Lögrétta - 01.07.1933, Side 3

Lögrétta - 01.07.1933, Side 3
101 LÖGRJETTA 102 liafa sjerfræðingar komist svo að orði, að þrepin, eða stigarnir, sem þarna hafa fund- ist muni verða talin meðal mestu listaverka, sem fundist hafi frá fomöld. Háar og gildar súlur hafa einnig verið í þessum höllum, sumar um 65 fet (ensk) á hæð. Þær virðast hafa hrunið og brotnað við landskjálfta, sem einhverntíma í fornöld hefur lagt í auðn mikið af höllunum. Myndimar á stigunum hafa eftirtektarvert menningarsögulegt gildi. Ein myndin sýnir t. d. skrúðgöngu skatt- þegna frá tuttugu og átta þjóðum, sem koma til hins mikla Persakonungs. Þessar rústir í Persepolis eru augljós vott- ui' um völd og auð Persa og Persakonunga á öldunum áður en þeim lenti saman við Grikki. En Persepolis eyddist í eldi í styrj- öldum Alexanders mikla. Plutark segir að Alexander hafi látið brenna borgina og hef- ur hún síðan verið grafin í leirlagi, sem orðið er um sjö metrar, nú, þegar menn hafa aftur fundið leifar hinnar fornu frægðar. 'Hjónabandsrannsóknír Amerískur prófessor, dr. Cottrell í Chi- cago, hefur tekið sjer fyrir hendur, að rann- saka það hvernig eða hvers vegna hjóna- bönd verði hamingjusöm eða óhamingju- söm. Hann hefur lagt árangur rannsókna sinna og áætlanir um framhald þeirra fyrir fund þjóðfjelagsfi'æðinga, því að hann seg- ir, að hjónaböndin og gengi þeirra sje eitt- hvert hið alvarlegasta og merkasta þjóðfje- lagsmál. Cottrell er nú að láta rannsaka á skipulagsbundinn hátt 6000 amerísk hjóna- bönd, en hefur áður rannsakað rúmlega 500 þeirra. Hann hefur stundað þessar rann- sóknir í hálft þriðja ár, eða þar um bil og hjónin, sem athuguð hafa verið, eða gefið hafa skýrslur um hjónabönd sín, eru á aldr- inum 20—35 ára og sambúð þeirra hefur varið 2 til 6 ár. Dr. Cottrell hefur sent hjónum þessum ýmsar spurningar, sem hann telur að marka megi af gengi hjóna- bandsins og hjónin svarað þessu, en hann flokkai' svo og metur svörin og þykist þann- ig hafa íundið fjörutíu atriði, sem mestu ráði um það, hvernig hjónabönd takist. Hann hefur þá trú, að slíkar rannsóknir hafi ekki einungis fræðigildi fyrir þjóðfje- lagsfræðinga heldur megi með tíð og tíma hafa gagn af þeim til þess að ákvéða, hvort fólk eigi að giftast eða ekki; úr rann- sóknunum megi fá reynslu, eða draga af þeim almennar ályktanir, sem nota megi til þess að dæma um það hvort líklegt sje, að hjónaband verði hamingjusamt eða óham- ingjusamt. Nokkur atriði má nefna, sem dr. Cottrell telur, að ráði því hvernig hjónabönd fari. Ef faðirinn er á móti hjónabandi en móð- irin með því, sýnir reynslan oftast, að fað- irinn hefur rjett íyrir sjer. Líkurnar fyrir góðu hjónabandi eru meiri en ella, ef tengdaforeldrarnir eru ekki á lífi, og þó einkum ef móðir mannsins er ekki til að trufla sæluna. Þó segir prófessorinn líka, að hjónum, sem þyki, eða hafi þótt vænt um foreldra sína, þyki einnig venjulega vænt hvoru um annað, og ef báðir foreldrar kon- unnar eru á lífi og lifa í góðu hjónabandi, eykur það horfur þess, að hjónaband dótt- urinnar takist vel. En erfiðlegast horfir um þetta, ef móðir annars hjónanna er ekkja. Bræður og systur konunnar eiga einnig að minka líkurnar fyrir góðu hjónabandi henn- ar og einbirni eiga ekki að hafa eins mikla von um gott hjónaband og önnur börn, af því að einbirni verði venjulega kröfuhai'ð- ari og gikkslegri sjálf og meiri eftirlætis- böin en önnur í heimahúsum og því erfið- ara að gera þeim til hæfis í hjónabandi eftir á en hinum. Þá þykir prófessor Cottrell það hafa sýnt sig, að hjónabönd batni á því og fari bet- ur en ella, ef konan hafi einhver störf eða úhugamál utan heimilisins, en sje ekki alt- af bundin við heimilið eitt. Því betur ment- uð, sem hjónin eru hvort um sig, því meiri líkur eru fyrir góðu hjónabandi og einnig hefur góður efnahagur mikið að segja. Langar trúlofanir eru betri en stuttar til þess að hjónabandið hepnist vel. Flest hjón, sem giftast eftir að hafa einungis verið trúlofuð tæpt ár, urðu óhamingjusöm. Of langar trúlofanir eru ekki heldur góðar,

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.