Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 21

Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 21
137 138 L ö G R dönsk lög- og náði prófi í þeim vorið 1854 með góðum vitnisburði. Var honum þá veitt Barðástrandasýsla. en Brynjólfur kaupmað- ur Bogason hafði sjeð um embættið fyrir hann meðan hann var ytra. 29. ágúst sama sumarið giftust þau Jón og Kristín og stóð brúðkaup þeirra í Flatey. Það var fjöl- ment og haldið með mikilli rausn. Voru þar meðal annara flestir höfðingjar Breiðafjarð- ar og sátu viku í gildinu sumir. „Var þar stundum drukkið fast“, segir Jón í brjefi til Gísla; „datt mjer þá við og við í hug, að mikill gleðiauki hefði það verið, að hafa þig og svo sem tvo eða þrjá af bræðrunum í Höfn nærstadda". Eftir að Jón var kvæntur og orðinn sýslu- maður, voru þau hjónin í Flatey til vors 1855, en fluttust þá að Haga á Barðaströnd og bjuggu þar til vors 1862, en árið áður hafði Jón fengið veitingu fyrir Borgarfjarð- arsýslu og fluttist nú þangað og settist að á Leirá. Þar bjuggu þau hjónin síðan þar til Jón andaðist 8. marts 1868, á 49. aldursári. Á þeim árum, sem Jón sat í embætti, ger- ist ekki margt sögulegt í lífi hans. Hann stundaði embættisstörfin og hafði öðru hvoru nokkur afskifti af almennum málum. Kvæði eftir hann birtust öðru hvoru í blöð- unum, einkum „Þjóðólfi“ og ,,Islendingi“. Síðasta árið, sem hann var í Flatey, átti hann þátt í ritstjórn tímaritsins „Gests Vestfirðings“, og eftir að hann kom að Leirá var hann um tíma, 1864—65, einn af útgefendum blaðsins „íslendings“. I fjelagi við þá Gísla Magnússon kennara og Egil Jónsson bókbindara gaf hann „Snót“ út í annað sinn 1865, og „Pilt og stúlku“ gaf bann út í annað sinn 1867 og bætti þá inn í söguna nokkrum köflum. „Veiðiförin", gamanríma, sem tekin er inn í Ljóðasafn hans, kom út 1865, sjerprentuð úr „íslend- ingi“. Sumarið 1864 átti Jón sæti á Þingvalla- fundi og tók mikinn þátt í fundarstörfum. Hann bar þá fram tillögu um skýlisbygg- ingu á þingvöllum og var, ásamt Benedikt sýslumanni Sveinssyni og Halldóri kennara Friðrikss.vni, kosinn í nefnd til þess að koma því máli áleiðis. Safnaðist nokkurt fje í E T T A þessu skyni, en úr framkvæmdum varð ekki fyr en 34 árum síðar, og þá fyrir forgöngu Benedikts. Jón var og á þessum fundi kos- inn í nefnd, sem átti að hafa forgöngu í útrýmingu fjárkláðans, sem þá var eitt hið mesta vandræðamál hjer á landi. Jón fylgdi fram almennum niðurskurði og var þar í andstöðu við stjómina og Jón Sigurðsson forseta. Með honum voru í þessari nefnd Benedikt Sveinsson og Jón Guðmundsson ritstjóri og með þeim fjórir bændur. En er nefndin hafði starfað um hríð, bannaði stiftamtmaður Jóni Thoroddsen að eiga þátt í þeim störfum, og segir Jón Sigurðsson, að eftir það hafi lítið orðið úr aðgerðum nefndarinnar. Það verk Jóns frá þessum síðari hluta æfiára hans, sem lengst verður munað, er samning skáldsögunnar „Maður og kona“. Það má sjá af brjefum hans til Gísla Bryn- jólfssonar, að hann hefur þegar á fyrstu ár- um sínum í Flatey verið farinn að hugsa um að skrifa nýja skáldsögu. Hann segist hafa þar aðgang að bókum og handrita- safni Brynjólfs kaupmanns Bogasonar Bene- diktsen, sem sje auðugt að fróðleik, og get- ur þess, að þá sje kominn til Flateyjar skemtilegur maður, fróður og feykilega rík- ur af alls konar sagnasöfnum, en það er Gísli Konráðsson, og hafi hann m. a. sam- ið nútíðarsögu um Húnavatnssýslu, sem sje afar falleg og fróðleg, og æfisögur ýmsra, en í þeim mörgum sje ágætt efni, ef til væri maður, sem kynni vel með að fara og semja úr þjóðsögur líkar þeim, sem Scott hafi gert. En embættisannir, búskaparum- byggja og landsmálaafskifti hafa eftir þetta mjög tekið upp tíma hans, svo að ritstörfin hafa orðið að sitja á hakanum, þótt það við- fahgsefni hafi án efa verið honum kærast. Það er sagt, að hann hafi með aldrinum gerst nokkuð drykkfeldur, og síðustu árin á Leirá segir Jón Sigurðsson að heilsa hans hafi verið farin, svo að hann hafi ekki get- að unnið lengur með fullu fjöri, þótt enn væri hann, eftir því sem kallað er, á besta aldri, nokkuð innan við fimtugt. Synir Jóns Thoroddsen urðu merkir menn, og koma mjög við sögu sinna tíma, eins og kunnugt er.

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.