Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 12

Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 12
119 LÖGRJETTA 120 ■Háskólavígsla í /Trósum, Háskólinn í Árósum(Aarhus)í Danmörku, sem starfað hefur nú þegar í nokkur ár, var hátíðlega vígður 11. september þ. á. og var þar þá fjölmenn samkoma með mikilli við- höfn. Konungshjónin og krónprinsinn voru þar viðstödd, Stauning forsætisráðherra, Borgbjerg kenslumálaráðherra og margt fleira af helstu mönnum Dana. Fulltrúum frá öllum háskólum Norðurlanda var boðið þangað, þar á meðal rektor íslenska háskól- ans, dr. Alexander Jóhannessyni. Það er gamalt áhugamál Jóta, að eignast háskóla, fyrst fram komið þegar á 17. öld, á stjómarárum Friðriks III. Hann gaf út skjal, sem fyrirskipaði að háskóli skyldi reistur í Vjebjörgum (Viborg) og var þetta skjal lengi geymt eins og annar helgidómur þar í dómkirkj unni, en hún brann 1726 og með henni skjalið, án þess að hinni konpng- legu fyrirskipun væri fullnægt. Svo var hug- myndin vakin upp að nýju á síðustu áratug- um 19. aldar, en þá voru Árósar að verða Og hann ljet alstaðar mikið til sín taka. Um hann mátti á sínum tíma segja eins og sagt var um Björnson í Noregi, að hann væri sá stóri smiðjubelgur, sem hjeldi eldin- um lifandi í öllum stóm“. Matthías Jochumsson hefur kveðið löng og snjöll minningarljóð um Grundtvig, sem byrja svo: „Norðurlanda Nornagesti norræn tunga vígi brag; hárum þul og höfuðpresti helga vil jeg rammaslag". Síðar í kvæðinu segir: „Fáir greppar fyr og síðar íundið hafa dýpri tök, iáir betur táknið tíðar túlkað gegnum kristin rök; fáir hafa liugarsjónum hærra lyft við tímans sjá, íáir náð svo tali’ og tónum tungurótum þjóðar frá“. Þ. G. höfuðstaður Jótlands. Síðan hefur bærinn tekið miklum framförum og er nú næst- stærsti bær Danmerkur. Lengi var um það rætt, hver afstaða þessa fyrirhugaða jótska háskóla ætti að verða til háskólans í Kaup- mannahöfn, og komu margar tillögur fram um það mál. Nefnd, sem hafði það til at- hugunar, sat á rökstólum frá 1919 til 1925 eg tillögur hennar urðu, að stofna skyldi jótskan háskóla í Árósum. En úr fram- kvæmdum varð þó ekkert að svo stöddu, því landstjórnin treysti sjer þá ekki til þess, að beitast fyrir málinu. En 1928 tóku íbúar Ár- ósa málið í sínar hendur og stofnuðu vísi til háskólans á eigin kostnað. Þar fór fram kensla í ýmsum námsgreinum með sama sniði og tíðkanlegt er við fullkomna háskóla, svo sem í heimspeki, norrænum málum og bókmentum, erlendum málum, bæði eldri og yngri, og fleiri vísindagreinum. Og nú hefur verið reist þar stór og myndarleg háskóla- bvgging, sem vígð var, eins og fyr segir, 11. september. Stúdentagarður hefur einnig ver- ið reistur þar, og veitir dr. K. Kortsen, sem fyrir nokkrum árum var kennari hjer við há- skólann, stúdentagarðinum forstöðu. Ýmsar stórar gjafir hefur Árósaháskólinn fengið, þar á meðal á vígsludeginum 20 þús. kr. frá Karlsbergssjóðnum til þess að fullgera skemtigarð við háskólann. Rektor Kaupmannahafnarháskóla, dr. Aage Friis, talaði við vígsluathöfnina um samband jótska háskólans við háskólann í Kaupmannahöfn, hrósaði Árósabúum fyrir framtakssemi þeirra og flutti nýja háskól- anum hamingjuóskir. Svo voru honum flutt- ar hamingjuóskir frá háskólum Norðurlanda, fyrst frá háskóla íslands, og flutti rektor hans, dr. Alexander Jóhannesson, svohljóð- andi ávarp, sem hann las fyrst á íslensku, en þýddi síðan á dönsku: „Háskóli íslands samfagnar Árósaháskóla á vígsludegi háskólabyggingarinnar 11. sept. 1933. Háskóli íslands fagnar því, að af aukinni menningu og velmegun í Danmörku hefur leitt stofnun nýs háskóla á Jótlandi, þar sem bændamenning Dana á sjer dýpstar ræt- ur, þar sem margir örlagaþræðir þjóðarinn- ar hafa verið ofnir og þar sem ættjarðarást

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.