Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 24

Lögrétta - 01.07.1933, Qupperneq 24
143 LÖGRJETTA 144 brýnið í. Lafði homið niður á sitjandann, svo það var engu líkara en fólkið væri annaðhvort með rófu eða það væri hymt á þessum stað. Ljáimir, sem eru einbekkj- ungar, eru óhemju langir og breiðir og tals- vert bognir, skáramir eru breiðir og ljáförin í góðu meðallagi, en þó ekki samsvarandi breið. Hrífurnar eru miklu verklegri en á íslandi, einkum tindarnir og hausinn. Tind- arnir standa ekki beint neðan úr hausnum eins og við eigum að venjast, heldur liggja þeir skáhalt innundir skaftið; þeir eru næst- um fingurgildir, alllangir og sitja þjett í hausnum. Svissar flekkja eins og við, en þeir rifja ekki eða snúa heldur róta í hey- inu með hrífuskaftinu og þurka á þann hátt. Þegar þeir sæta, reka þeir langa spýtu, með mörgum smáálmum í ýmsar áttir, nið- ur í jörðina og líkist hún öllu mest jóla- trje í laginu. Uppmeð þessari spýtu setja þeir svo heyið, en álmur spýtunnar gera það að verkum, að heyið legst ekki mjög þjett saman og það verður altaf holt í miðjunni. Þegar Svisslendingar láta heyin sín í hlöð- ur, þá binda þeir ekki í reipi nje setja á klakk, þá aðferð hafa þeir ábyggilega aldrei þekt, nei, þeir láta he.við í stóra klúta eða öllu fremur segldúka, sem þeir hnýta sam- an á hornunum, láta þá á bakið og bera svo heim í hlöðu, stundum óraveg. Sagt er að slíkar byrðar vegi oft að tveim hundruðum punda, og þegar þeir þurfa að ganga upp snarbrattar brekkur og síðan upp háa hlöðu- stiga, altaf með þennan bagga á bakinu, þá held jeg, sannast að segja, að þeir sjeu alls ekki öfundsverðir. Konur ganga að siætti jafnt sem karlar og' það eins þótt við aldur sjeu, en í stað þess hjálpa karlmenn- irnir við raksturinn. I Suður-Sviss vinna konur sumstaðar einar að öllu, því menn- irnir fara til annara landa að vinna sjer inn peninga, og þeim finst að konur sínar sjeu ekki of góðar til að sjá fyrir sjer sjálfar. Nokkrir bændur hafa vorselin sín ekki á neinum ákveðnum stað, heldur byggja þeir sjer marga kofa hingað og þangað uppi um hlíðamar og flytja svo kofa úr kofa upp á við, eftir því sem snjórinn þiðnar og grösin vaxa. En hærra uppi, þar sem ekki er annar gróður en beitiland, þar eru hin eiginlegu sel, og þar hafa bændur nautgripi, kindur, geitur og svín eins lengi og kostur er. I hinum fullkomnari seljum eru allgóðar íbúð- ir, vönduð peningshús, skálar fyrir mjólk og mjólkurafurðir og jafnvel hlöður, því það getur komið fyrir að það sje heyjað þarna uppi. Er graslendið þá oftast á klettasill- um eða það eru toppar inni í jökulkima, sem engar skepnur komast að til að bíta, nema þá helst gemsur. Hættan við að kom- ast þarna upp, og þó sjerstaklega við hey- flutningana burtu þaðan, er geysimikil. En Svisslendingar eru orðnir vanir þessu, þeir láta heyið í dúkinn, láta byrðina síðan á bak sjer og labba ofan einstigu, sem eru svo glæfralegir, að flestum óvönum myndi óa við að ganga þar lausir. Þarna uppi er oft blómskrúð hið fegursta, sem gefur að líta um gjörvalla Alpana og þessir blettir eru því talsvert eftirsóttir af grasafræðing- um þeim, sem þora þangað upp. Sumstaðar eru þessar háfjallaengjar al- menningseign, og á ákveðnum degi verða allir að byrja slátt þar, sem á annað borð vilja afla sjer heyja. En sá siður fylgir, að sá er fyrst kemur upp getur helgað sjer það svæði, sem i kringum hann er, og verða þeir, sem síðar koma að hverfa burtu og leita nýrra engja. Þessi venja hefur orðið til þess að duglegir og hraustir karlmenn fara kvöldið fyrir þennan tiltekna dag og sofa uppi án þess að hugsa um frost eða nætur- kulda, en með þessu móti geta þeir valið úr bestu blettina. Annarstaðar eru til blett- ir niðri í miðju beitilandinu, sem eru slegn- ir og er þá venjulega girt í kringum þá, svo þeir bítist ekki. Þessar heyannir uppi í sumarselinu ganga undir nafninu villi- sláttur, og þær hafa það gott í för með sjer, að fjenaðurinn getur haldist lengur í selinu en ella, því annars yrði að reka hann niður strax við fyrstu snjóa. En það snjó- ar nokkuð fljótt þarna og í seljunum, sem allra hæst lig'gja, helst fjenaðurinn ekki við nema örfáa daga. I óvandaðri seljum eru íbúðirnar aðeins opnir skálar, kaldir og rakir, og ef rignir, verður maður að breiða regnhlífina yfir sig

x

Lögrétta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.