Alþýðublaðið - 15.11.1961, Síða 13
Haraldur Ólafsson: SVO KVEÐA SVÍAR
í NORÐURHLUTA Svíþjóð-
ar er vetur genginn í garð
og Lappar hafa rekið hrein-
dýr sín til byggða. Það snjó
ar djúpt á hinuni víðlendu
mörkum Norrbotten, en hér
suðurfrá komu fyrstu næt-
urfrost á Allra heilagra
messu.. Októbermánuður var
hinn hlýjasti, sem mælzt
hefur síðan reglubundnar
veðurathuganir hófust og
sólríkur með eindæmum.
Töldu Svíar það vera upp-
bót á hinu rigningarsama og
hráslagalega sumri, sem
þeir bjuggu við.
Veðrið er hér í landi eins
og í öðrum norðlægum lönd
um vinsælt og merkilegt
umræðuefni; en önnur mál
en óvenjulegt sólskin um
veturnætur, liafa þó vakið
meiri athygli á þessu við
burðaríka hausti. Dauði
Hammarskjölds, Markaðs-
bandalag, helsprengjur
Krústjovs, ný skattalöggjöf
og orðsending Sovétstjórn-
arinnar til Finna hafa verið
helztu umræðuefnin.
Erfiðasta og mikilvægasta
mál er nú liggur fyrir til af-
greiðslu af sænskum stjórn
málamönnum er afstaðan
til Evrópumarkaðsins. Eru
allir flokkar sammála um að
það verði að leysa skjótt og
þannig, að Svíar haldi hlut-
leysi sínu.
En lengra nær samstaðan
ekki. Jafnaðarmenn, með
alþýðusamtökin á bak við
sig, telja það stríða gegn
hlutleysi Svía og vilja þeirra
til þess að standa utan allra
bandalaga, að gerast full-
gildir meðlimir Markaðs-
bandalagsins, með öllum
þeim skyldum er því fylgja
á hinu pólitíska sviði. Cen-
terpartiet styður stjórnina
að þessu leyti. Hægri menn
og Folkcparti Bertil Ohlins
halda aftur á mótj fram, að
full aðild geti samrýmzt
hlutleysisstefnunni, — að
vísu með nokkrum tilslök-
unum um sérstöðu, og benda
á, að ajlar þjóðir er gerzt
hafi aðilar að Markaðs-
bandalaginu njóti ýmiskon-
ar sérréttinda og séu undan
þengnir mörgum hinna al-
mennu ákvæða Rómarsátt-
málans.
Erlander, forsætisráð-
herra, lagði mikla áherzlu á
það við nýlegar umræður
um þessi mál, að Svíar yrðu
á einhvern hátt að tengjast
Markaðsbandalaginu og hef
ur stjómin nú lagt fram
beiðni um „associeringu“
við Evrópuríkin. Þessi „að-
ild“ er hugsuð mjög lausleg,
og reynt verður að fá tryggt,
að Svíar dragist ekki inn í
pólitík Markaðsbandalags-
ríkjanna.
Umræðurnar hafa leitt í
ljós, hve sænskir stjórn-
málaflokkar eru sammála
um flest höfuðatriði, en
geta deilt harkalega um
ýmis framkvæmdaatriði.
Nýlega var lagt fram á
þingi frumvarp um tvö pró-
cent hækkun á söluskatti, 5
aura hækkun á benzíni, —
en bornar hafa verið til baka
allar flugufregnir um vænt-
anlega stórhækkun á víni og
tóbaki. Til að mæta þessum
nýju hækkunum lækkar
tekjuskattur um einn mill-
jarð sænskra króna, barns-
meðlög hækka, sem og elli
lífeyrir. Ýmsar lagfæringar
vcrða gerðar á tryggingum
og sjúkraaðstoð, Stjórnar-
andstaðan hefur lítið haft
við þessar ráðstafanir að at-
huga og lætur nægja að saka
Erlander um „bílahatur.“
Þá er búizt við, að næstu
daga verði lagt fram frum-
varp um undirbúning að því
að tekin verði upp hægri
stefna við akstur í Svíþjóð.
Er nú lokið undirbúnings-
rannsókn á kostnaði við
breytinguna og er talið að
hann verði um 340 milljón
sænskar krónur. Á að vera
liægt að Ijúka verkinu
1905.
