Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 7

Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 7
109 LÖGRJETTA 110 ^íslensh mennín* Háttvirtu áheyrendur! Jeg vil fyrst geta þeirra breytinga, er verða á kenslu háskól- ans. Sæmundur prófessor Bjamhjeðinsson lætur nú fyrir aldurs sakir af kenslu í lyfja- f'ræði, en hana hefur hann kent í 35 ár. Hann hefur alla tíð notið trausts og virðing- ar stúdentanna sem góður og samvitsku- samur kennari og flyt jeg honum í nafni háskólans alúðarþakkir fyrir vel unnin störf. Prófessor Jón Hjaltalín Sigurðsson tekur fyrst um sinn við þessari kenslu. Bjarni Benediktsson hefur nýlega verið skip- aður prófessor í lögfræði. Nýr kennari bæt- ist við á þessu ári í læknisfræði, Lárus Ein- arsson, er mun kenna lífeðlisfræði. Býð jeg hann velkominn til starfa. Þá verður og hafin kensla í frönsku á þessu ári og ann- ast hana Msr. Boissin, er jeg sömuleiðis býð velkominn. Vænti jeg, að tungumálakensla sú, er nú er hafin, bæði í þýsku og frönsku, aukist á komandi árum. Loks vil jeg geta þess, að tveir menn hafa hlotið doktorsnafn- bót á síðasta ári fyrir vísindalegar ritgerð- ir, þeir Halldór Hansen í læknisfræði og Einar Óiafur Sveinsson í heimspeki. Háskóli vor hefur tekið undarlega litlum In.eytingum frá því að hann var Stofnaður. Senn líður að aldarfj órðungsafmæli hans, en í ár eru liðin 25 ár síðan lagakensla hófst hjer á landi. Gleður mig að sjá hjer við- staddan fyrsta lagakennara landsins, er einnig er höfundur háskólalaganna. Þó er eins og nú sjái bjarma af berti dögum. Haf- ist er nú handa á byggingu stúdentagarðs og mun hann verða fullbúinn næsta sumar. Fá þar vist um 40 stúdentar. Háskólinn sjálfur á enn ekki þak yfir höfuðið, en á síðasta Alþingi voru samin lög um stofnun inippdrættis, er voru undirrituð af konungi 19. júní 1933. Iláskólanum var með brjefi fjármálaráðherra 4. júlí veitt einkaleyfi til þess að starfrækja happdrætti þetta um 10 ára skeið. Hefur reglugerð um happdrætti háskóla íslands verið gefin út 26. septem- ber þ. á. og undirbúningur undir stofnun Rasða rebtors, dr. Æexanders 'jóhannessonar vtð setningu Hásbóians 7.'obtóber 1955. happdrættisins er hafinn. Þótt þessi óvana- lega leið til byggingar háskóla hafi verið valin, væntum vjer, að árangur þessarar starfsemi verði happadrjúgur. Þá hefur og á þessu ári verið ráðist í að reisa bygging- fyrir rannsóknastofu háskól- ans og verður þar komið fyrir áhöldum þeim, er Þjóðverjar gáfu íslendingum á Al- þingishátíðinni, en áhöld þau skulu notuð til rannsókna í þágu atvinnuveganna. Þá hafa á síðastliðnu ári áskotnast tveir sjóðir. Ann- ar er hinn svonefndi Kanadas j óður, að upphæð 25000 dollara, sem Kanadastjórn hefur gefið í tilefni alþingishátíðarinnar, og skal vöxtum þessa sjóðs varið handa ís- lenskum námsmönnum, kandidötum eða stúdentum, er stunda vilja nám við kanad- iska háskóla, einkum um þau efni, er lúta að rannsóknum fiskiveiða og landbúnaðar. Hinn sjóðurinn er gjöf heimfarar- nefndar Þjóðræknisfjelagsins, að upphæð nál. 15000 kr. og hefur háskóla- ráð látið semja frumvarp, skipulagsskrá, fyrir sjóðinn, er send hefur verið vestur til staðfestingar, en í þessum tillögum há- skólaráðs er gert ráð fyrir að verja % hluta vaxta sjóðsins til þess að efla andlegt samband milli enskumælandi þjóða og Is- lendinga og verja fje þessu til útgáfu rita, til námsstyrkja og til fyrirlestrahalds. Loks vil jeg geta þess, að Rockefellersjóður hefur gefið 1000 dollara til áhaldakaupa til rann- sókna í lífeðlisfræði. Vil jeg þessu næst fara nokkrum orðum um íslenska menning. Snorri Sturlu- son segir frá því í ritgerð sinni um skáld- skaparmál, að Æsir hafi orðið ósáttir við fólk það, er Vanir heita, en að þeir hafi lagt með sjer friðstefnu og sett grið á þá lund, að þeir gengu hvárirtveggju til eins kers og spýttu í hráka sína, en úr hrákan- um skópu þeir Kvasi, er var svo vitur, að enginn spurði hann neinna hluta, er hann eigi kunni úrlausn á. En dvergamir Fjalarr og Galarr drápu hann, en ljetu blóð hans

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.