Alþýðublaðið - 15.11.1961, Side 4
VIKUBLAÐIÐ TIME birti
nú um helgina fróðlega og
skemmtilega grein um það,
sem er að igeri t og hefur
verið að gerast austur í
Moskva. Segir þar frá því,
er flokksþí'ngið varð að
eins konar miðílsfundi og
þar f/I auki af ivfðræðum
óbreyttra borgara á götum
borgarinnar. Þyk/r okkur
ástæða til að b/rta megnið
af grein þessarf hér, enda
hefur sumt af því, sem þar
'atendur, ekki b/rzt fyrr hér.
Síðustu dagar 22. flokks-
^ ngsins í Moskva voru um-
lukir undarlegu andrúmslofti
töfra og hins yfirnáttúrlega.
”Við hinn langa lista ræðu-
manna, sem samkvæmt ritú-
-alinu ihölvuðu minningu
Stalins, ,bættist hin veik-
hyggða, gamla Darya Lazur-
.kina, er sem bjarteyg ung
stúlka hafði árið 1902 gerzt
"tryggur nemandi Lenins.
fflíún var líka ein af hinum
/mikla fjölda, sem Stalin
hreinsað; 1937, og í sl. viku
ískýrði Darya 5000 áhuga-
Sömum fulltrúum frá því, að
hún hefði liíað af 19t/2 ár í
fangelsi, vinnubúðum og út-
legð einungis vegna þess, að
„ég hafði Lenin alltaf í hjarta
-mínu og spurði hann hvað
•gera skvldi“. E!ns og hof-
gyðja frá Delfi hélt Darya
^iáfram: „í gær ræddi ég aftur
við Lenin 'Og það var sem
h.vnn stæðj lifandi fyrir fram
an mig. „Það er óskemmti-
legt fyrir mig að liggja við
hliðinq á Stalin, sem olli
fl'okknum svo miklum
skaða.“
Fulltrúarnir — al’ár fvlgj
endur dialektiísl/-ar efnis-
ihyggju, allir svarnir fjand-
menn ,.hiátrúar“ og hins yf
irnáttúrlega - hlustuðu fullir
virðingar á skilaboðin úr
anda'heiminum. Jafnvel Ge-
orgíurr°nn. sem höfðu verið
svo sloltir af syni heimalands
®íns. að þeir tóku upp mót-
mælaóeirðir, þegar StaKn
va-r fvrst gagnrýndur, tóku
•nú þátt í fordæmingunni.
fSiðan segir í Tinye frá
naeturheimsókn lögreglu
manna og hermann^ í graf-
ihvsi Lenins og Stalíns og
brottflutningi hins smurða
líks hins síðarnefnda.)
t því, sem jafngildir í
Kreml þriðja flokks jarðar-
för, var líkið grafið á bak við
grafhýsið í grafreit, sem ætl
aður er eitthvað vafasömum
eða óljóst frægum rauðliða-
hetium — hinum ,,kammó“
Mikhail Kalinin. fyrrum for
seta, hinum ákafa stalínista
Andr°i 7hdanov, stofnanda
leynilögreglunnar Felix Dzer
zhinsky og hinum bandaríska
kommúnista John Reed. Til
medíu var svo settur pottur
að kórón, þessa lUyllings kó
með tólf hvítum krvsentem-
um á h:na nýju gröf manns-
ins, sem rétt var búið að yf-
irlýsa hvað eftir annað sem
fjöldamorðingja.
(Því næst segir Time frá
því að Krústjov hafi flýtt
sér að bæta upp tapið á ei.nu
skurðgoði með því að afhjúpa
nýja, risastandmynd af Marx.
Og hann lofaði enn öðru:
minnismerki um fórnardýr
Salíns. Öll Moskvublöðin
ibirtu sarnhljóða frétt af þess
um atburðum, fjórar línur,
grafnar á baksíðu.
(Þá skýrir blaðið frá því, er
frétlaritari þess, Edmund Ste-
vens, blandaði sér í hópa
manna á Rauða torginu og
hlustaði á ókyrra og hugs-
andi menn ræða atburðina.)
Maður með sixpensara
vildi fá að vita hvers vegna
það væri nauðsynlegt að
flytja lík StaKns eftir öll
þessi ár. Ofursti úr Rauða
hernum svaraði því til, að
ekki 'hefði verið hægt að láta
Stalin liggja við hlið Leníns
eftir að glæpir hans hefðu
verið opinberaðir. „Láttu
ekki svona!“ hrópaði húfu-
maðurinn. „Vertu ekki að
reyna að segja rrór, að þeir
hafi ekki vitað um þetta
fyrr. Þeir viSSu nóg. Hefur
Krúsjov ekki verið í stjórn
málanefndinni síðan 1939?“
„Vissulega“, sagði ofurstinn.
