Lögrétta - 01.07.1933, Page 28

Lögrétta - 01.07.1933, Page 28
151 152 LÖGRiJETTA fjölbragðaglímu. Við íslendingar þekkjum þar flesta hælkrókana okkar, leggjarbragð, hnjehnykk, mjaðmarhnykk og klofbragð. llinsvegar mega Svisslendingar nota aðra hendina eftir vild, en hinni verða þeir altaf að halda í beltið. Það er talið fall, þegar annar glímumanna liggur með báðar herðar við jörðu. Svissneska glíman er óneitanlega ljótari en sú íslenska, og það glíma hana tæplega nema sterkir menn og umfram alt brjóst- góðir. Þar sem glímumótin halda uppruna sínum enn þann dag í dag, og það gera þau víða inn til dalanna, þá byrja þau á guðsþjón- ustu. Presturinn byggir sjer altari, ekki í kirkju, heldur í stærsta fjósinu, sem til er uppi í seljunum og þar fer guðsþjónustan fram. Að henni lokinni er matast en síðan hefst glíman. Fer úrslitaglíman jafnan fram milli tveggja bestu glímumannanna og verða þeir að glíma þrjár glímur saman. Sá er íellir andstæðing sinn tvisvar, sigrar. Verð- launin er blómum og vöndum skrýdd kind, en sigurvegarinn fær ekki að taka við henpi f.yr en hann hefur spurt í heyranda hljóði hvort nokkur vilji freista þess, að vinna af sjer verðlaunin. í sambandi við sum þessara glímumóta er steinkast og er frægastur hinn svokallaði Unspunnersteinn, sem vegur 184 pund, er honum kastað á hverju allsherjarglímumóti Svisslendinga. Það er ef til vill ekki hægt að telja skot- fimi þjóðaríþrótt neinnar sjerstakrar þjóð- ar, en óbeinlínis er hún samt þjóðarleikur eða þjóðaríþrótt Svisslendinga, ekki af því að þeir bera oft sigur af hólmi á millilanda- og alþjóðaskotmótum, heldur ekki vegna herskyldunnar sem hvílir á hverjum karl- manni ríkisins, heldur vegna gemsuskytt- anna svissnesku, sem stunda íþrótt sína af svo frábærri djörfung og útheldni að undr- um sætir. Gemsuskyttan fer á fætur um miðja nótt til þess að vera komin á undan selhjörðun- um upp í efstu selhagana, en þar er fyrsta gemsuvonin. Strax er skotmaðurinn sjer gemsu, reynir hann að komast í skotfæri við hana, án þess að hún sjái til ferða hans, og hún má heldur ekki vera í vindstöðu við hann, því gemsumar eru lyktnæmar mjög. Verður skyttan iðulega að klöngrast eftir hættuleg- um gjám eða klifra í björgum til að ná tak- marki sínu. Það er sagt að skyttunni nægi að greina horn gemsunnar hvort frá Öðru til þess að skjóta og að það sje klaufaskapur að hitta ekki úr því. Þegar gemsan er dauð, tekur skyttan innýflin burtu, bindur svo fætur og horn gemsunnar saman og setur yfir höfuð s jer, þannig, að fæturnir liggja samanhnýttir yfir enni skyttunnar og þann- ig ber hún gemsuna yfir hamra og hengjur heim til sín. Miklu oftar tekst gemsunni að verða vör við hættuna í tíma og leggur þá sem örskot á flótta yfir urðir, klungur, gjár og hvað sem fyrir er, nema sjaldan á jökla. Sjerstak- lega er erfitt fyrir skyttuna að komast í skotfæri ef gemsurnar eru margar saman, því þá heldur altaf ein þeirra vörð á hæsta stallinum eða hæsta hnúknum á meðan hin- ar bíta. Verði hún vör hættu gefur hún frá sjer einkennilegt hljóð, sem kemur hinum gemsunum altaf til að gæta að sjer; og þeg- ar þær hafa fullvissað sig um hættuna, tek- ur duglegasti hafurinn forystuna en hinar hlaupa í þjettum hóp á eftir. Þarf ekki að hugsa sjer að þær staðnæmist svo brátt úr því. En skyttunni fellur ekki allur ketill í eld við þetta; nú er það hún sem sækir í sig nýtt óstöðvandi afl og lætur enga hættu aftra sjer meir. Veiðihugur og veiðiheiður skyttunnar er það eina sem hún veit af, það hefur gagntekið hana. Hún leggur á ís- og snjóbreiður, án þess að hugsa um þær hætt- ur sem liggja þar huldar, hún gengur eftir stígum svo mjóum að tæplega er hægt að ná fótfestu þar, hún smýgur eftir ótrúlega tæpum klettasillum, hún sveiflar sjer frá stalli til stalls og hún klifrar í hættumestu hengjum og það án þess að hugsa eitt augna- blik um hættuna, sem hún er í. Svo skellur nóttin á, niðdimm og köld, það verður ekki haldið áfram og ekki snúið til baka, maður verður að vera þar sem hann er staddur. En skyttan lætur ekki hugfallast, henni hefur aldrei komið til hugar að snúa gemsulaus heim og hún huggar sig við það, að gems-

x

Lögrétta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögrétta
https://timarit.is/publication/196

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.