðurkenndar.
— Þær eru skemmtilegar og þær eru ódýrar. Nú í haust eru
komnar 12 nýjar og fleiri koma fyrir jól.
Þessar eru komnar í bókaverzlanir:
Matta->Maja í menntaskóla.
Hanna og hvíta kanínan.
Baldur og boðhlaupssveitin-
Konni er kaldur snáði.
Græna vítið (Bob Moran III).
KIM og dularfulla húsið.
Stína flugfreyja.
Maríanna, telpusaga handa 8—12 ára telpum.
Fríða, Knútur og Kata í heimsókn hjá ömmu,
bók yngstu lesendanna, 6—9 ára. .
Róbínson Krúsó í hinni vinsælu þýðihgu Stein-
gríms Thorsteinssonar skálds.
Dansi, dansi dúkkan mín, handa 6—9 ára.
Með eldflaug til annarra hnatta, drengjasaga.
Leikur Bach-
fantasíu í
Dómkirkjunni
RAGNAR Björnsson efnir til
orgeltónleika í Dómkirkjunni
n. k. fimmtudagskvöld. Ragn-
ar mun Ieika orgelverk eftir
Pál ísólfsson, Liszt, Reger og
Mulet.
Á fundi, sem dr. Páll ísólfs-
son og Ragnar Björnsson áttu
með blaðamönnum, sagði Páll,
að eitt þeirra verka, sem Ragn
ar myndi leika á tónleikunum,
hefði aldrei verið leikið hér áð
ur af íslendingj. enda væri það
eitt erfiðasta orgelverk, sem
samið hefði veríð. Verk þetta
er Bachfantasía eftir Max Re-
ger. Ragnar Björnsson er gam
all nemandi og núverandi að-
stoðarmaður Páls sem orgelleik
' arí við Dómkirkjuna, auk, þess,
sem bann er söngstjóri karla-
kórsins Fóstbræður sem kunn-
ugt er. Ragnar lauk námi við
Tónlistarskólann fyrir 10 árum
og í fyrrasumar var hann ujp.
tíma við nám hjá framúrskar
andi orgelleikurum í Miinchen,
Á efnisskránni, sagði Ragn-
ar, eru eingöngu sein-rómant-
ísk músík. Verk Max Regers
hefur, eins og að framan segir,
ekki verið leikið hér áður, en,
það var áform Regers að gera
orgelið að vinsælu konsert-
Framhald á 14. síðu.
15. nóv. 1961 — Alþýðublaðið