Lögrétta - 01.07.1933, Side 23

Lögrétta - 01.07.1933, Side 23
141 LÖGRJE TTA 142 rjetting öll sömuleiðis, svo að þau standa fátæklegum sveitabæjum ílenskum litlu eða engu framar í því efni; nema að hreinlæti er þar miklu meira. 1 neðri hæð hússins, sem oft er að einhverju leyti grafin í jörð niður, er mjólkurkjallarinn svonefndi, þar er mjólkin, smjörið og ostarnir geymdir. Stund- um eru líka skepnur hafðar í þessari hæð hússins, en það er miklu oftar að penings- hús og hlöður er sjerskilið. 1 Alpadölunum eru iðulega grjótgarðar eða timburgirðingar umhverfis graslendi það, sem liggur að þorpunum. Þetta eru tún þeirra fjallabændanna, þarna er kúnum beitt fyrst þegar þær koma úr fjósi á vor- in og síðast á haustin, áður en innistaðan byrjar, en á sumrin er þetta slegið. Beitiland liggur hátt upp um hlíðar, eink- um sólarmegin og það á sjer ekki ósjaldan stað að bændabýli eða jafnvel heil þorp rísa hátt uppi í fjallshlíðunum (mig minnir að hæsta svissneska þorpið liggi í 2300 metra hæð yfir sjó). Það er allmikill munur á gróðri í hlíðum sem liggja sólarmegin og þeim, sem liggja í skugga; þannig hefur því verið veitt eftirtekt að knoppar beyki- trjánna koma viku fyr í ljós sunnan í hlíð- um, enda ná skógarnir þar miklu hærra upp í fjöllin. Það sem eftirtektarverðast er, er hve kornyrkja er mikið stunduð uppi í hálend- inu. En það er flutningskostnaður á korn- inu, sem orsakar það, að bændur gera sitt ítrasta til að lifa sem mest á sínu og rækta korn sitt sjálfir svo framarlega sem nokkr- ir möguleikar eru fyrir hendi. Sem dæmi mætti nefna, að í Findelen í Wallis eru ný- akrar í 2100 metra hæð yfir sjó, eða nærri sömu hæð og tindur Öræfajökuls. Hveiti er ræktað í 1650 metra hæð og sömuleiðis bygg og hafrar. Þar sem akuryrkja er stunduð inn til dala, er það venjulega niður í dalbotninum en örsjaldan upp um hlíðarnar. Oftast er ekki nema örlítill hluti lands þarna í hálendinu, sem er fallinn til akuryrkju og þegar að heil þorp verða að skifta þessum gróður- reitum á milli sín, þá eru ekki nema ör- smáar spildur, sem falla í hlut hvers bónda. Og þær eru víða svo litlar að plógi verður naumast eða alls ekki komið við, og bænd- urnir notast þá við gamla lagið og stinga akrana sína upp með skóflu. Víða við húsin eru grindur, þar sem kornöxin eru hengd upp og þurkuð. Því ofar sem dregur í fjöllin, hverfur hið ræktaða land smám saman, skógurinn nær hærra upp, en þegar hann þrýtur, tekur beitilandið við og það teygist víða upp und- ir snjólínuna. Hjer er það, sem hin eigin- legu sel eru, og það eru þau, sem setja svo sj erkennilegan svip á svissneskt þjóðlíf og svissneskan anda. Búskapur Alpabóndans skiftist í þrent: vetrarbúskap, vorsel og sumarsel, og hann á þrjú heimilí yfir árið, sem hann verður að flytja á milli eftir árstíðunum. Á vet- urna býr hann á aðalheimili sínu, oftast niður í dalbotni og þá gefur hann skepnun- um að öllu leyti inni, nema ofurlítinn tíma fyrst á vorin á meðan harm beitir túnin og eins síðustu beitardagana á haustin. Þegar grösin grænka hærra uppi flytur bóndinn með hjörð sína upp í vorselið. Þama dvelur hann maímánuð og frameftir júnímánuði og gefur skepnum sínum oftast á næturnar en beitir þeim á daginn. Þarna hefur hann pen- ingshús og hlöður ásamt kofa yfir sjálfan sig og fólk sitt, og þarna heyjar hann á sumrin. f kring um vorselin eru aðalengj- arnar, það eru snarbrattar valllendisbrekk- ur vaxnar þjettu kjarnmiklu smágresi. Þær eru svo brattar, að þær verða ekki slegnar með vjelum, verður Svisslendingurinn því að vera eins gamaldags í vinnubrögðum sínum eins og íslendingar, og slá með orfi og og raka með hrífu. í fyrsta skifti sem jeg sá Svisslendinga slá, gat jeg ekki stilt mig um að brosa, því svo kynlega kom mjer sláttuaðferð þeirra fyrir sjónir. Það voru gömul hjón, bæði komin um eða yfir sjö- tugt, tvær dætur þeirra, sonur og vinnu- maður og slógu þrælaslátt. En þar sem orf- in eru sjerstaklega stutt, efri hællinn er á enda orfsins, þá verður sláttufólkið að beygja sig, næstum því 1 vinkil. En það, sem mjer þótti broslegt við þetta var leðuról, sem hver sláttumaður eða kona girti um sig miðja og neðan úr ólinni hjekk nautshorn fylt vatni, sem var til þess ætlað að geyma

x

Lögrétta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.