„En það er ekki fyrr en á sið
ustu árum, >ð öll sönnunar-
g‘gn hafa verið fyrir hendi.
Skjölin eru geysimikil, og
það tekur tíma að fara gegn
um þau.‘‘
Þarna nálægt var stúdent
að deila v;ð fullrúa af þing-
inu um fyrirhugaða uppreisn,
sem Krústjov hyggst veita
ýmsum fórnarlömbum Stal-
íns. „Hvað um Bukharin,
Zinoiw og Kamenev og
Ihina gömlu karlana, sem
unnu með Lenin? Er það
ekki næstum víst, að þeir
hafi líka verið bornir lognum
sökum?“ Rödd í hópnum
skaut inn: „Hvað um Trot-
sky?“ Órólegur fulltrúinn
svaraði: ,,Ég efa mjög, að
'hann verði endurreistur —
hinir kannski, en ekki Trot-
sky.“
Við Kremlvegginn var
miðaldra borgari og ungur
maður með gleraugu á kafi í
utanríkismálum. „Blöðin
sögðu, að við yrðum að hefja
tilraunir vegna þess að Banda
ríkjamenn hefðu í hyggju að
ráðast á okkur,“ sagði ungi
maðurinn. „Ef svo er, hvers
vegna réðust þeir ekki á okk
ur 1946, þegar þeir áttu at-
ómjjprengjuna en við ekki?“
Miðaldra maðurinn sagði, að
Bandaríkin hefðu ekki verið
undir það búin þá. ,,Ef þau
voru ekki undirbúin þá, hvers
vegna heldurðu þá að þau séu.
það nú?‘‘ spurði unglingur-
inn. „Við getum ekki verið
vissir um svarið“, svaraði
maðurinn. „Við verðum að
tryggja okkur.“ Við áheyrend
ur sagði unglingurinn:
„Þetta er hættulegt. Hvað
vitum við um úrfall? Hvað
veit nokkur okkar? Persónu
lega trúi ég ekki, að neinn
mundi vera svo brjálaður að
hefja kjarnorkustyrjöld.“
(Að lokum segir í grein
Time.)
Það, sem virtist vera að
koma til umræðu í Rússlandi
í síðustu viku, var sjálft
kerfið. Nema því aðeins, að
Krústjov sé fús til að „stinga
upp í“ þjóð sína aftur verður
hann að gefa trúleg svör við
tveim áleitnustu spurninguni
um um kommúnismann:
Hvernig gat hann leyft manni
eins og Stalín að grípa al-
gjör völd og hvernig getur
hann komið í veg fyrir, að
annar Stalín rísi upp? Krús-
tjov er að reyna að sýna fram
á, að harðstjórn Stalíns hafi
stafað af þorparaeðli eins
msnm) rússnesk þjóð kann
að velta því fyrir sér í grund
vallaratriðum, hvort hún
hafi ekki raunverulega verið
óhjákvæmileg afleiðing kom
múnismans.
Hverjar sem eru efasemd
irnar og spurningarnar, þá
var hið rúmgóða grafhýsi á
Rauðn torginu aftur opið fyr
ir almenning í vikulokin, en
með bæði, nafn og lík Stalíns
af"nm'n.
Eftir japl og jaml og fuður,
Jósef var graf nn út og suöur .
Tekið í blökkina - Örlög og ævintýri
BÓKAÚTGÁFAN SETBERG
sendir frá sér í dag tvær nýjar
bækur: Tekið í blökkina, endur
minn'ngar Jóngeirs D. Eyrbekks
sem Jónas Árnason hefur tekið
saman eftir frasögn Jóngeirs. —
Sögumaðurinn hefur nær alla
sína æv; stundað sjómennsku og
fyrst og fremst á togurum og
eru minningar lians nær allar af
ijimum. Frásógnin er hicssileg
cg skemmt'leg. eniia virAíst Jón
geir vera hreinskilirm maður og
nrcinsl riftinn, ncrn.i lilut na
réttum nöfnum ig vera laus við
allan tepruskap. Bókin er 176
blaðsiður í allstóru broti.
Ilin ’-ókin h'.itii. Órliiu og æv
intýr:. í henni biriast níu frá-
sagnir eft r heimsfræga höfunda
um merkilega atburði, mann-
raun r og ævintýri, sem þeir
hafa lent í eða uppliíað og eru
frásagnirnar cins og lieil sögu-
bók hver fyrir sig. V lhjáimur
S. Vilhjálmsson htíur valið frá-
sagnirnar, þýtt þær og endur-
sagt. Bók n er 176 blaðsíður að
stærð.
15. nóv. 1961 — Alþýðublað/ð