Lögrétta - 01.07.1933, Síða 11

Lögrétta - 01.07.1933, Síða 11
117 LÖGRJETTA 118 r.vðjandi nýrrar stefnu í bókmentunum, b. e. rómantísku stefnunnar. Hann las mjöe: sögu og goðafræði Norðurlanda og sótti þangað efni í skáldrit sín og kvæði. Einnig samdi hann sagnarit og skrifaði um goða- fræði, málfræði og margt fleira. En eftir að trúarvakningin sigraði í huga hans, vildi hann láta skáldskap sinn og öll ritstörf lúta henni. Hann var óþreytandi starfsmaður og áhugamaður. Þegar trúmálaáhuginn vakn- aði hjá honum, ætlaði hann í fyrstu að hætta við skáldskapinn, segist hafa hengt hörpu sína yfir altari drottins og ætlað að láta hana hvílast þar. En drottinn hafi sjálfur tekið hana þaðan og rjett sjer hana aftur, þegar hann hefði vígt hana til hjón- ustu sinnar, og nú segist Grundtvig glaður og hress í anda taka við henni á ný og fara höndum um hina endurbættu strengi. List- ina út af fyrir sig vildi hann ekki framar dýrka; hún átti að ganga í þjónustu annars æðra málefnis. Þótt hann orti mikið alt fram til dauða síns, vildi hanh ekki kallast skáld í venjulegri merkingu. „En hann leiddi skáld- legan straum inn í hjóðlífið", segir H. Beg- trup, einn af þeim mönnum, sem um hann hafa skrifað nú; „hann vakti þrá eftir skáld- legum hugsjónum hjá hinum starfandi al- múga, sem gerði líf hans fjölbryttara og ríkara en áður. Hann gerði dönsku þjóðina að syngjandi þjóð með ímyndunarafli, sem varð henni hvöt til dáða“. — Nú hylla Han- ir hann sem þjóðvakningarmann og spá- mann og telja hann einn hinn mikilhæfasta og áhrifaríkasta mann, sem þjóð þeirra hef- ir átt. Borgbierg kenslumálaráðherra sagði m. a. í ræðu 8. september: „Það. sem undraverð- ast er hjá Grundtvig. er hið ókúganlega og ódrepandi lífsafl hans. Hann varð 89 ára gamall, án hess að iðka líkamsæfingar, og enda þótt hann reykti mikið. Hann var fá- tækur, varð þrisvar sinnum geðveikur, var hlífðarlaus við sjálfan sig, samdi hlaða af bókum og kvæðum. Hann vakti og vann nótt cftir nótt, og ætti hann bágt með að halda sjer vakandi við vinnuna, rak hann fæt- urna niður í fötu með köldu vatni. Hann var þrígiftur og átti börn með öllum konum sínum. Síðast kvæntist hann 75 ára gamall, og yngsta barn hans fæddist þegar hann var 77 ára. Menn hæddu hann fyrir þetta. En jeg sje ekki betur en að það sje eitt merkið um hið óvenjulega lífsafl mannsins. Þegar hann reis upp í þinginu gegn grund- vallarlagabreytingunni 1866, var hann 83 ára. Það er frelsisivinurinn Grundtvig, sem við heiðrum á þessum degi, hinn voldugi tals- maður andlegs frelsis, framfaramaðurinn, ljósberinn. Hann varð því bjartsýnni, sem hann eltist meir. „Enn boða jeg þá kenn- ingu, að menn skuli líta á lífið með bjart- sýni og kjarki“, skrifar hann í ritgerð 85 ára gamall. Við höfðum þá mist Suður-Jót- land og hann hafði verið geðveikur í þriðja sinn. Hans stóra hugsjón um alþýðuháskólana varð í framkvæmdinni nokkuð á annan hátt en hann hafði hugsað sjer. En hún hefur nú brotið sjer braut vítt um lönd. Skóla- hugsjón Grundtvigs hefur nú jafnvel fund- ið jarðveg og fest rætur austur í Japan. í kirkjumálum barðist hann fyrir frelsi og víðsýni. Hugsjón hans var fríkirkja. En þótt þjóðkirkjan hjeldist, vildi hann hafa þar kenningafrelsi. Hann hjelt með borgara- legu hjónabandi og borgaralegri fermingu. í stjórnmálum var hann fyrst einvaldssinni, en varð síðan eindreginn lýðstjórnarmaður og hjelt fram sem allra víðtækustum kosn- ingarjetti. I söngvum sínum boðaði hann: „frelsi, jafnrjetti og bræðralag“. Einn af þeim, sem um Grundtvig skrifa nú, rithöfundurinn J. Bukdahl, lýsir honum mest sem boðbera rómantísku stefnunnar og brautryðjanda hennar í dönsku þjóðlífi og trúmálum. Hann var lærisveinn hinna stóru þýsku skálda og heimspekinga og lífs- skoðun hans myndaðist undir áhrifum frá þeim. Hann opnaði á sinni tíð dymar fyrir andlegum straumum utan að inn í danskt þjóðlíf, á líkan hátt og Georg Brandes síð- ar. „Sá Grundtvig, sem við nú hyllum, er umbótamaðurinn, sem altaf, í riti og ræðu, í þingi og í prjedikunarstól, barðist fyrir umbótum á þjóðlífinu. Hann var þjóðlegur, og hann var jafnaðarmaður, alstaðar var hann frelsisins talsmaður, í skólamálum, í kirkjumálum og í almennum stjómmálum.

x

Lögrétta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.