Mitt í hinar háalvarlegu
deilur um söluskatt og Mark
aðsbandalag, og beint í kjöl
far hrikalegra sprengjutil-
rauna við bæjardyr Norður
landabiia, sem orðsending
Krústjovs til Finna. Orð-
sendingin virðist hafa haft
mciri áhrif á öðrum Norður-
löndum en Finnlandi, og
ekki hvað sízt gramdist Sví-
um aðdróttanir hins hnött-
ótta og glaðbeitta eftir-
manns skóarasonarins í
Kreml um andvaraleysi og
samábyrgð að stríðsundir-
búningi V—Þjóðverja. Þeir
sáu allt í einu hverjum
augum Sovétstjórnin lítur
hlutleysi þeirra og vilja til
að standa utan allra hern-
aðar og stjórnmálabanda-
bandalaga. Vopnasala Svía
til V—Þýzkalands hefur
stórminnkað undanfarin ár
og er hverfandi lítil á yfir-
standandi ári, Og Svíar
spyrja : Er yfirleitt mögu-
legt að vera eins hlutlaus og
Krústjov vill?
Ræða Kekkonens Finn-
landsforseta til þjóðarinnar
á sunnudagskvöld hefur
einnig farið í taugarnar á
Svíum. Hann hélt ræðuna
í útvarp og sjónvarp og
verði mestum tíma sínum í
áróður og árásir á pólitíska
andstæðinga í Finnlandi. Er
þetta skiljanlegt, ef haft er
í huga að forsetakosningar
eiga að fara fram í landinu
cftir áramótin og því eðli-
legt að forsetinn notaði
þetta einstæða tækifæri til
þess að leggja áherzlu á, að
hann hefði stýrt Finnlandi
glæsilega gegnum brotsjói
hlutleysisins og nyti nú
virðingar bæði í austri og í
vestri. Þá minntist hann
lítillega á orðsendingu
Rússa og kvað hana á eng-
an hátt uggvekjandi, held-
ur aðeins vitni um hið
hættulega ástand í heimin-
um í dag. Vísaði Kekkonen
algerlega á bug tilboðum
stjórnarandstöðunnar um
einingu og sátt vegna í-
skyggilegs ástand og talaði
háðulegfi um „póljliiískai
dilettanta, sem alltaf hefðu
gefizt upp við að fara með
utanríkismál Finnlands.“
Ræða Finnlandsforseta
var kannski fyrst og fremst
kosningaræða, en hún gerði
ekkert til að eyða óró Svía
vegna ásakana Rússa, enda
þótt hún ef til vill friðaði
Finna. Þá spyrja öll sænsku
hlöðin: Getur það samrýmzt
hlutleysi Finna, að forseti
þeirra gagnrýni endurher-
væðingu V—Þýzkalands,
jafnvel þótt hann telji sam
tímis, að NATO sé stofnað í
varnarskyni?
Allt þetta hefur valdið
Svíum óróleika og kvíða,
enda telja þeir aðdróttanir
Sovétstjórnarinnar um, að
V—Þjóðverjar hyggist efna
til ófriðar við Eystrasalt úr
lausu lofti gripnar, og ótt-
ast að tilgangur Krústjovs
sé að lierða taugasíríðið
gegn Norðurlöndum. Hitt er
annað mál, að hér loka
menn ekki augunum fyrir
uppgangi hins óliuggulega
ný-nazisma í V—Þýzka
landi, — og með gamlan
nazista í stóli utanríkisráð-
herra, er ólíklegt að Bonn
stjórnin vinnj marga nýja
vini á Norðurlöndum
H. Ó.
BINGÓ í LIDÓ
ANNAÐ KVÖLD
Margir glæsilegir vinningar
rð í sima 19570
FUJ í Reykjavík
Norrænn við-
skiptafundur
YFIRMENN viðskiptadeilda
utanríkisráðuneytanna í Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og í
Svíþjóð, ásamt ráðuneytisstjóra
íslenzka viðskiptamálaráðu-
neyt'sins, átlu með sér fund í
Oslo dagana 9.—10 nóv.
Eins og á fyrri fundum voru
rædd ýms viðskiptaleg mál-
efni, sem þýðingu hafa fyrir
Norðurlönd. Sérstaklega voru
rædd vandamál, sem snerta
markaðsbandalögin í Evrópu.
og-afstöðu Norðurlandanna til
þeirra. Ennfremur var skipzfc
á skoðunum í sambandi við
væntanlega ráðherrafundi í
alþjóðlegum . samvinnustofn-
unum um efnahagsmál og
rædd sameiginleg hagsmuna-
mál á sviði samgangna á sjó.
Næsti fundur sama eðlis
verður haldinn í Slokkhólmi
um miðjan febrúar næstk.
(Utanríkisráðuneytið).
húseigendur húsbyggjendur
sparið tima og erfjði í leit
að heppilegum byggingarefnum
upplýsingar og sýnishorn frá
helztu fyrirtækjum landsms
opið alla virka daga kl. 1— 6
. laugardaga ' kl. 10—12
miðvikudagskvöld kl. 8—10
oyggingaþjónusta a.í.
laugavegi 18a s: 24344
Alþýðublað/ð — 15. nóv. 1961